22.11.1977
Sameinað þing: 21. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (531)
314. mál, laun forstjóra ríkisfyrirtækja
Fyrirspyrjandi (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Ég bar fram þessar fsp. fyrir býsna löngu, en svo bar til að á liðnum vikum hefur hæstv. fjmrh. verið allmjög önnum kafinn og það er ekki fyrr en í dag að hann fann til þess tóm að svara þessum fsp. mínum, sem eru svo hljóðandi:
„Hver eru laun eftirtalinna forstjóra: a) Íslenska járnblendifélagsins? b) Kísiliðjunnar? c) Sementsverksmiðjunnar? d) Áburðarverksmiðjunnar?“ Og síðan í framhaldi: „Njóta forstjórar þessara fyrirtækja nokkurs konar launabóta í tengslum við afkomu fyrirtækjanna, framleiðslumagn eða afurðasölu? Hver eru hlunnindi forstjóranna ofan á launagreiðslur?“
Þessar fsp. bar ég raunar fram í beinum tengslum við fsp. varðandi ákveðin fríðindi ráðh. og bankastjóra og um það er lauk einnig fríðindi svonefndra kommissara eða forstjóra Framkvæmdastofnunar ríkisins umfram aðra landsmenn í formi tollfrelsis. Síðan er, eins og ég sagði, liðinn býsna langur tími, en ég ætlaðist til þess að milli þeirra fsp. og þessara fsp. og milli svaranna við þessum fsp, gæti orðið nokkurt samhengi.
Í svörum ráðh. við hinum fyrri fsp. kom fram að ráðh. fá ofan á hæstu laun tollfrjálsa bíla á þriggja ára fresti og auka tekjur sínar allmjög með þeim hætti, en undirstrikað skal rækilega nú þegar að þetta er vissulega lögum samkv. Þetta er gert í samræmi við gildandi lög, og kemur þá sem sagt til álita að breyta þeim lögum á einhvern hátt, ef hv. alþm. eru þeirrar skoðunar að slíkt sé við hæfi að athuguðu máli. Í svörunum kom einnig fram að bankastjórar og þingkjörnir forstjórar Framkvæmdastofnunar ríkisins hafa tekið sér sömu fríðindi með samþykki aðila sem alls ekki hafa vald til þess að breyta lögum. Athugun sýnir að þessa tekjuaukningu telja þeir ekki fram til skatts og sleppa með það, en þetta samsvarar því að þeir hafi undanþegið sjálfa sig lögákveðnum tollgreiðslum af bílum. Ég vil ekki gefa þessu uppátæki þeirra nein nöfn, en hygg þó að slík gætu fundist í orðabókum. Þau eru a.m.k. tiltæk þegar sjómenn eru staðnir að því að koma inn í landið varningi sér til hagsbótar, en þeir hafa náttúrlega ekki aðstöðu til þess eða klókindi að undirbúa verknaðinn félagslega á sama hátt. En sleppum því.
Ég vek aðeins athygli á því, að fsp. sú, sem hér liggur nú fyrir á dagskrá um launakjör og önnur fríðindi nokkurra forstjóra, sem eru á launaskrá hjá ríkinu beint eða óbeint, var borin fram í tengslum við fsp. sem þegar hefur verið svarað varðandi bifreiðafríðindi ráðh., bankastjóra o.fl. Þær voru bornar fram, meðan enn stóð verkfall opinherra starfsmanna, í því skyni að varpa ljósi á ýmis dálítið myrkvuð atriði varðandi launamismun í kerfi hins opinbera. Og nú vil ég, svo sem fyrr segir, ekki gefa afbrigðilegum bílainnflutningi bankastjóra eða forstjóra Framkvæmdastofnunarinnar nein nöfn, heldur láta nægja í sambandi við fsp. um kjör forstjóranna, sem hér um ræðir, að vilna í sömu ljóðlinu og ráðuneytisstjóri fjmrn. nú í haust, sá sem nú er tekinn við forstjórastarfi málmblendifélagsins: „Margur ágirnist meira en þarf," sagði ráðuneytisstjórinn.
Ég vil vænta þess, að svör hæstv. fjmrh. við fsp, þessum leiði í ljós að þurftarmælikvarðinn úr fjmrn. á réttlæti í launagreiðslum gildi jafnt um alla starfsmenn hins opinbera og helst af öllu jafnt um alla þegna lýðveldisins.