10.11.1977
Sameinað þing: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (403)

320. mál, Íslenskir aðalverktakar

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Svör við fsp. á þskj. 53, tölul. 2:

1. Eignaraðilar Íslenskra aðalverktaka sf. eru Sameinaðir verktakar hf. 50%, Reginn hf. 25% og Ríkissjóður Íslands 25%. — Félagið Íslenskir aðalverktakar sf. var stofnað árið 1954 fyrir tilstuðlan þáv. ríkisstj. í þeim tilgangi að það tæki að sér framkvæmdir fyrir varnarliðið í stað þeirra erlendu verktaka sem þá störfuðu hér. Sameinaðir verktakar hf. og Reginn hf. höfðu þá stafað sem undirverktakar við þessar framkvæmdir hjá hinum erlendu verktökum um nokkurt skeið.

2. Heildarvelta Íslenskra aðalverktaka sf. árið 1975 var 1 359 024 583 kr. og árið 1976 3 429 145 786 kr.

3. Aðalverkefni Íslenskra aðalverktaka sf. s.l. tvö ár hafa verið: Malbikun flugbrauta, uppsetning öryggisbúnaðar flugbrauta, endurbygging á þaki aðalflugskýlis, verkstæðisbyggingar, íbúðarhúsabyggingar, lagning dreifikerfis fyrir lokað sjónvarp o.fl.

4. Starfsmenn félagsins eru nú 526, en voru rúmlega 600 s.l. sumar.

5. Launagreiðslur fyrirtækisins vegna verkframkvæmda fyrir árið 1975 voru samtals 553 462 599 kr. og árið 1976 1 159 288 679 kr.

6. Rekstrarhagnaður félagsins árið 1975 var 23 906 167 kr, og árið 1976 142 537 046 kr.

7. Allir verksamningar Íslenskra aðalverktaka sf. eru í bandaríkjadollurum. Í samningum þeirra er ákvæði um endurskoðun samningsupphæðar á þriggja mánaða fresti ef gengi hefur breyst um 1% eða meira til hækkunar eða lækkunar á því tímabili. Ef gengisbreyting nemur 10% eða meira í einu skal samningsupphæð endurskoðuð miðað við þann dag sem slík breyting á sér stað. Félagið hagnast því ekki á gengisbreytingum.

8. Íslenskir aðalverktakar sf. greiða ekki aðflutningsgjöld af vinnuvélum sem notaðar eru við varnarliðsframkvæmdir. Sala varnarliðseigna tekur við og sér um sölu á öllum vinnuvélum og tækjum sem hætt er að nota.

Ég vona að fsp. sé þar með svarað.