06.05.1978
Sameinað þing: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4642 í B-deild Alþingistíðinda. (4017)
31. mál, rannsóknir á djúprækjumiðunum fyrir Norðurlandi
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég mun nú ekki eyða löngum tíma í þessa ræðu mína. Ég hlýt að lýsa yfir nokkrum vonbrigðum mínum með afgreiðslu málsins í atvmn. Samþykkt á þá lund að beina því til ríkisstj. að efla rækjuveiðar á fiskislóðum kringum landið er fljótt á litið samsvarandi því raunverulega að samþykkja að ekki skuli lögð nein sérstök áhersla á rækjuleitina fyrir Norðurlandi, eins og fyrir var mælt í þáltill. okkar. Aftur á móti kom það fram í ræðu hv. þm. Karls Sigurbergssonar, frsm. n., að hann gerir sér fulla grein fyrir sérstakri þörf á rækjuleit fyrir Norðurlandi og n. í heild sömuleiðis. Einnig virðist n. hafa gert sér grein fyrir því sem var, að mál þetta var flutt hér í þinginu með sérstöku tilliti til útgerðar Dalborgarinnar, þessa eina togara sem við eigum sem búinn er til djúprækjuveiða.
Hv. frsm. atvmn. gerir sér grein fyrir því, og það kom skýrt fram í ræðu hans, að þegar um allt of lítið fé er að ræða til rækjuleitar yfirleitt og fiskileitarinnar yfirleitt, þá er eðlilegt að því litla fé, sem fyrir hendi er, verði varið til þess að leita þar sem mest er vonin um árangur fremur en dreifa því fé til leitar þar sem ekki hafa fengist vísbendingar áður um að djúprækju sé að fá, á einhverju tilteknu svæði. Þannig er ástandið einmitt fyrir Norðurlandi. Þar hefur fundist veiðanleg djúprækja. Nýting þeirrar djúprækju er raunverulega undirstaða útgerðarinnar á djúprækjutogaranum Dalborginni, og nú hefur, eftir því sem mér skilst best, hæstv. sjútvrh. eða sjútvrn. gengið í það að reyna að samrýma fyrirgreiðslu fyrir þessari útgerð þeirra Dalvíkinganna sem lagt gæti, ef vel tekst til, grundvöll að aukinni útgerð á djúprækju hér við land, — samrýma þess háttar fyrirgreiðslu og stuðning við þessa rækjuleit fyrir norðan.
Ég vil aðeins í lokin ítreka það sem ég hef áður sagt. Ég tel að árangurinn af þessari útgerðartilraun, sem nú er verið að gera á Dalvík á djúprækjuslóðum með þessu eina skipi, kunni að ráða miklu um hvort fleiri útgerðaraðilar muni ýmist ráðast í það að fá sér rækjutogara til útgerðar á djúpslóðina eða jafnvel að breyta skuttogurum, sem fyrir eru í landinu af heppilegri stærð, í rækjuveiðiskip með ærnum tilkostnaði.
Og svo þetta í lokin: Það er ljóst mál, eins og segir í þáltill., að það væri okkur mjög hagstætt ef við gætum nú komið málunum svo fyrir að við gætum byrjað arðbæra útgerð á djúprækju með hluta af skuttogaraflota okkar meðan við þurfum að hlífa þorskstofninum og jafnvel einhverju af smærri bátunum líka. Og svo enn þetta: Eins og hv. frsm. atvmn. túlkaði viðhorf n. í ræðu sinni, þá hlýt ég að sætta mig við nál., enda þótt ég hefði kosið að komið hefði fram í því sjálfu skilningur á því, að nauðsynlegt er að verja þessu litla fé, sem við höfum til rækjuleitar, einmitt til þess að leita þar sem við eigum helst von í að finna eitthvað.