10.11.1977
Sameinað þing: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í B-deild Alþingistíðinda. (412)

322. mál, Orkubú Vestfjarða

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Út af athugasemd eða fsp. hv. 5. þm. Austurl. vil ég taka fram, að ég skýrði frá því áðan að á stofnfundi Orkubúsins hefði verið bókaður sá fyrirvari frá minni hendi, að viss atriði þyrftu að koma til kasta Alþ. Það, sem hér er átt við, er verðjöfnunargjaldið, þ.e.a.s. að Orkubú Vestfjarða skuli fá 20% af verðjöfnunargjaldi af raforku. Það þarf ekki breytingu á lögum út af fyrir sig í þessu efni. Lögin um verðjöfnunargjald falla úr gildi í lok þessa árs og þarf því að flytja sérstakt frv. um framlengingu þess gjalds. Í því frv., sem er tilbúið í iðnrn. og verður væntanlega flutt hér næstu daga, verður að sjálfsögðu tekið fram að 20% verðjöfnunargjaldsins skuli renna til Orkubús Vestfjarða.

Mér virðist kenna nokkurs misskilnings í ummælum hv. fyrirspyrjanda. Það er ekki kunnugt að þessi hv. þm. hafi lagt fram neinn sérstakan skerf til að koma á fót þessu Orkubúi Vestfjarða. Hins vegar hefur hann haldið nokkrar ræður og sérstaklega skrifað nokkrar greinar til að gera allt málið sem tortryggilegast. En nú hefur hann mikinn áhuga, að því er virðist, á þessu máli öllu saman.

Varðandi Vestfjarðalínuna vil ég endurtaka það, að Rafmagnsveitum ríkisins var falinn undirbúningur þessa máls og framkvæmdir við lagningu Vestfjarðalinu. Ég skal lesa kafla úr þeirri bókun, sem ég lét gera á stofnfundinum um þetta mál. til viðbótar því sem ég las áðan. Þar segir:

„Iðnrh. hefur skipað n., sem geri till. um heildarskipulag orkumála í landinu, svo og n., er geri till. um rekstrarfyrirkomulag og eignaraðild Norðurlinu og annarra aðalorkuflutningslina. Þessar nefndir hafa enn ekki skilað till. og þar til afstaða hefur verið tekin til till, n. gildir sú ákvörðun, að Rafmagnsveitur ríkisins byggja Vestfjarðalínu og fjármögnun hennar verður með sama hætti og annarra aðalorkuflutningslína milli landsfjórðunga. Ef þessari skipan yrði breytt eftir að till. n. lægju fyrir og afstaða stjórnvalda þar um yrðu Vestfirðingar að hlíta sömu skilyrðum og aðrir landsmenn. Höfuðreglan yrði því að Vestfirðingar nytu sömu fyrirgreiðslu sem aðrir í þessum efnum.“

Þetta held ég að hafi legið alveg skýrt fyrir. Það fyrirheit, sem gefið var á fundinum og er bókað, er það sem ég lýsti hér áðan, að Rafmagnsveitur ríkisins og iðnrn. mundu gera till. við undirbúning fjárlaga 1978 um að Vestfjarðalínan yrði lögð á árunum 1978 og 1979, og það hefur verið gert. Ákvörðun um þetta atriði er í höndum Alþingis.