10.11.1977
Sameinað þing: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í B-deild Alþingistíðinda. (418)
70. mál, nýr rafstrengur til Vestmannaeyja
Fyrirspyrjandi (Garðar Sigurðsson):
Herra forseti. Í máli hæstv. iðnrh. kom fram, að hann og hans rn. hefðu gert till. um framlag til þessa verks á fjári. Hann gat þess einnig og sagði það síðar, að það yrði að tryggja fjármagn með einum eða öðrum hætti til þess að þetta verk næði fram að ganga. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. sérstaklega fyrir mjög góðar undirtektir og áhuga hans á því að Vestmanneyingar geti fengið aukið öryggi í rafmagnsmálum. Ég treysti því að unnið verði að þessu máli svo að Vestmanneyingar geti vel við unað.