16.11.1977
Efri deild: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 688 í B-deild Alþingistíðinda. (478)

59. mál, eignarráð yfir landinu

Stefán Jónsson:

Herra forsett. Hér reifa þm. Alþfl. í fimmta sinn á fáum árum mál er varðar eignarráð yfir landinu, gögnum þess og gæðum, að þessu sinni í formi frv. til l, en áður höfðu þeir reifað þetta mál í formi þáltill. í Sþ. Samtímis þessu frv. til l. hefur verið fjallað um hér í deildinni frv. sem við Alþb.-menn flytjum um breytingar í það horf, að ákveðin landssvæði og landsgæði, sem vafi leikur á um nú hver teljast skuli eigandi að, skuli falla til alþjóðar og verða alþjóðareign, og er í grundvallaratriðum býsna frábrugðið því lagafrv. sem hér um ræðir. Þetta þingmál þeirra Alþfl.-manna hefur smám saman tekið breytingum, bæði hið ytra og hið innra, frá því að það var fyrst reifað, þá af hv. þm. Braga Sigurjónssyni upprunalega, öðrum mönnum fremur flutt þá af talsverðri heift í garð bænda í nánum tengslum við illvígt deilumál á Norðurlandi sem hv. þm, vitnaði þá til, bæði í grg. fyrir þáltill, sinni og í ræðum sínum með málinu. Að frv. þessu standa hér í d. tveir valinkunnir sómamenn, þm. Alþfl., Jón Árm. Héðinsson og Eggert G. Þorsteinsson, sem ég hygg að hvorugur verði vændur um að flytja málið af neins konar undirhyggju og enn síður af nokkurs konar rætni í garð bændastéttarinnar né í garð annarra. Ég hygg að það, sem fyrir þeim vaki, sé raunverulega það sem fram kemur í frv. og aths. við einstakar greinar þess, sem með því eru prentaðar, og tilgangurinn sé góður. Þó er frv. með þeim hætti gjört, að ég mun ekki greiða atkv. með því, og kemur ýmislegt til.

Hv. frsm., 1. flm., Jón Árm. Héðinsson, gerði að vísu grein fyrir því í framsöguræðu sinni, að nú hefðu þeir félagar kosið að flytja málið í frumvargsformi, en margt væri í frv, sem þeim væri út af fyrir sig ekki í hendi fast að ekki mætti breyta sem til bata horfi. Ég virði þetta sjónarmið hans, en tel þó að æskilegt hefði verið að öllu meiri vinna hefði verið lögð í að semja frv., þar sem í því gætir nokkurrar mótsagnar á milli greinanna. Svo dæmi sé nefnt, þá er kveðið á um það í 1. gr. ljósum orðum, að „landið allt með gögnum þess og gæðum og miðin umhverfis það, svo sem viðtekin efnahags- og fiskveiðilögsaga hverju sinni greinir, sé sameign þjóðarinnar allrar“ — og bætt síðan við: „að svo miklu leyti sem ekki er öðruvísi ákveðið í lögum þessum.“ Síðan kemur 3. gr., þar sem segir: „Þrátt fyrir 1. gr. laga þessara“ — þar sem kveðið er svona afdráttarlaust að orði um það að landið allt skuli vera sameign þjóðarinnar, þá er kveðið á um það í 3. gr., að þrátt fyrir 1. gr. skuli „bændum frjálst ef og meðan þeir svo kjósa, að eiga jarðir til eigin búrekstrar“.

Ég vil vekja athygli á því, vegna þess sem fram kom af hálfu ýmissa annarra andmælenda þessa frv. fyrr við umr., að ástæðulaust er, virðist mér af skoðun frv., að mæla gegn því á þeirri forsendu að hér sé verið að gera ráð fyrir því að taka eignarhaldið á bújörðum af bændum. Það er kveðið á um hið gagnstæða í frv., og þótti mér gæta þess hjá ýmsum ræðumanna að þeir hefðu a.m.k. ekki lesið þetta frv, nógu ítarlega og jafnvel að þeir andmæltu nú málinu raunverulega í hinum fyrri formum þess, eins og það hefur borið hér að áður,

Ég sakna þess, að hv. þm. Jón G. Sólnes skuli vera fjarverandi umr, um málið í dag þar sem freistandi hefði verið að taka nokkuð til athugunar hugleiðingar hans hér í d. um fullkomleika og gæsku hins upplýsta og frjálsa kapítalisma í beinum tengslum við þetta frv. Væntanlega gefst okkur tækifæri til þess að ræða það heimspekilega viðhorf hans við hann öðru sinni í tengslum við önnur mál sem lúta að eignarréttinum. En ég kemst ekki hjá því við umr. um þetta frv. að vekja athygli á þeirri staðreynd, að einkaeignarréttur á landi á Íslandi hefur verið háður ákaflega mörgum og margvíslegum takmörkunum frá upphafi, með tilliti til alþjóðarheilla og almenningsafnota. Þessar takmarkanir hafa breyst ákaflega mikið frá því að lög voru fyrst skráð á Íslandi og með tilliti til almannahagsmuna.

Á þeim tíma þegar Íslendingar voru bændasamfélag nánast eingöngu, þá var fyrst og fremst kveðið á um gagnkvæman afnotarétt af landi, vegna þess að það, sem einn lét í réttindum á sínu landi í þágu alþjóðar, það tók hann þá á landi annars manns. Þessi ákvæði eru ákaflega mörg og varða umferðarrétt, beitarrétt, reka og veiðirétt, rétt til nota hlunninda á landi annars manns.

Ég tek undir þau orð, sem hv. þm, Ingi Tryggvason lét falla hér í d. er hann tók til máls um frv, á dögunum, að nauðsynlegt er að hafa eignarréttarmálin í sífelldri endurskoðun sífelldri athugun, vegna breyttra aðstæðna. Á síðustu 4–5 áratugunum hefur sú breyting orðið, að mikill meiri hluti þjóðarinnar býr nú ekki lengur í sveit, er ekki eignaraðill að landi í þeirri veru sem áður var, að bújörðum, en á vafalaust rétt til afnota af landinu sínu í heild, — rétt sem nauðsynlegt er að kveða á um í lögum til þess að sneiða hjá óþörfum deilumálum og árekstrum. Ég tel ákaflega æskilegt að bændur sjálfir eigi frumkvæði að þess háttar endurskoðun á löggjöf þeirri sem lýtur að eignarhaldi á landinu, vegna þess að ef þeir eiga ekki sjálfir frumkvæði að endurskoðun slíkra laga ellegar ef þeir eiga ekki beina aðild að endurskoðun slíkra laga, þá kynni hún að verða gerð með minna tilliti til hagsmuna bændastéttarinnar en ella, því að nú er svo komið að mikill meiri hl. atkvæðisbærra manna í landinu býr í bæjunum og er, eins og það er kallað, stundum kannske fullhátíðlega eða fræðilega, landlaust fólk.

Að minni hyggju er síður en svo neitt knýjandi, eins og málin standa nú, að svipta bændur eignarrétti yfir jörðum sínum og mörg önnur mál miklu brýnni til athugunar í sambandi við eignarrétt á landi hér, enda — og ég ítreka það — er alls ekki gert ráð fyrir því í þessu frv. í því formi sem það liggur hér fyrir, samkvæmt 3. gr., að bújarðir verði teknar af bændum.

Ég hlýt einnig að tilgreina í 5. gr. eitt grundvallaratriði sem gerir það að verkum, að ég get ekki stutt þetta frv., og það er ákvæðið um að veiðiréttur verði tekinn undan jörðunum og settur í ríkiseigu og þá ríkisrekstur. Ég er þeirrar skoðunar að bændurnir, fólkið, sem hefur búsetu við veiðivötnin og veiðiárnar árið um kring og hagsmuna að gæta í sambandi við vernd þessara hlunninda og viðgang þeirra, það eigi að ráða þeim, það sé farsælla.

Ég er því miður vonlítill um það, að almenningur í landinu fengi frjálsari aðgang að þessum hlunnindum, einstaklingarnir, þó þau væru undir hatti ráðuneytisstjóra suður í Reykjavík eða fulltrúa hans. Hinu er ekki að leyna, að málin hafa þróast í þá átt á síðari árum, sem óþolandi má raunverulega teljast, að íslenskir þegnar skuli þurfa að keppa við ríkustu menn veraldar með tilboðum í veiðileyfi í ám og vötnum á landi okkar, Þetta er óþolandi ástand. Við verðum að leita annarra leiða til þess að kippa því í lag. Vel má fara svo, að við neyðumst til þess að kveða á um það í lögum beinlínis að íslenskir þegnar hafi úrtakslausan forgang að öllum útivistargæðum landsins og þurfi ekki að keppa við útlendinga með verðtilboðum til þess að halda þeim rétti sínum, og greiðsla fyrir þau gæði eða þau hlunnindi, sem til mála kæmi að taka gjald fyrir, svo sem veiðirétt, mundi þá miðast við lögmál íslenskrar verðmyndunar.

Það er laukrétt, sem hv. 1. flm. sagði í framsöguræðu sinni með þessu frv. á sínum tíma, að veiðiréttarhlunnindin hafa valdið truflun í búsetu á landi hér með þeim hætti, að verð ýmissa jarða hefur hækkað óeðlilega vegna veiðihlunninda, þannig að torvelt og nú í sumum tilfellum algjörlega ógerlegt hefur reynst fyrir unga menn, sem vildu setjast að í sveit, að kaupa þessar jarðir eða fá óskertan ábúðarrétt á þeim vegna þess hversu dýrar þær voru orðnar.

Það er alkunna að þrátt fyrir lög, sem kveða á um annað, hefur veiðiréttur verið tekinn undan jörðum sem í leigu eru, og hefur reynst erfitt að stemma stiga við því, einfaldlega vegna þess að veiðihlunnindin hafa hækkað verðmæti jarðanna og þar af leiðandi leigugjaldið af jörðunum, sem eigandi hefur þá kosið að taka í því formi að hann hefði afnot og yfirráð yfir veiðirétti.

Nú er það svo, að þegar horft er í löggjöfina varðandi byggingu bújarða, varðandi eyðibýli og hvað eina varðandi eignarhald og nytjar af landi, þá kemur í ljós að okkur skortir ekki löggjöf í rauninni til þess að ráða við þessi vandamál. Löggjöfin er fyrir hendi. Það er ýmislegt annað sem á skortir, þ á m. vilja, pólitískan vilja til þess að beita lögunum, og svo vantar fjármagn. Mjög mörg sveitarfélög vantar peninga, aðgang að lánsfé, til þess að geta nýtt sér forkaupsrétt að jörðum, og e.t.v. fyrst og fremst vegna þess að hálfu ríkisvaldsins hefur skort vilja til þess að sjá fyrir þessum fjármunum.

Ég var fyrir nokkrum árum að velta því fyrir mér, hvort hugsanlegt væri að stemma stigu við þeim vanda sem stafar af uppkaupum á eyðijörðum, sem hlunnindi fylgja, með þeim hætti að það yrði fest í lög að hlunnindi öll, veiði, varp, reki og námur, féllu til sveitarfélags þar til jörðin byggðist aftur. Við athugun hefur náttúrlega komið í ljós, að með þessum hætti mundum við lenda í andstöðu við ákvæði stjórnarskrár, og enn fleiri vankantar eru á þeirri leið. Einn er sá, að þar leggjum við allt að jöfnu. Við köllum stundum einu nafni þá menn, sem kaupa upp eyðijarðir vegna hlunnindanna, við köllum þá braskara. Þeir eru þó e.t.v., ef grannt er skoðað, misjafnlega miklir braskarar. Í þessum hópi eru menn sem hafa verið að festa peninga í jörðum til þess að ávaxta þá í von um að selja betur aftur seinna. Þar eru einnig menn sem hafa keypt eyðibýli efalítið með fullri umhugsun um sinn eigin fjárhag, en hafa lagt þar út í framkvæmdir, jarðabætur, bætur á veiðiám og fiskklak og hefur sumum hverjum tekist allvel að bæta þessar eignir og gera þær verðmætari, vitaskuld fyrir sjálfa sig, en þá einnig í sömu andránni fyrir fólkið sem býr í landinu. Óhugsandi er að við tökum arðinn af starfi þeirra. Í sumum tilfellum hefur þetta ekki eingöngu verið af fé, sem þeir hafa lagt í þetta, heldur einnig af eigin vinnu, ef við tökum arðinn af þessu starfi þeirra bótalaust. Og enn fleiri vandkvæði eru á því, því miður vil ég segja, því að þessi lausn hefði e.t.v. verið nokkuð góð og nokkuð snjöll. En því miður eru enn fleiri vandkvæði á því að við förum þessa leið sem e.t.v. hefði ella talist sæmileg.

Hitt er aftur á móti ljóst, að við gætum á tiltölulega einfaldan hátt, ef fyrir því fengist vilji hér á Alþ., eflt Jarðakaupasjóð svo að hann gerði sveitarfélögunum kleift að neyta forgangsréttar síns þegar þau vilja, þegar eftir slíku er að slægjast.

Ég hygg að sá tími sé e.t.v. ekki mjög langt undan, að við neyðumst til þess, að við verðum til þess knúðir að taka þetta mál, eignarráðin yfir landinu með gögnum þess og gæðum, til mjög ítarlegrar athugunar, og er alveg viss um að fyrst og fremst verða það hagsmunir bændanna sjálfra, hagsmunir landbúnaðarins, sem munu knýja okkur til þess að taka þessi mál til alvarlegrar athugunar. Ég er ekki alveg eins viss um það og ýmsir, sem hér hafa talað, að það sé augljós vilji mikils meiri hluta bænda, eftir að þessi mál hafa verið rædd ítarlega, að halda einkaeignarréttinum á bújörðum fremur en að fá rétt sinn til þeirra tryggðan með járnbentum erfðafestum, vegna þess að vandamál, sem eru nú að rísa vegna þess að hlunnindajarðir fara úr ábúð og farið er að nytja þær til annarra hluta heldur en þeirra sem að búskap lúta, og vandamál, sem stafa af skiptingu jarða til útarfa, og önnur slík vandamál eru farin að kreppa að bændum, farin að kreppa að landbúnaðinum. Og svo er loks þetta, að það kynni að koma í ljós þegar gildandi löggjöf er skoðuð ofan í kjölinn, að einkaeignarrétturinn á landi væri nú þegar lögum samkvæmt háður það mörgum skilyrðum, ef framfylgt væri, að eftir stæði kannske aðeins óskertur rétturinn til að selja landið, til að selja jarðirnar. Og einkaréttur bóndans til þess að selja landið sitt er ekki ákaflega mikils virði að minni hyggju fyrir gengi landbúnaðarins í heild.