17.11.1977
Sameinað þing: 19. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (511)

54. mál, tónmenntafræðsla í grunnskóla

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Hv. 1. flm, þessarar till, hefur lýst því ástandi sem nú er í þessum málum og alveg sérstaklega úti á landsbyggðinni og þar er síst ofsagt, Það er af mörgum samverkandi ástæðum sem tónmenntun hefur orðið útundan í skólunum. Það er rétt, sem kom fram í máli hv. flm., aðalástæðan hefur verið skortur á hæfum starfskröftum eða þeim starfskröftum sem hafa viljað sinna þessari kennslu. Einnig er auðvitað um að ræða áhugaleysi sums staðar. Það er viss skoðun, sem maður hefur orðið var við, um litla þýðingu þessa hjá þeim sem stjórna skólamálum sums staðar heima í héraði, ekki þó hjá skólamönnunum sjálfum, heldur hjá ýmsum þeim sem þar ráða ferðinni, t.d. fjárhagslega séð. Vanmat á þessum þætti í uppeldismálum almennt hefur verið ríkjandi um of. En það er ekki síður hitt, að viss vanmáttarkennd hefur sagt til sín hjá kennurum yfirleitt. Þá á ég ekki við varðandi söngkennslu, heldur það að kennarar hafa minnkað það mjög og dregið mjög úr því að láta börnin syngja frjálst og óþvingað í kennslustundunum, ekki talið sig færa um það. Ég veit að frjáls söngur í byrjun og lok hverrar kennslustundar t.d. er sannarlega til góðs, ekki aðeins söngsins vegna, heldur er hér um miklu þýðingarmeiri þátt að ræða í kennslunni sjálfri og þeim anda sem þarf að ríkja milli kennara og nemenda.

Ég sagði að um sumt mætti rekja til áhugaleysis hve almennum söng hefur aftur farið, en einnig það, hve áberandi það hefur verið að slíkur söngur sem ég var að lýsa áðan hefur ekki átt upp á pallborðið hjá þeim sem best hafa þóst vita og mesta kunnáttu hafa í tónmennt — hjá ýmsum þeim, væri nær að segja, vegna þess að þarna eiga ekki allir óskiptan hlut að. Það hefur sem sé ekki þótt nógu fínt eða gott að syngja þannig í hóp í skólastofunni. Þar syngur að vísu hver með sínu nefi, en það er mín skoðun að söngurinn eigi ekki að vera í rammar viðjar bundinn og á það mætti einnig benda þegar um söng- og tónmennt er rætt og það hve vanræktur þáttur hér er á ferð. En nóg um það.

Ég hef af því nokkra reynslu sjálfur hvernig það gekk til að fá einhvern söng inn í þann skóla sem ég stjórnaði á sínum tíma. Það var vægast sagt erfitt þó eftir væri leitað með öllum ráðum. Aðalviðbára þeirra, sem annast gátu undirleik t.d., var sú, að þeir kynnu ekki að kenna söng, og það var rétt, Ef unnt reyndist að fá þá til starfs, þó ekki væru þeir til þess sérstaklega menntaðir, þá ríkti mikil sönggleði í hvívetna og ég taldi mikið með því fengið. En því er ekki að neita, að þær raddir heyrðust á mínum heimastað að hér væri ekki nógu vel að staðið, þetta væri svo ófullkomið, svo lélegt, að það væri kannske betra að sleppa því alveg. Þetta kom mér ekki á óvart, en olli auðvitað vonbrigðum, þegar það kom líka til að einmitt þetta umtal margra kom í veg fyrir að þessir annars ágætu menn héldu áfram því merkilega starfi sem þeir voru byrjaðir á. Hitt hefur komið mér meira á óvart, þegar nú eru komnir færir starfskraftar við góðan tónlistarskóla — ég hygg mjög góðan tónlistarskóla á mínum heimastað, þá vekur það athygli mína hve söngkennsla er litill þáttur þar og það ern aðeins yngstu börnin sem þar eru í söngnámi, að ég best veit. Ég skal ekki segja hvort þetta er vegna annríkis þessara kennara varðandi almenna tónlistarkennslu eða kennslu í hljóðfæraleik, en svo mikið er vist, að söngkennslan í grunnskólunum er ansi lítið meiri en þegar ég var að basla við að fá þá viðvaninga, sem ég fékk í þessum efnum, til þess að kenna söng eða láta börnin syngja, svo ég orði það réttilega.

Það er því sannarlega tími til kominn að samhæfa betur tónlistarskólana og kennsluna í grunnskólunum, eins og þessi till. gerir ráð fyrir. En það er án efa þungur róður svo sem allar úrbætur í þessu efni. 1957 flutti ég hér till. um farandkennslu í söng. Ég sá þá vart aðra leið til þess að einhver söngur kæmist inn í þá allt of mörgu skóla sem engan höfðu. Og ég hygg nú að þrátt fyrir ljótan lestur, sem yfir okkur var lesinn áðan um það hve margir skólar hafa enga söngkennslu, þá hafi þó verið þá um enn fleiri skóla að ræða sem ekki höfðu söngkennslu á sinni stundarskrá, Þessi till. var einróma samþ. En ekkert var aðhafst. E.t.v. hefur það verið vegna þess, að það hefur ekki verið um neina menn að ræða til starfans, e.t.v. enginn til þess fundist þó fær hefði verið, en e.t.v. hefur þessu bara verið stungið niður í skúffu og gleymst þar. Hér var þó og er, held ég, enn um leið að ræða sem athuga ber, og ég sé að í grg. till. er að þessu vikið réttilega. (Gripið fram í: Í sjálfri tillögunni.) Já, fyrirgefið, í sjálfri till. einnig. Athugandi væri a.m.k., þar sem ástandið er verst, að dusta rykið af þessari 20 ára samþykkt Alþ. um farkennslu í söng jafnhliða því sem þessi till. yrði samþ.

Ég hef einnig flutt hér á þingi og verið samþ. till. sem gengur að nokkru leyti í sömu átt og þessi till. Sú till. mun hafa komið allnokkuð til umr, í Nd. í fyrra og var það ágætt, því full þörf var á að vekja athygli á þessari ótvíræðu samþykkt Alþ. þegar svipað mál kom til umr. á ný í þingsölum. Það má segja að samþykktin sé orðin það gömul, að ég hefði að sjálfsögðu átt að spyrjast fyrir um framkvæmd hennar strax á síðasta þingi, e.t.v. fyrr, en ég vissi sem var, að ekki hafði orðið mikið úr framkvæmdum á þeim atriðum sem máli skipta og hér eru að nokkru ítrekuð.

Ég undirstrika alveg sérstaklega hér og nú nauðsyn þess að samræma kennslu í grunnskólum starfi tónlistarskólanna þar sem þeir starfa, og rannar er það ótækt með öllu að þar skuli ekki vera náin og lífandi tengsl, en þar munu dæmi, því miður, um hið gagnstæða. En svo vantar auðvitað líka víða tónlistarfélög og skóla þeim tilheyrandi, og þar þarf enn meira átak til. Ég tek því heils hugar undir þessa till., því hver veit nema sá margraddaði kór, sem stendur að þessari till., megni meira en minn sólósöngur áður.

Að hinu aðalatriði till. minnar, sem samþ. var, vil ég hins vegar víkja örlítið fyrst þetta mál er hér komið á dagskrá, en þar á ég við þá grein, sem svo hljóðaði, með leyfi hæstv. forseta:

„M.a. skal starf hinna einstöku tónlistarskóla samræmt skyldunáminu og almenn tónlistakennsla skipulögð þar sem engin er nú.“ Og síðan sagði:

„Skal að því stefnt að færa undirstöðukennslu í hljóðfæraleik inn í alla skyldunámsskóla nemendum að kostnaðarlausu. Við þessar aðgerðir, svo og aðrar, sem nauðsynlegar reynast, skal stuðst við álit tónmenntunarnefndar menntmrn. frá 30. ágúst 1972.“

Þar er um mjög gagnmerkt plagg að ræða. Að vísu er þar kannske um of að ræða framtíðarmúsík í þessum efnum, en mörg atriði eru þar verð íhugunar nú þegar og væri áreiðanlega hægt að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd. Hér er um mjög merkt álit að ræða.

Tónlistarskólar eru góðir, en þeir eru líka dýrir, engu síður þó til komi stuðningur ríkis og sveitarfélaga auk áhugastarfsins sem alltaf er mikið í kringum þessa skóla, þó er annað enn tilfinnanlegra fyrir nemendurna, en það eru hljóðfærin sem þeir þurfa að afla sér oft og tíðum og eru fokdýr og mörgum í raun ókleift að ráðast í það fyrirtæki. Þétta er ekki hvað síst alvarlegt þegar kennarar þessara tónlistarskóla eru svo fullkomnir að þeir beinlínis ráðleggja nemendum sínum að kaupa miklu dýrari hljóðfæri en þörf er á, og þar hef ég auðvitað fyrir mér orð mér miklu vísari manna í þessum efnum.

Undirstöðuatriði tónlistarfræðslu á að fella inn í námskerfi okkar, enda beinlínis að því stefnt með grunnskólalögum þó enn sé ekki ljóst við hvaða mörk verði þar miðað. En það er auðvitað svo með þau góðu lög, að þar er margt enn ógert og þarf auðvitað mikið fjármagn til að koma öllu því í verk, sem þar er lagt til. Þar þarf í þessu sambandi líka til að koma námsskrá sem ég veit ekki heldur til að sett hafi verið varðandi þessa námsgrein sérstaklega.

Ég vísaði til hins ágæta álits tónamenntanefndar, Þó að þar hafi, eins og ég sagði, verið gengið mjög langt í ýmsum efnum og til lengri framtíðar horft, þá eru einstök atriði þar mjög einföld í framkvæmd og sjálfsagt að láta reyna á þau. Og mér er eiginlega illskiljanlegt að menntmrn. skuli ekki hafa látið reyna á þau atriði, tekið þau atriði út úr, sem þar eru einföldust, og látið reyna á hvort ekki mætti framkvæma þau. Það er einmitt atriði sem komið er inn á í þeirri þáltill., sem hér er til umræðu, og gætu að hluta til a.m.k. leyst þann vanda sem hún lýtur sérstaklega að.

Ég get hins vegar ekki lokið máli mínu án þess að leggja höfuðáherslu á það, að efla þarf almennan frjálsan söng og söngiðkun sem allra mest í skólunum, og það einnig, að söngkennsluna má ekki reyra í of fastar viðjar, svo sem oft hefur verið þegar stökkið hefur verið tekið úr algeru söngleysi eða söngkennsluleysi og yfir í svo hámenntaða söngkennslu að engu lagi hefur verið líkt.

Mér er enn minnisstæð söngkennsla frá bernskuárum þegar fáir útvaldir fengu að vera í söngtíma og þar með í skólakórnum sem söng á árshátíðum skólans. Það er áreiðanlega ekki ætlun neins okkar að þannig verði að staðið. Ég man eftir því, að sama var uppi á teningnum þegar ég var í landsprófi og var auðvitað vísað frá söng vegna radd- og lagleysis ásamt meginhluta strákanna. Sumum þótti að vísu mjög gott að sleppa, en ég held að fleirum hafi farið eins og mér, að sárna þetta verulega, og afleiðingin var sú að lengi á eftir þorði ég ekki að reka upp bofs. Það kynni kannske einhver að segja að ekki hefði nú verið skaði skeður, en engu að síður voru viðbrögð mín þessi, og þessi ákvörðun varð mér til mikilla persónulegra sárinda, því ég hafði sjálfur yndi af söng og trúði því meira að segja í þokkabót að ég gæti sungið. En trúa mín er þó sú, að öðruvísi eigi að efla söngmennt og söngáhuga en með slíku úrtaki eða úrvali, og að því veit ég að þessi till. stefnir, að söngurinn verði sameign sem allra flestra, helst allra, og því styð ég till, eindregið og vona að samþykkt hennar verði hvati þeirra framkvæmda sem dugi.