17.11.1977
Sameinað þing: 19. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 738 í B-deild Alþingistíðinda. (510)

54. mál, tónmenntafræðsla í grunnskóla

Flm. (Sigurlaug Bjarnadóttir):

Herra forseti. Á þskj. 59 berum við 6 þm. fram till. til þál. um tónmenntafræðslu í grunnskóla. Þeir eru, auk mín, Friðjón Þórðarson, Tómas Árnason, Sighvatur Björgvinsson, Jónas Árnason og Magnús T. Ólafsson. Þessi till. er hér endurflutt. Hún var borin fram í Nd. í fyrra, á síðasta þingi, en náði ekki fram að ganga, þurfti að fara í gegnum báðar deildir og dagaði uppi á síðasta degi eða réttara sagt síðustu nótt þingsins í fyrravor, er þingi lauk, illu heilli, því að þessi till, hafði fengið mjög jákvæðar undirtektir hér á hv. Alþ. Enn fremur höfðu borist um hana jákvæðar umsagnir frá Skólastjórafélagi Íslands og Félagi ísl. tónmenntakennara. Till. í því formi, sem hún er nú, verður hér lesin upp, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj., að hún hlutist til um að hafinn verði nú þegar af hálfu menntmrn. skipulegur undirbúningur að tónmenntafræðslu í formi námskeiða eða farkennslu í þeim grunnskólum landsins, þar sem engin slík fræðsla er veitt nú og verður ekki við komið með venjulegum lögbundnum hætti. Áhersla verði lögð á að tengja starf tónlistarskóla, þar sem þeir eru fyrir hendi, við tónmenntafræðslu grunnskólanna.

Þá verði og tónmenntafræðsla felld sem valgrein inn í nám kennaraefna við Kennaraháskóla Íslands til viðbótar námskjarna.“

Ég gerði allítarlega grein fyrir þessari till., er við bárum hana fram í fyrra, og þarf því ekki að hafa langt mál um hana nú. Ég vil þó vekja sérstaka athygli á þeirri viðbót sem nú er komin inn í till. í niðurlagi hennar, en það er sú mgr. sem víkur að því að tónmenntafræðsla verði felld sem valgrein inn í nám kennaraefna við Kennaraháskóla Íslands til viðbótar námskjarna. Sannleikurinn er sá, að það ömurlega ástand, sem ríkir í þessum málefnum innan grunnskólans í dag, á ekki hvað síst rætur að rekja til kennaraskorts í tónmennt. Það er ákaflega hæg framleiðsla svokallaðra tónmenntakennara frá tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík. Frá því að hún tók til starfa árið 1959 hefur hún útskrifað aðeins 70 kennara, og starfandi tónmenntakennarar við grunnskríla alla á landinu munu nú um 10–80 talsins, en grunnskólarnir eru hins vegar um 225. Í grg. kemur fram, að af þessum 225 grunnskólum á öllu landinu eru 60 skólar, sem veita ekki neina tónmenntafræðslu, og þar að auki allmargir til viðbótar, þar sem þessari fræðslu er mjög svo ábótavant og varla nema nafnið tómt. Ég hygg að þarna verðum við að gera átak til úrbóta, og ég sé ekki aðra leið vænlegri heldur en einmitt þessa, að stuðla að því að framleiðsla tónmenntakennara aukist allverulega frá því sem nú er.

Eins og ástandið er í dag er að vísu tónmenntafræðsla veitt kennaraefnum í Kennaraháskóla Íslands, en þessi fræðsla er mjög af skornum skammti. Kennaraefnin fá tónlistarfræðslu í námskjarna tvær vikustundir í eitt ár. Auk þess eiga þeir að vísu kost á einhverju þar til viðbótar á öðru og þriðja ári, þeir sem áhugasamastir eru. Við flm. teljum að ef þessari fræðslu kennaraefna væri komið í fastara form og þeir ættu völ á fastmótaðri kennslu sem valgrein samkv. námsskrá, þá mundu mun fleiri kennaraefni laðast að þessari námsgrein og þar með mundi tónlistarvandi grunnskólanna leysast a.m.k. að nokkru leyti.

Það þarf ekki að taka það fram að þessir 60 skólar, sem fara algerlega á mis við tónmenntafræðslu, eru auðvitað skólarnir útí í dreifbýlinu. Það eru heilar sýslur á Íslandi í dag þar sem grunnskólarnir veita í engum skólanum neina fræðslu á þessu sviði. Og sannleikurinn er sá, að síðan gamla söngkennaradeild Kennaraskólans lagðist niður hefur þessum málum hrakað stórlega. Þeim hefur hrakað að því leyti einnig, að hvað sem reglulegri tónmenntafræðslu líður, þá hefur almennur söngur í skólum landsins þagnað. Það má segja að svo sé, og það er mjög slæmt. Við verðum að reyna að bæta þar úr og glæða fyrst og fremst sönginn og einnig almennan áhuga á tónmennt og söngmennt.

Það hefur verið talað mikið um Sinfóníuhljómsveit Íslands hér að undanförnu, og fyrir Alþ. liggur frv. til l. um hljómsveitina til þess að skapa henni öruggari starfsgrundvöll en verið hefur. Með stofnun Sinfóníuhljómsveitar var stigið stórkostlegt skref í tónlistarmálum Íslendinga. Ég minnist þess persónulega, að þegar ég að loknu námi úti í Evrópu kom heim og hafði vanist þar ýmsu góðmeti á tónlistarsviðinu með gamalgrónum menningarþjóðum Evrópu, þá tók ég fagnandi þeirri ákvörðun að við — sjálfsagt af veikum mætti — stofnuðum Sinfóníuhljómsveit. En ég man að ég sagði þá líka að það gagnaði lítt yfirleitt að byrja bygginguna ofan frá. Við verðum að byrja á því að leggja grunninn. Og það er þessi grunnur undir almennri músík og söngmennt í landinu sem okkur vantar tilfinnanlega í dag. Sinfóníuhljómsveitin á fullan rétt á sér og okkur ber skylda til að búa sómasamlega að henni, viljum við teljast gjaldgeng menningarþjóð á nútímavísu. En við megum ómögulega gleyma börnunum í skólunum, að gefa þeim kost á að glæða tónmenntasmekk sinn, áhuga og hæfileika. Því er að mínu mati mjög brýnt að þarna verði ekki látið sitja við orðin tóm.

Ég vænti þess, að þessi till. fái nú góða afgreiðslu og að ekki dragist öllu lengur að gera alveg sérstakar ráðstafanir í þeim skólum landsins sem verst eru settir að þessu leyti. Í fjárlagafrv. fyrir árið 19;8 sé ég að veittar eru 252.6 millj, til tónlistarfræðslu utan grunnskólans. Þetta er ekki óveruleg upphæð, og ég fagna því að þarna hefur verið litið til tónmenntafræðslunnar, þó að hún að allt of litlu leyti komi okkar skyldunámsskólum til góða. Sannleikurinn er sá, að þessi allverulega upphæð rennur fyrst og fremst til hinna sérhæfðu tónlistarskóla í landinu, en alþm., sem hér eru, mun kunnugt um að árið 1975 voru samþykkt á Alþ. lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, Þar er kveðið svo á, að ríki og sveitarfélög greiði til hálfs hvort fyrir sig launakostnað skólastjóra og kennara við tónlistarskóla. Þetta er mjög mikilsverður stuðningur við tónlistarlíf í landinu, á því er enginn vafi. En illu heilli verður það að viðurkennast, að þessi ágætu lög og þetta framfaraspor, sem hér er stigið í átt til aukinnar tónmenntafræðslu þjóðarinnar, hefur orðið til þess í sumum tilvitum að söng- og tónlistarfræðsla í hinum almenna grunnskóla hefur hreinlega lagst niður. Þeir fáu kennarar, sem útskrifast frá tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans fara allir í tónlistarskólana. Þar er kennslan meira við þeirra hæfi, við hæfi þeirra sérmenntunar, og tengsl þessara nýju tónlistarskóla margra hverra hafa alls ekki orðið sem skyldi við almenna skólann. Þess vegna vil ég einnig leggja áherslu á þá mgr. till. þar sem lagt er til að sérstök áhersla verði lögð á að tengja starf tónlistarskóla, þar sem þeir eru fyrir hendi, við tónmenntafræðslu grunnskólanna.

Þessi skortur og þessi vanræksla í tónmenntafræðslu skóla, sérstaklega dreifbýlisskólanna úti á landi, er svo sem ekki einsdæmi að því er varðar þann skarða hlut sem fólk úti á landsbyggðinni verður oft og tíðum að búa við. Þetta nær líka til ýmiss konar sérkennslugreina, sem svo eru kallaðar, eins og t.d. leikfimi, myndlist og teikning. Það eru fleiri skólar, að ég hygg, en við gerum okkur grein fyrir þar sem allar þessar greinar, sem ekki tilheyra beint hinum hefðbundna bóklega kjarna, eru algerlega hafðar út undan. Og það er engin furða þó að fólk uni því illa að það vegna búsetu sinnar þurfi að hlíta þessari vanrækslu í menntun skólanna til handa börnum þess. Þetta er því frá öllum hliðum skoðað brýnt mál að verði tekið til athugunar- og ekki látið við það sitja, heldur þarf framkvæmdir á þessu sviði sem allra fyrst.

Ég þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð. Ég vildi mælast til þess, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til allshn. þar sem menntun. er engin til í Sþ. Ég vænti þess, að þar fái þessi till. okkar sexmenninganna þær undirtektir sem ég tel hana verðskulda.