06.05.1978
Efri deild: 104. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4634 í B-deild Alþingistíðinda. (3997)
181. mál, bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við íslenska stjórnmálaflokka
Ingi Tryggvason:
Herra forseti. Nd. hefur gert nokkrar breytingar á frv. til l. um bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við íslenska stjórnmálaflokka. Allshn. Ed. vannst ekki tími til að fjalla um þessar breytingar sérstaklega á fundi, en ég hef haft munnlegt samráð við nm. og meiri hl. n. fellst á að þessar breytingar verði samþykktar.
Ég tel ekki ástæðu til þess að orðlengja um þetta. Þó verð ég að lýsa þeirri skoðun minni, að mér finnst þessar breytingar orka nokkurs tvímælis, en mun þó eftir atvikum greiða frv. atkv. mitt eins og það liggur nú fyrir.