15.11.1977
Sameinað þing: 17. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (457)

64. mál, þorskstofninn

Ein umr. Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér á þskj. 70 fyrirspurn til hæstv. sjútvrh. varðandi þorskstofninn.

Í fyrsta lagi er spurst fyrir um hvað fiskifræðingar hafi áætlað að þorskstofninn á Íslandsmiðum hafi verið stór á árunum 1973, 1974, 1975 og hvað þeir áætli að stærð þorskstofnsins á Íslandsmiðum muni verða á árinu 1978.

Ég tel eðlilegt og sjálfsagt að Alþ. fái skýrslu um þetta svo að alþm. geti gert sér grein fyrir hvar við stöndum í þessum efnum. Það er svo, að afraksturinn af þorskstofninum er undirstaðan undir útflutningi sjávarafurða, þó að nú hin síðari ár hafi verið lögð áhersla á að nytja einnig þá fiskstofna aðra sem tiltækir eru.

Í öðru lagi er spurst fyrir um hvað fiskifræðingar áætli stærð hrygningarstofnsins annars vegar á svæðinu frá Stokksnesi vestur um að Látrabjargi og hins vegar á öðrum hafsvæðum við landið. Ástæðan fyrir þessari fyrirspurn er sú sama og fyrir hinni fyrri. Ég tel eðlilegt og sjálfsagt, að alþm. fái um þetta upplýsingar, og tel að Hafrannsóknastofnun mætti gjarnan gefa Alþ. skýrslu um bæði þessi atriði í lok hvers árs.

Þá er loks í þriðja lagi spurst fyrir um hvort Hafrannsóknastofnun hafi látið gera athuganir á hvaða árangur friðun hrygningarsvæðisins á Selvogsbanka og friðun svæðisins fyrir Norðausturlandi hafi borið. Friðun beggja þessara svæða var ákveðin með reglugerð fyrir nokkrum árum, en ég minnist þess ekki að hafa nokkurs staðar séð grg, fiskifræðinga Hafrannsóknastofnunarinnar um þessi atriði. Ég tel því mjög tímabært að um þetta sé spurt, því að á sínum tíma kom greinilega fram mikill áhugi hjá mörgum þm. fyrir þeim friðunarráðstöfunum sem hér um ræðir.