17.10.1977
Sameinað þing: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

Umræður utan dagskrár

Albert Guðmundsson:

Forseti. Ég vil fyrst harma það, að hv. 5. þm. Norðurl. e. var svo mildur að ég held að hann hafi ekki gott af því að fara í sumarfrí. Ég þekkti hann ekki fyrir sama mann, er í einhverju góðmennskukasti, mér fannst hann ekki vera sjálfum sér líkur. Ég bjóst við miklu harðari deilu á þá sem hafa staðið að samtölum eða viðræðum við BSRB, þannig að ég held að ríkisstj. geti verið ánægð með það, hún hlýtur að vera á réttri leið í því.

Aftur á móti varð ég hissa og skildi ekki alveg hvað hæstv. utanrrh. var að fara. Við erum í deilu sem er miklu hættulegri og harðari en við gerum okkur grein fyrir. Mér flaug í hug það sem ég var að lesa nýlega í bók, að góðir diplómatar sætu og horfðu á með eyrunum. Það er ýmislegt að gerast í okkar þjóðfélagi sem við getum ekki lokað augunum fyrir.

Áður en ég kem að því, þá vil ég taka undir það sem átti að vera til að slá úr og milda af hv. síðasta ræðumanni, að hér er komið byltingarráð. Það fer ekkert á milli mála. Ef við lesum það fyrsta sem hæstv. forsrh. las upp áðan, með leyfi forseta, þá hljóðar það svo:

„Hinn 11. okt. s.l. ákvað kjaradeilunefnd eftir áskorun formanns BSRB“ — ég endurtek: „eftir áskorun formanns BSRB og formanns Hjúkrunarfélags Íslands“ o.s.frv. Og í lokin segir: „Þrátt fyrir þessa ákvörðun n. loka verkfallsverðir BSRB Hjúkrunarskóla Íslands“ o.s.frv. Sem sagt, þrátt fyrir áskorun formanns samninganefndar — og sama á sér stað með lögregluna, þá fara þessir aðilar eftir byltingarráði sem kallar sig allt öðru nafni, það kallar sig verkfallsverði. Við skulum ekki loka augunum fyrir því, að með þessari þróun er lýðræðið í hættu, og við skulum ekki reyna að breiða yfir það, við skulum ganga út í þá hættu með opnum augum, en ekki hálfblindir. — Þetta er það sem ég vildi segja við hv. síðasta ræðumann.

Hv. 9. þm. Reykv. talaði um að opinberir starfsmenn hefðu mjög verulega, eins og hann orðaði það sjálfur, dregist aftur úr í launakjörum. Ég ætla ekki að mótmæla því. En ég vil að hann sýni það svart á hvítu að svo sé, að það sé rétt. Það hafa aðrir komið að þessu. Hv. 3. landsk. þm. kom að þessu líka og deildi á sama tíma á vinnubrögð ríkisstj. í sambandi við samningaviðræður. Eigum við þá ekki að láta reikna út hvað þeir hafa raunverulega í kaup, ekki bara þá krónutölu sem við erum að bera saman allan tímann, eigum við ekki að vita hvað þeir hafa í hlunnindum og öðru sem hinn frjálsi vinnumarkaður hefur alls ekki? Ég veit ekki til þess að það sé til á hinum frjálsa vinnumarkaði, að menn hafi t.d. greiðslu fyrir ómælda yfirvinnu. Ekki er það í þeim fyrirtækjum, sem ég stjórna, og ekki þeim fyrirtækjum, sem ég þekki til. Ég veit ekki til þess að það sé neitt sérstaklega lagt í orlofsheimilasjóði umfram þær prósentur sem fara í Lífeyrissjóð verslunarmanna að vísu í þeim efnum. Ég veit ekki til þess að skjólstæðingar Alþýðusambands Íslands hafi æviráðningu og þar með sambærileg hlunnindi við opinbera starfsmenn. Það hlýtur að vera hægt að reikna þetta í hlunnindum. Og þessir menn fara í verkfall alveg öruggir, það er ekki hægt að segja þeim upp. En þegar hinn frjálsi markaður fer í verkfall, þá getur atvinnurekandi ráðið hvort hann hefur efni á að halda mönnunum áfram eftir verkfall eða ekki. Þetta er mikill munur. Það hlýtur að vera hægt að reikna þetta til fjár líka.

Lífeyrissjóðurinn er verðtryggður. Hvers virði er það þegar maður er kominn á eftirlaun? Við höfum heyrt hv. 6. landsk. þm. hvað eftir annað lýsa þeim mismun úr þessum ræðustól, svo einhvers virði hlýtur það að vera, því hv. þm., sem hér hafa talað á móti ríkisstj. í þessum kjarasamningum, hafa tekið undir orð hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar.

Þegar talað er um að ríkisstj. hafi ekki staðið rétt að viðræðum við BSRB, þá vil ég mótmæla því, hreinlega mótmæla því, þó að ég sé síst af öllu til þess fallinn að tala máli ríkisstj. En ég er þó einn af þeim almennu útvarps- og sjónvarpshlustendum þessa lands, þegar það fær að vera í gangi. Og ég veit ekki betur en eftir að ráðh. höfðu verið 2–3 nætur samfellt á fundum með samninganefndunum, þá hafi formaður samninganefndar BSRB, formaður BSRB, komið í sjónvarpi og sagt að nú væri kominn tími til þess að tala í alvöru og í hreinskilni. Hvað á þetta að þýða? Rétt áður en upp úr slitnar í samningaviðræðum, þá er viðtal við hann í sjónvarpi. Á lokastundu leyfir hann sér að segja, eftir að ráðh. hafa verið 2–3 sólarhringa samfleytt með þeim, að nú sé kominn tími til þess að þeir fari að tala í alvöru. Er hægt að taka mark á svona mönnum? (Gripið fram í.) Ég var að vitna í formann BSRB.

En sem sagt, ég legg mikla áherslu á að fá sannreynt um þessar fullyrðingar sem hér hafa komið fram frá tveimur hæstv. fyrrv, ráðh., að BSRB-menn séu svona langt á eftir í launum eins og þeir vitja láta í skína, og vil ég þá óska eftir því, að það verði látið reikna út þau hlunnindi sem þeir hafa umfram hinn frjálsa vinnumarkað. Ég hef leitað mér upplýsinga um það, hvort Hagstofan hafi tekið þessi hlunnindi með þegar reiknuð voru út laun og borin saman við frjálsan markað, og þá var svarið neikvætt.

Hitt er svo annað mál, að það væri gaman að fá að vita hvað þarf margar vinnandi hendur verkamanna til þess að standa undir þessari viðbót sem farið er fram á núna, hvað þarf marga á hinum frjálsa vinnumarkaði til að standa undir bara þessum kröfum sem nú er verið að fara fram á til viðbótar og hvernig þjóðfélagið á að standa undir því. Við erum að tala um að reyna að koma í veg fyrir aukna verðbólgu. Það er ekki á þennan hátt sem við gerum það.

Svo segir hv. 5. þm. Norðurl. v,, Ragnar Arnalds, að tíminn sé liðinn, það sé löngu liðin sú tíð að fjmrh. geti sagt: hingað og ekki lengra. Ég fagna því ef ráðh. fara að segja hingað og ekki lengra og fara að stjórna á miklu áhrifaríkari hátt en mér finnst þeir hafa gert hingað til. Það er kominn tími til að einhver slái í borðið og segi: nei, hingað og ekki lengra. En ég ætla þá að bæta við, að sá tími er ekki kominn enn þá að landsmenn almennt og alls ekki BSRB geti sagt: Þetta viljum við fá og ekkert minna. Það er einmitt það sem verið er að gera. Og ég er sannarlega sammála ráðh. þegar hann slær svona í borðið.

En ég vil taka undir það með 7. þm. Reykv., að lögin, sem við erum nýbúnir að samþ., eru meingölluð. Þar erum við alveg sammála. En það er hægt að segja, að fái starfsmenn ríkisins ekki ákveðinn fullan verkfallsrétt á milli samninga, þá sé verið að brjóta á þeim, þá hafi þeir ekki mannréttindi á við aðra. Þeir hafa þegar mannréttindi fram yfir þá sem hv. þm. er talsmaður fyrir. Ég get ekki skilið annað en að við getum verið sammála um það. Það er langt frá því að það sé réttlætanlegt að tala um að þeir hafi ekki mannréttindi.

Ég tel að það sé alvarlegt, og þá kem ég aftur að þessu byltingarráði sem er verkfallsverðirnir, að lögreglan skuli hlýða verkfallsvörðum BSRB, en ekki eiðssvörnum yfirmönnum. Hvað er að ske hér í þjóðfélaginu ef þetta er ekki angi af byltingu? við höfum verið að taka inn í smáskömmtum hér á Alþ. og víðar frá kommúnistum, hvort sem þeir klæða sig í nafni Alþýðubandalagsins eða annarra, og nú er komið að því, að þessir smáskammtar fari að ganga upp í eina heild. Við ráðum ekki við þjóðfélagið með þessu áframhaldi. Svo ætla menn að fara að loka augunum fyrir þessari staðreynd. Við skulum a.m.k ganga út í það hyldýpi vandræða, sem því gætu fylgt, með opin augu. Ef menn vilja það, þá getur Alþ. haldið áfram að sofa. Ef þeir vilja það ekki þá vil ég gera tilraun til þess að bæta fyrir þau mistök sem urðu þegar þessi verkfallsréttur var samþ.

En ég vil líka að það komi hér fram, að samþykkt mín var byggð á reynslu, þ.e.a.s. á þessum verkfallsrétti. Hún var byggð á reynslu minni af löngu samstarfi við starfsmenn og forustumenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Það eru samtök, sem ég átti við þá, sem urðu til þess að ég samþ. að veita þennan verkfallsrétt. Og ég taldi þá kjaradeilunefnd þann öryggisventil sem þurfti til að valdhafar, þ.e.a.s. ríkisstj., hverju sinni yrðu ekki beittir neinum fantabrögðum eða fantatökum og yrði aldrei mögulegt að taka kverkatökum.

Nú hefur það aftur á móti sýnt sig, að verkfallsrétturinn hefur verið misnotaður og ákvarðanir kjaradeilunefndar brotnar eða jafnvel breytt með einhliða ákvörðun verkfallsnefndar BSRB. Það tel ég mjög alvarlegt mál, eins og hér hefur komið fram hjá fleirum sem hafa tekið til máls. Það stóð aldrei til í mínum huga að lögum yrði beitt á þann hátt. Ég tel því rétt að þessi lög verði tekin til endurskoðunar og verkfallsréttur BSRB og þeim verði þá breytt á þá leið sem réttlætanlegt er að mati Alþ. að fenginni þessari reynslu, þannig að þau geti aldrei orðið til þess, hvorki að BSRB né aðrir hópar geti tekið ríkisstj. þeim kverkatökum sem hún er nú tekin og þjóðfélagið allt er tekið nú í dag. Og mér er óhætt að bæta við, að það verði alltaf og ávallt starfandi samninganefndir, en ekki byltingarráð, þegar kjaradeilur eru á annað borð uppi. Hvað kallið þið það annað, sem Morgunblaðið gat réttilega um í gær, þegar hópur erlendra manna er kyrrsettur hér, kemst ekki í burtu, og þegar þeir sækja um að komast í burtu, þá skuli verkfallsnefnd, byltingarráðið, svara því til: Nei, það er gott fyrir okkur að halda þessum hóp hér vegna þess að það flýtir fyrir lausn á verkfallinu sem við erum í? En svo ákváðu þeir að sleppa þeim, mér er sagt að það hafi verið gert í gær. Sem sagt, þeir voru ekki lengur sjálfir vissir um að þeir væru að gera rétt með því að halda þessum útlendingum hér sem verslunarvöru á innanlandsmarkaði.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu. Ég vona að ég eigi eftir að sjá þann dag og það áður en þessu þingi lýkur, að lögin, sem veitt hafa þennan verkfallsrétt BSRB til handa, verði endurskoðuð og lagfærð.