06.05.1978
Neðri deild: 101. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4629 í B-deild Alþingistíðinda. (3971)
237. mál, sala eyðijarðarinnar Kollsvíkur í Rauðsandshreppi
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Virðulegi forseti. Þetta mál er um að veita heimild til þess að selja eyðijörðina Kollsvík í Rauðasandshreppi. Í grg. með frv. kemur fram, að hreppsnefnd Rauðasandshrepps og jarðanefnd Vestur-Barðastrandarsýslu mæla með sölu jarðarinnar. Einnig liggja fyrir jákvæðar umsagnir um málið frá Landnámi ríkisins og jarðeignadeildinni. Þetta er heimild til að selja Össuri Guðbjartssyni, sem er ábúandi og eigandi á jörðinni Láganúp í Rauðasandshreppi, þessa jörð, og hefur hann haft afnot af Kollsvík síðan 1972. Á þskj. 921 kemur fram, að landbn. hv. d. hefur fjallað um málið og mælir með að samþykkja frv.