06.05.1978
Efri deild: 103. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4619 í B-deild Alþingistíðinda. (3956)
217. mál, tollskrá o.fl.
Jón Helgason:
Herra forseti. Ég þarf ekki að bæta mörgum orðum við það sem ég sagði hér í gær. En það er aðeins vegna þess sem hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði, af hverju þessar brtt. væru komnar, sem ég vildi segja nokkur orð. Það kom fram hjá hv. 5. þm. Austurl. í gær, að við breytingu á tollskránni í árslok 1976 fluttum við þrír nm. í 1. minni hl. fjh.- og viðskn. Ed. brtt. við frv. til l. um tollskrá. Það vorum við Halldór Ásgrímsson og Jón G. Sólnes. Sú brtt. var á þá leið að lækka flest landbúnaðartæki, þ. e. allar jarðvinnslu- og heyvinnuvélar, að lækka toll á þeim úr 7% fyrst niður í 4% og síðan niður í 2%. Og þá heyrðist ekkert frá hv. 5. þm. Norðurl. v. eða flokksmönnum hans um að það þyrfti að gera þetta. Það var ekki fyrir þeirra forgöngu sem tollurinn var lækkaður þá. Hins vegar urðu þarna þá eftir nokkur tæki. Ekki var hægt að ná samkomulagi um að ganga lengra í það sinnið.
Nú er flutt, eins og ég sagði í gær, till. um að bæta þarna við nokkrum tollvöruflokkum og þá er einn mjög þýðingarmikill, þ. e. a. s. hjóladráttarvélar. Þetta kallar hv. 5. þm. Norðurl. v. ómerkilega dúsu, að lækka toll á öllum landbúnaðartækjum úr 7% niður í 2% eins og gert hefur verið nú á tæpum tveimur árum. En hann telur að það væri hægt að ganga miklu lengra, og þá flytur hann till. um að lækka toll á nokkrum hluta landbúnaðartækjanna niður í 0. Það telur hann að sé stóra stökkið, að fara á nokkrum hluta úr 2% niður í 0. En hann tekur ekki dýrustu vélarnar þar, þ. e. a. s. dráttarvélarnar, sem nú hefur verið ákveðið að lækka úr 7% niður í 2%. Mér finnst, að þetta sé ekki sannfærandi málflutningur, og ég vildi aðeins láta koma fram að breytingin nú er framhald af því, sem gert var fyrir tveimur árum, að samræma það að taka allar vélarnar nú undir sömu tollmeðferð.