15.11.1977
Sameinað þing: 17. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (456)
50. mál, framkvæmd laga um Framleiðslueftirlit sjávarafurða
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Aðeins örfá orð út af síðustu orðum hv. 1. landsk. þm.
Það, sem hér var um að ræða, var að stöðva allan fiskiskipaflotann, og hver hafði vald til þess og hver gat framfylgt slíkri stöðvun og stöðvað atvinnulífið í landinu. Ég fyrir mitt leyti treysti mér ekki að geta út slíka fyrirskipun og því síður að framfylgja henni. Við reyndum af veikum mætti í sjútvrn. að halda áfram nauðsynlegum rannsóknum í sambandi við rækjuveiðar, að koma einu skipi af stað. Því var meinað að láta úr höfn af verkfallsvörðum BSHB, það varð að bíða og stór hluti flotans fékk ekki að hefja þær veiðar. Þannig fer yfirleitt allt úrskeiðis í verkföllum, bæði í þessum efnum sem öðrum. En það, sem auðvitað skipti máli í þessu verkfalli og við fiskveiðar og fiskvinnslu á þessu tímabili, var að meginþorri fiskvinnslunnar fer til hraðfrystihúsanna á þessum árstíma og þar má segja að venjulegt eftirlit með framleiðslunni hafi átt sér stað þó yfirmenn matsmenn hafi vantað. Hins vegar er eftir sem áður í höndum Framleiðslueftirlits sjávarafurða að fylgjast með þeim afurðum sem framleiddar voru á þessu tímabili áður en þær koma til útflutnings.