22.11.1977
Sameinað þing: 21. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (533)
314. mál, laun forstjóra ríkisfyrirtækja
Fyrirspyrjandi (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, og fór þó illa, því að ég hafði vænst þess að ráðh. gæti svarað þessum spurningum mínum ítarlegar en hann gerði. Samt er það mála sannast, að hann svaraði eins og efni stóðu til. Ég ætlaðist að vísu ekki til þess, að ráðh. útskýrði nákvæmlega að þessu sinni hví forstjórar ríkisstofnana þurfa samkvæmt spakmælinu úr húsganginum gamla í fjmrn. margfalt hærri laun en undirmenn þeirra. Ég hafði gert mér vonir um að hann yrði þess umkominn að greina okkur frá því, eins og í spurningunni stendur, hver launakjör þessara forstjóra allra fjögurra væru. Nú hefðu að vísu átt að vera hæg heimatökin varðandi forstjóra Járnblendifélagsins, sem var a.m.k. er fsp. mín var borin fram í senn ráðuneytisstjóri fjmrn. og forstjóri Járnblendifélagsins, og hefði e.t.v. legið beint við að spyrja hann að þessu, því að vissulega varðar það nokkuð fjármál ríkisins hver laun forstjórans eru.
Ég tel með tilliti til þeirra umr. sem fóru fram um laun opinberra starfsmanna s.l. haust, og raunar landsmanna allra, og það í nafni hæstv. fjmrh., því það var sem starfsmaður hæstv. fjmrh. sem nefndur ráðuneytisstjóri í fjmrn. skrifaði margfræga grein í Morgunblaðið þar sem upphaf og uppistaða og ívaf var þessi gamla ljóðlina úr húsganginum við Breiðafjörð: „Margur ágirnist meira en þarf“ — þess vegna hefði ég talið að það lægi beint við, vegna þess að þessi mál varða hag ríkisins og kjaramálin í landinu yfirleitt, að hæstv. ráðh. hefði nú spurt þennan starfsmann sinn að því: „Hvað fáið þér í laun hæstv. ráðuneytisstjóri í nýja djobbinu?“ Og það hefði verið hægt að ætlast til þess að ráðuneytisstjórinn hefði svarað spurningunni. Ætla ég að við höfum ástæðu til þess að geta okkur til um það, að ef það reyndist nú svo að þessi ágæti embættismaður hefði meiri laun en hann þyrfti, þá væri honum það þvert um geð. Það væri raunar verðugt verkefni fyrir sérstaka áhugamenn um íslenska tungu og skáldskap hér í þinginu, þó forsprakki þeirra sé að vísu fjarverandi, að grafast fyrir um uppruna þessarar vísu, þó ekki finnist nú fyrir í henni z. Ég lærði hana sem húsgang sem barn fyrir austan. (Forseti hringir.) Herra forseti. Ég verð með tilliti til þess, að ég notaði mjög skamman ræðutíma á sínum tíma þegar hinar fyrri spurningar voru til umr. hér, í því skjóli að ég fengi svör við þessari, þá verð ég að mælast til þess að fá að ljúka máli mínu í tengslum við þær að þessu sinni, mun ekki fara fram yfir samanlagðan tíma.
Ég lærði sem sagt þennan forna húsgang, ortan við Breiðafjörð, þegar ég var barn austur á landi, en hafði gleymt honum þegar ég heyrði Jón Sigurðsson hagsýslustjóra fara með hann í sjónvarp í fyrra. Síðan var hann rifjaður aftur upp fyrir mér af Jóni Sigurðssyni ráðuneytisstjóra í fjmrn, nú í haust og virðist hann vera orðinn mottó fjmrn.
Eftir kveðandinni að dæma gæti maður ímyndað sér að þessi húsgangur væri ortur á dögum Hallgríms Péturssonar, og líklega hafa það verið þessi líkindi með kveðskap Hallgríms sem gerðu það að verkum að annar húsgangur eftir Hallgrím Pétursson rifjaðist upp fyrir mér í sambandi við þessa fsp. mína. Húsgangur þessi eftir Hallgrím, sem ég lærði sem barn, er í tengslum við eina af þjóðsögunum um hann þegar hann var við járnsmíðanám í Kaupmannahöfn og kom þar að sem þjófur var hýddur. (Forseti: Ég vil leyfa mér að minna hv, þm. á að þetta málefni tilheyrir ekki fsp. og hann hefur þegar lokið sínum ræðutíma). Þetta málefni tilheyrir fsp. vissulega, og herra forseti mun komast að niðurstöðu um það áður en lýkur, eftir andartak. Þjófurinn barst illa af við refsinguna, tólf vandarhögg, og grét eftir að hann hafði meðtekið þrjú. Og þá orti Hallgrímur:
„Örlæti heims má eigi skilja,
þó yrki ég um svo látandi,
ýmsir fá miklu meira en þeir vilja
og meðtaka laun sín grátandi.“
Sem sagt, ég þakka hæstv. ráðh. fyrir að gefa í skyn að e.t.v. fáum við síðar svör um laun þessara forstjóra sem hann greindi ekki frá hér, ef takast mætti að knýja stjórnir þessara fyrirtækja, þar sem íslenska ríkið á meiri hluta, til svara um þessi mál. En ég mun sennilega ásamt fleiri þm. bera fram þáltill. á þá lund, að fríðindi háttsettra embættismanna í því formi, sem nú tíðkast, verði afnumin og launakjörum þeirra komið á hreint, og þá ekkert síður þeirra manna sem Alþ. kýs til þess að sýsla um opinbera sjóði. Og sér í lagi mun ég svo bera fram að nýju till., sem áður hefur verið lögð hér fram í Sþ„ um að ekki skuli goldin hærri laun hér á landi en sem samsvarar tvöföldum verkamannalaunum miðað við 8 stunda vinnudag.