23.11.1977
Efri deild: 17. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (554)

89. mál, gleraugnafræðingar og sjónfræðingar

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég ætla af skiljanlegum ástæðum ekki að ræða sjálft efni þessa frv., sem ég hef þó grun um að horfi til mikilla bóta. Um það verður náttúrlega fjallað í n. sem ég á ekki sæti í. En það er eitt atriði sem ég vildi gera smáathugasemd við eða öllu heldur bera fram fyrirspurn út af. Það er út af heitinu sjónfræðingur. Það er þegar orðið ljóst fyrri nokkru, að við höfum lent í vandræðum með fjölda nýyrða með þessum fræðingsbotni. Ég er ekki reiðubúinn að gera aðra till., en ég vildi að við hugleiddum þann möguleika að brjótast út úr þessari fræðingakví, sem við erum komnir í. með nýyrði, heiti á starfsgreinum. Hér tekur eitt orðið enn til skynjana. Við getum náttúrlega endað með og ekkert ósennilegt að við fáum þá heyrnfræðing líka og lyktfræðing, smekkfræðing, og hugsanlega kæmi til fræðigrein sem fjallaði um skynfærin öll og við stæðum þá uppi með skynfræðing. Ég held að hér sé um að ræða villandi heiti og ákaflega vandræðalegt og vildi gjarnan að það yrði athugað mjög vandlega í n., hvort við gætum ekki í þessu tilfelli sloppið fyrir þetta hættulega horn.