06.05.1978
Sameinað þing: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4639 í B-deild Alþingistíðinda. (4016)

31. mál, rannsóknir á djúprækjumiðunum fyrir Norðurlandi

Frsm. (Karl G. Sigurbergsson):

Herra forseti. Atvmn. hefur haft til athugunar og rætt till. til þál. á þskj. 31. sem er um tafarlausar ráðstafanir til aukinnar leitar og rannsókna á djúprækjumiðum fyrir Norðurlandi. N. hefur aflað sér umsagna Fiskifélags Íslands og Hafrannsóknastofnunarinnar um málið. Það er álit beggja þessara stofnana, að mjög brýnt sé að könnun og leit sú, sem þáltill. gerir ráð fyrir, fari fram, en báðar stofnanirnar telja ekki síður þýðingarmikið að leitin verði gerð sem víðast á landgrunninu, ekki eingöngu fyrir Norðurlandi.

Atvmn. varð sammála um að vísa till. til ríkisstj. til fyrirgreiðslu með svofelldri ályktun:

„Um leið og n. leggur til að till. verði vísað til ríkisstj. vekur hún athygli á mikilvægi þess, að leitað verði að djúprækjumiðum sem víðast umhverfis landið.“

Eins og ég sagði varð atvmn. einróma sammála um þetta og rituðu allir undir nál. Eins og fram kemur í álitinu vill n. leggja áherslu á mikilvægi þess, að leitað verði að djúprækjumiðum sem víðast á landgrunninu og jafnframt að gert sé verulegt átak í þeim efnum.

Þótt álit atvmn., sem ég tala hér fyrir, taki einungis til leitar að rækjumiðum umhverfis landið, fer ekki hjá því, að ýmsar spurningar vakni varðandi nauðsyn á víðtækum og skipulögðum haf- og fiskirannsóknum á öllu landgrunninu, vítt og breitt innan allrar landhelginnar. Vegna þeirra sérstöku aðstæðna, sem hér eru þennan síðasta þingdag væntanlega, skal ég ekki eyða löngum tíma hv. þm. í það að ræða haf- og fiskirannsóknir almennt þótt að ýmsu leyti væri ærin ástæða til þess. Ég vil þó nota tækifærið og minna á að enn eru mörg og veigamikil verkefni á því sviði óleyst þrátt fyrir góðan skilning og vilja hv. alþm. og margháttaðar tillögur sem samþ. hafa verið hér á hinu háa Alþingi varðandi þessi mál á undanförnum árum. En með tilliti til ríkjandi ástands helstu fiskistofna hér við land og raunar ástandsins í atvinnumálum, ekki síst sjávarútvegi, vinnslu sjávarafla og skyldum atvinnugreinum víða umhverfis landið, er full þörf á að efldar séu haf- og fiskirannsóknir til stórra muna frá því sem verið hefur.

Eins og ég sagði skortir ekki vilja til þessara mála, miðað við þær till, og samþykktir sem oft hafa verið gerðar hér á Alþ., en það er sjálfsagt um að ræða vöntun á fjármagni í þessu tilviki. Hafrannsóknastofnunina skortir fjármagn og tæki til að geta sinnt þessum viðamiklu verkefnum. Það kom m. a. fram í ummælum hv. 3. þm. Austurl., þegar hann mælti fyrir nál. atvmn. varðandi þáltill. um leit að karfamiðum, að n. var ljóst að fjármagn skorti til þeirra hluta, þó að áhuginn væri fyrir hendi, að þar væri gert verulegt átak í. Og hann komst þannig að orði, að ekki mundi vera hægt að sinna þessu verkefni fyrr en eftir næstu fjárveitingar. Ég hef orðið þess var, þar sem ég er í stjórn Fiskimálasjóðs, að nálega á hverjum stjórnarfundi liggja fyrir beiðnir frá Hafrannsóknastofnuninni um styrki eða um fjármagn til að standa straum af ýmiss konar rannsóknum og tilraunum sem henni er falið að sjá um án þess að raunverulega sé séð nægilega fyrir fjármunum til þeirra rannsókna. Í mörgum tilvikum er um það háar fjárhæðir að ræða að útilokað er fyrir Fiskimálasjóð að verða við þeim beiðnum, þótt viljinn sé fyrir hendi þar eins og hér á hv. þingi. Ég hygg að það fari ekkert á milli mála að efla þurfi þessar rannsóknir, en til þess að svo geti orðið þarf að auka fjárveitingar til Hafrannsóknastofnunarinnar, svo að hún verði fær um að sinna hinum veigamiklu og margþættu þörfum sem fyrir liggja. Þeir fjármunir, sem veittir yrðu í þessu skyni, mundu fljótlega skila sér aftur í nýtingu vannýttra fiskitegunda og ýmissa botndýra og renna fleiri stoðum undir fiskiðnað okkar, gera hann fjölbreyttari og öruggari en hann er.

Flm. þáltill. á þskj. 31 nefna í grg. með till. að líkur bendi til þess, að ekki sé ofætlað að gera megi út 15–20 litla skuttogara á rækjuveiðar eingöngu og smærri togskip að auki, meðan hlífa verði bolfiskstofnunum. Þetta álit kemur raunar að nokkru leyti fram í umsögn Hafrannsóknastofnunarinnar sem ég gat um hér áðan að n. hefði borist, og ég vil þess vegna víkja nokkrum orðum að umsögnunum aftur.

Það kemur, eins og ég segi, vel fram í ítarlegri umsögn Hafrannsóknastofnunarinnar, að árangur í veiðum vex að sjálfsögðu í réttu hlutfalli við auknar rannsóknir og leitartilraunir. Umsögn Hafrannsóknastofnunarinnar er allítarleg og mun ég ekki fara mikið út í hana. Hún skýrir frá, hvernig þessum rannsóknum á djúprækjumiðum hefur verið hagað á undanförnum árum. Þó að tíminn sé nú kannske knappur, þá langar mig til þess að lesa niðurlag umsagnarinnar, með leyfi hæstv. forseta, en þar segir, þegar þeir eru búnir að skýra frá hvernig að rannsóknum hafi verið staðið, orðrétt:

„Eins og sjá má af þessu yfirliti hafa þau mið, sem nýtt eru, fundist í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunarinnar eða á skipum sem leigð hafa verið að tilhlutan sjútvrn. Þessa leit þyrfti almennt að auka á djúpslóð við landið og sérstaklega þyrfti hún að vera samfelldari en verið hefur, þar sem oft verða mikil úrtök vegna veðurs og nýtast þá stuttir leiðangrar verr en skyldi. Frá árinu 1975 hefur afli á úthafssvæðinu norðanlands verið sem hér segir: Árið 1975 414 lestir eða 8.6% heildarársveiðinnar. Árið 1976 497 lestir eða 7.3% heildarársveiðinnar. Árið 1977 680 lestir eða 9.9% heildarársveiðinnar. Á árinu 1977 óx þannig sókn töluvert á djúpslóð norðanlands og munu um 15 bátar“ — ég endurtek: um 15 bátar, segir Hafrannsóknastofnunin — „hafa komið þar við sögu. Flestir bátanna voru þó einungis að sumarmánuðina og mun afkoma þeirra hafa verið þokkaleg, en hafís hamlaði töluvert veiðunum um tíma. Eins og áður hefur verið drepið á hefur rækjuleit á djúpslóðum mestmegnis verið fólgin í einstökum leiðöngrum, oft stuttum, og hefur þá ekki fengist það heildaryfirlit sem skyldi. Til þess að svo megi verða er nauðsynlegt að hafa gott leitarskip, annaðhvort rannsóknarskip eða leiguskip, sem sinni rækjuleit samfellt í nokkra mánuði, svo sem gert hefur verið um árabil við aðra leit, t. d. loðnuleit. Á annan hátt verður ekki skorið úr því, hve gjöful rækjumið kunni að vera á djúpslóðum hér við land. Án slíkrar gaumgæfilegrar könnunar er ekki von til þess, að rækjuveiðar á djúpslóðum við Ísland þróist að nokkru ráði frá því sem nú er.

Í þáltill. nr. 31 1977 er gert ráð fyrir að gerðar séu tafarlausar ráðstafanir til aukinnar leitar og rannsókna á djúprækjumiðunum fyrir Norðurlandi. Eins og að framan er rakið er hér um brýnt mál að ræða,“ — segir Hafrannsóknastofnunin — „en óþarft má telja að binda aðgerðirnar fyrir fram við Norðurland eitt sér.“

Eins og ég gat um er umsögn Fiskifélagsins á sömu lund. Þar er vitnað til þessarar grg. Hafrannsóknastofnunarinnar og tekið undir þetta sjónarmið. Eins og fram kom í nál. vorn nm. sammála um það líka, að þetta sjónarmið ætti rétt á sér og það væri ekki eingöngu bundið við miðin fyrir Norðurlandi ein sér.

Ég gat um í upphafi að ég skyldi ekki eyða löngum tíma og skal nú reyna að standa við það. En mig langar þó aðeins að lokum að geta þess, að n. barst bréf frá Söltunarstöð Dalvíkur hf. og ekki beint varðandi umsögn um málið, en það er svolítið fróðlegt vegna þess að Söltunarstöð Dalvíkur hf. gerir út eina rækjuveiðiskipið sem segja má að sé af þeirri gerð hér á landi, þ. e. a. s. lítinn skuttogara sem er til þess útbúinn að veiða rækju á djúpmiðum og frysta hana um borð. Þetta bréf er frásögn og skýrsla um það, hvernig sú tilraunaútgerð hefur gengið. Og það er ekki nema eðlilegt, — mér finnst það a. m. k. ekki nema eðlilegt, þar sem fram kemur að við ýmsa byrjunarerfiðleika hefur verið að stríða í því sambandi, og ég fyrir mitt leyti geri það með ánægju, — að skýra hér þau sjónarmið sem fram komu í hv. atvmn. varðandi þennan tilraunaveiðiskap.

N. varð sammála um að reyna bæri að stuðla að því, að þessi útgerð gæti haldið áfram og væri hægt að þróa hana meir en gert hefur verið. En vegna þess að það var ekki hlutverk n. að gera sérstaka till. um á hvern hátt ætti að standa að rækjuleit og hvaða skip bæri að fá til þeirrar leitar og rannsókna, þá þótti nm. ekki ráðlegt að gera þar um sérstakt álit, en ég lofaðist til að geta þess, þegar ég mælti fyrir nál., að við teldum nauðsynlegt að hafa það í huga, þegar ráðist yrði í rækjuleit, að það yrði litið og munað eftir þessari útgerð þarna. Við teljum allir sem einn að þetta skip geti verið engu að síður fært til þess að gera leit og könnun á djúprækju eða djúprækjumiðum heldur en skip sem Hafrannsóknastofnun hefur yfir að ráða. Það kemur líka fram í grg. Hafrannsóknastofnunarinnar, að það hafi verið notuð leiguskip jöfnum höndum eftir því sem þurfa hefur þótt. Að lokum vil ég endurtaka það, að ég hygg að enn verði og þurfi að gera betur í þessum efnum, efla verði hafrannsóknir og fiskirannsóknir og það þurfi að vinna markvisst að þeim rannsóknum innan allrar landhelginnar. Og einmitt með tilliti til þess, að við höfum nú öðlast réttindi til að nýta þau gæði, sem þar verða fundin, á skynsamlegan hátt, með því tekst okkur best í framtíðinni að vernda þennan mikilvæga rétt okkar. Ég held að okkur verði ekki stætt á því í framtíðinni að eigna okkur landgrunnið allt umhverfis landið innan 200 mílna markanna nema því aðeins að við getum staðið að því að nýta þau gæði sem þar verða fundin í framtíðinni.

Ég vil svo að lokum endurtaka það, að n. varð sammála um þetta álit og við leggjum til að það verði samþykkt.