06.05.1978
Efri deild: 103. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4606 í B-deild Alþingistíðinda. (3937)

282. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru fróðlegar tölur sem hv. síðasti ræðumaður talaði um. Hann minntist á viðskiptaveituna, um 8 þús. millj. kr., og eflaust væri hægt að ná meiri tekjum inn í ríkissjóð. Það getur vel verið að hann fari með réttar tölur að mestu leyti, þó svo hann gæti þess að þetta væru ágiskunartölur. En ég er hræddur um að innifalið í þessum 8000 millj. kr., sem hann gat um sé talsvert af fyrirtækjum sem ekki taka neinn þátt í skattgreiðslum, eins og hann réttilega gat um, að því marki sem hann var að tala um. Ég veit ekki til þess, að samvinnuhreyfingin t. d., sem hefur með höndum helminginn af öllum innflutningi til landsins, standi undir sömu gjöldum og aðrir útflytjendur. Ég veit ekki til þess, að önnur fyrirtæki í landinu, sem eru rekin á vegum ríkisins, greiði nokkurn skapaðan hlut í sameiginlegan kostnað. Oftast er greitt með þeim. En nóg um það.

Það er nú orðið dálítið liðið síðan umr. um þetta skattalagafrv. fóru hér fram, það eru einir 24 tímar síðan, og það, sem ég var með í huga þegar þær umr. stóðu yfir, er mikið farið að gleymast. En það sem ég punktaði hjá mér, er þó athyglivert. Hv. 5. þm. Austurl. kom að þeim ummælum mínum, að við Ragnar Arnalds værum ekki alltaf sammála um frv., við værum þó báðir sammála um að þetta frv. væri vont. Og í þessu tilfelli ætla ég að útskýra þetta.

Hv. 5. þm. Norðurl. v. telur þetta frv. slæmt vegna þess að ekki er nóg þrengt að fyrirtækjum. Hann vill láta ganga harðar að þeim. Ég aftur á móti tel þetta slæmt frv. vegna margra galla sem ég gat um. Ég tel að sé of mikið þrengt að t. d. smáatvinnurekstri, eins og kemur fram í 59. gr. og bæði hefur verið rætt hér ítarlega og eins í Nd., og tel ég ekki ástæðu til að rifja það upp. Þarna eru tvær andstæður. En inn á milli er þetta góða sem hv. 5. þm. Austurl. lítur á, og það er spegilmynd af frv. Það kemur fram í 59. gr., svo hljóðandi:

„Viðmiðunartekjur þeirra, er landbúnað stunda, skulu miðast við launaþátt í verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða, þó að teknu tilliti til aðstæðna hverju sinni, svo sem því ef bóndi nær ekki heildartekjum grundvallarbúsins vegna afurðaverðs, árferðis eða annarra atriða er máli skipta að mati ríkisskattstjóra.“

Þetta er ágætt. Þetta er viðbót við það sem var áður. Ég er alveg sammála þessu og fagna því, að þetta skuli vera komið inn, tel það sjálfsagt. En á móti kemur' svo upphafið að þessari grein sem stangast á við þetta.

„Ef maður, er starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi eða hjá aðila honum tengdum, telur sér til tekna af starfi þessu lægri fjárhæð en ætla má að launatekjur hans hefðu orðið ef hann hefði unnið starfið sem launþegi hjá óskyldum aðila . . . skal ákvarða honum tekjur af starfinu.“

Þarna stangast á. Ragnar Arnalds telur að frv. gangi ekki nógu hart að atvinnurekendum. Ég tel að það gangi mjög hart að atvinnurekendum, sérstaklega þeim smærri. Það er svo búið að koma ákvæði inn í þessa grein sem tekur verulegt tillit til álagningar á bændur, og það telur hv. 5. þm. Norðurl. v. mjög gott. Svona stangast á í frv. Hægt er að fara í gegnum frv. lið fyrir lið, þannig að einn getur séð margt gott við það og aðrir geta orðið sammála um að það sé vont, þó að þeir séu ekki sammála um að það sé sú sama illska í því alls staðar.

Ég vil taka undir það með hv. 2. þm. Norðurl. e., og er það að vísu það sama og ég var búinn að leggja áherslu á, að verið er að kippa grundvellinum undan trúnaði milli banka og viðskiptavina þegar sparifé er gert framtalsskylt. Ég vitnaði í álit viðskiptabankanna sem ég leyfi mér að vísa til. Hv. 2. þm. Norðurl. e. er maður með hálfrar aldar starfsreynslu í þjóðbankanum og að það skuli ekki vera hlustað á hann eða tekið tillit til þess, sem hann segir, er alveg furðulegt.

Ég hefði viljað beina spurningum til fjmrh., en ég sé að báðir formenn fjh.- og viðskn, eru staddir í þessari hv. d. og þeir gætu kannske borið sig saman og þá formaður okkar svarað. Það hefur komið í ljós, að stóraukinn kostnaður verður við þá framkvæmd sem ætluð er með þessum lögum. Skattseðlar verða prentaðir í miklu meira magni. Allur útsendingarkostnaður verður miklu meiri. Hvað er þessi kostnaður miklu meiri en hann er við framkvæmd skattalaganna nú? Það er fyrsta spurningin. Hvað er ætlað að miklu meira skrifstofupláss þurfi undir aukastarfslið, og hvað er aukastarfsliðið, sem þarf að bæta við, mikið? Sem sagt, hvað eru margir skattseðlar sendir út og hvað verða margir skattseðlar sendir út? Ég tel mjög áríðandi á þessu stigi að fram komi hvað fjmrh. eða þessir ágætu embættismenn, sem hafa unnið að þessu, telja að báknið við innheimtu ríkissjóðstekna stækki við samþykkt þessa frv. Ég held að það fari ekkert milli mála, að þar verður töluverð breyting á.

Ég vil þá undirstrika það enn einu sinni, að í báðum þeim ræðum, sem hv. frsm. fjh.- og viðskn. hefur haldið hér um þetta mál, hefur hann séð ástæðu til þess að taka fram, að margvíslegar athuganir þurfi að gera á þessu frv. og endurbæta það til að gera sér grein fyrir ýmsum ákvæðum sem eru í frv. Frv., sem hér á að fara að samþykkja, er sem sagt ekki tilbúið svo megi nota það sem lög. Það liggur alveg ljóst fyrir af ummælum allra sem tekið hafa til máls. Og af hverju er þá verið að þrýsta þessu í gegn? Allir, sem tekið hafa til máls, hafa talað um að það þurfi að endurbæta skattalögin og athuga þurfi vel og gera sér grein fyrir ýmsum ákvæðum sem í frv. eru, eins og kom fram hjá frsm. okkar í báðum ræðum. Frv. er sem sagt ekki nothæft eins og það er þó það verði samþykkt. Það þarf að breyta því. Allir eru sammála um þetta.

Tölvuvinnsla hefur kostað gífurlegt fé, sagði hv. frsm. fjh.- og viðskn., og embættismenn hafa lagt mikið á sig til að gera frv. sem best úr garði. Það getur vel verið. Tölvuvinnsla getur verið dýr, eins og hv. 5. þm. Norðurl. v. upplýsti áðan. Hann hefur allt í einu fengið, frá því að síðast var rætt hér um þetta frv., tvisvar sinnum 14 blaðsíðna úttekt úr tölvum. En tölvan skilar ekki öðrum niðurstöðum en hún er fær um að gera miðað við það sem í hana er sett. Og embættismennirnir gera náttúrlega sitt besta til þess að vinna úr því sem þeim er fengið í hendur, ef þeir fá þá ekki frjálsar hendur. Það er það, sem ég er að gagnrýna, þ. e. hugsunina sem er á bak við þetta. Mér finnst reynt að ná sem mestu af einstaklingum í staðinn fyrir að það á að stefna að því að skilja sem allra mest eftir af rauntekjum fólks til ráðstöfunar í höndum fólksins sjálfs.

Ég vil ítreka spurningu mína og beina henni til fjmrh., úr því að hann er kominn í salinn. Mér leikur hugur á að vita hvað framkvæmd þessara laga verður miklu dýrari en framkvæmd þeirra laga sem nú eru í gildi. Hvað er reiknað með miklu meira skrifstofurými, hvaða viðbótarstarfslið þarf, hvað eru margir skattseðlar sendir út í dag, hvað verða margir skattseðlar sendir út ef þetta frv. verður að lögum? Það er kannske ekki raunhæft að spyrja hæstv. fjmrh. hvort hann telji að báknið við innheimtu ríkistekna minnki eða stækki við þær breytingar sem hér eiga sér stað.

Ég get ekki nógsamlega undirstrikað þá hættu sem felst í 94. gr., þar sem ríkisskattstjóri eða opinberir aðilar hafa heimild til þess að taka hvern sem er fyrir og spyrja hann, yfirheyra um náungann, um hvern sem er. Ef ríkisskattstjóri heldur að einhver einstaklingur geti veitt upplýsingar um annan, þá er honum heimilt að afla sér þeirra upplýsinga, hvort sem viðkomandi aðili er samvinnuþýður eða ekki. Ef hann er það ekki, þá er ég nú kannske heldur bjartsýnn á að lögregluaðferðir verði ekki notaður til þess að fá út úr honum það sem þarf að fá út úr honum, vegna þess að sá kafli eða sú grein er komin út úr frv. En þetta er vondur kafli.

Ég held að ég sjái ekki ástæðu til þess að hafa þetta lengra. En ég vil taka undir orð hv. 2. þm. Norðurl. e., sem ég vil ítreka að er reyndur bankamaður og hefur alist upp í þjóðbankanum, byrjaði þar sem ungur maður í ábyrgðarlitlum störfum, en endaði sem bandastjóri og er með 50 ára starfsreynslu að baki. Hann segir í sínum málflutningi að með setningu þessara skattalaga getum við bætt sparifjáreigendum það tjón sem þeir hafa orðið að þola vegna verðbólgu o. fl. Við erum einmitt að vinna að þessari setningu skattalaga, og ég vona að það verði tekið mark á þeirri miklu reynslu sem hv. 2. þm. Norðurl. e. hefur yfir að búa.