23.11.1977
Efri deild: 17. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (563)

91. mál, matvælarannsóknir ríkisins

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Frv. það, sem ég fylgi hér úr hlaði um matvælarannsóknir ríkisins, er samið í heilbr: og trmrn., og er hér um nýsmiði að ræða. Tildrög þessa frv, eru þau, að á öndverðu árinu 1976 tók til starfa á vegum heilbr.- og trmrn. stofnun sem nefnd hefur verið Matvælarannsóknir ríkisins. Stofnun þessari var komið á fót af brýnni nauðsyn, þar sem þeir aðilar, sem annast höfðu gerlafræðilegar rannsóknir í matvælum, sáu sér ekki fært að annast þær rannsóknir lengur, enda var um hreinar sérrannsóknir að ræða sem þeir urðu að annast sem viðbótarverkefni. Áður en til stofnunar Matvælarannsókna ríkisins kom kannaði rn, hvort nokkur þeirra rannsóknastofnana, sem fyrir voru í landinu eða fyrirhugaðar voru gæti tekið að sér slíkar matvælarannsóknir, og reyndust allar ófáanlegar til slíks. Það var Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins sem aðallega sá um framkvæmd slíkra rannsókna, og stjórnaði dr. Sigurður Pétursson gerlafræðingur þeim.

Áður en lengra er haldið er ekki úr vegi að víkja aðeins að sögu matvælarannsókna hér á landi.

Skipulegu matvælaeftirliti var komið á fót hér með lögum frá 1936, um eftirlit með matvæl. um og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum. Samkv. þeim lögum höfðu lögreglustjórar með að. stoð héraðslækna, heilbrigðisnefnda og tollvörslumanna almennt eftirlit með framkvæmd laganna, Auk þess var ráðh. heimilt, ef nauðsyn bar til, að fela sérstökum eiðsvörnum kunnáttumönnum eða opinberum stofnunum, sem höfðu á að skipa kunnáttumönnum, einstakar greinar eftirlitsins og jafnvel stjórn þess í heild. Var ráðh, veitt þessi heimild, þar sem sýnt þótti að héraðslæknar, heilbrigðisnefndir eða tollvöruvörslu. menn hefðu ekki til að bera þá kunnáttu í mat. vælafræði að þeir gætu annast efnafræðilegar og gerlafræðilegar rannsóknir á matvælum og væru yfirleitt færir um að draga réttar ályktanir at niðurstöðum rannsóknanna um gæði matvælanna. Þetta ákvæði um eiðsvarna kunnáttumenn var eingöngu nýtt tvisvar. Í fyrra tilvikinu, þegar dr. Jóni E. Vestdal var falin stjórn Matvælaeftirlits ríkisins frá stofnun þess 1936–1938, og í síðasta skiptið, þegar dr. Sigurði Péturssyni var falin ein grein eftirlitsins, þ.e.a.s. mjólkureftirlitið, á árunum 1945–1947.

Með lögum nr. 13 1969, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, var þessum ákvæðum laganna frá 1936 breytt þannig að matvælaeftirlit sem slíkt er nú í höndum heilbrigðisnefnda undir yfirumsjón Heilbrigðiseftirlits ríkisins. Samkv. 16. gr, þeirra laga skulu rannsóknastofnanir á vegum ríkisins annast nauðsynlegar rannsóknir á sýnishornum vegna heilbrigðiseftirlitsins í landinu.

Gerlafræðilegt eftirlit með matvælum hófst hér á landi haustið 1935. Það var Mjólkursamsalan í Reykjavík sem hóf slíkt eftirlit með sínum eigin vörum. Mjólkursamsalan kom upp litilli rannsóknastofu í Kirkjustræti hér í borg og var hún starfrækt til haustsins 1937, en þá var atvinnudeild Háskólans opnuð, en við iðnaðardeild þeirrar stofnunar var sett upp rannsóknastofa fyrir almennar gerlarannsóknir í þágu atvinnuveganna, eins og það var orðað. Þessi rannsóknastofa hafði með höndum eftirlit með mjólk og mjólkurvörum fyrir Mjólkursamsöluna til ársins 1945, en auk þess gerlarannsóknir á hvers konar matvælum og á vatni fyrir Heilbrigðiseftirlitið allt til ársins 1960.

Í lok ársins 1952 hafði gerlarannsóknastofa atvinnudeildarinnar verið flutt í nýbyggingu að Skúlagötu 4 ásamt rannsóknastofu Fiskifélags Íslands. Rannsóknastofur þessar voru síðan sameinaðar í eina stofnun undir stjórn Fiskifélagsins árið 1960 og síðan enn sem tvær deildir í Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins árið 1965, en það var ný ríkisstofnun með sérstakri stjórn skipaðri af sjútvrh. Það þótti að vonum óeðlilegt að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins væri að fást við rannsóknir á mjólk og alls konar matvælum fyrir heilbrigðisyfirvöld, enda alls ekki gert ráð fyrir því í lögum þeirrar stofnunar. Á þetta var líka alltaf litið sem bráðabirgðaráðstöfun. En rannsóknir þessar höfðu fylgt gerladeildinni frá upphafi og hlutu að gera það þangað til sett yrði upp ný rannsóknastofa fyrir þessa þjónustu.

Verkefni gerladeildarinnar fóru stöðugt vaxandi, svo að í árslok 1975 störfuðu við hana 9 manns. Fjölgun aðsendra sýna síðustu árin kemur glögglega fram í eftirfarandi: Árið 1960 voru sýni alls 1220, þar af 830 frá heilbrigðisyfirvöldum eða 68% allra sýna. Árið 1965 eru sýni alls 2235, þar af 1627 eða 72.8% frá heilbrigðisyfirvöldum. Árið 1970 eru sýnin orðin alls 3391, þar af um 1953 eða 57.6% frá heilbrigðisyfirvöldum. Á árinu 1975 eru sýnin orðin alls 5486, þar af 2827 eða 51.5% frá heilbrigðisyfirvöldum. Frá því að gerladeildin hóf störf árið 1937 og til ársloka 1975 hafði hún tekið á móti 70 þús, sýnum alls og voru nær 2/3 hlutar þeirra frá heilbrigðisyfirvöldum. Það var verkefni gerladeildarinnar að sjálfsögðu að annast sjálfstæðar rannsóknir og tilraunir í þágu atvinnuveganna og þá oft í samvinnu við einkaaðila.

Eins og greint hefur verið hér áður hefur árlegur fjöldi aðsendra sýna í gerladeildinni aukist mjög síðasta áratuginn og einkum sá hluti sem komið hefur frá fiskiðnaðinum. Þær kröfur Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, að þjónustu gerladeildarinnar fyrir heilbrigðiseftirlit yrði hætt, fóru því stöðugt harðnandi. Varð þetta til þess, að á öndverðu ári 1976 var gripið til þess ráðs að setja á laggirnar Matvælarannsóknir ríkisins. Gerlaefna- og örverufræðilegar rannsóknir á matvælum með tilliti til heilnæmis matvælanna er mjög yfirgripsmikið sérsvið. Það er þetta sérsvið sem ætlað er Matvælarannsóknum ríkisins. Hér er um að ræða vísindalega rannsóknastofnun í eigu ríkisins, — stofnun sem vinnur fyrir heilbrigðisnefndir og héraðslækna.

Þótt frv. það, sem hér er lagt fram, sé nýtt, er sú starfsemi, sem kveðið er á um í frv., engan veginn ný, eins og ég hef þegar bent á. Þegar ljóst var að gerlarannsóknir á matvælum mundu algjörlega falla niður á árinu 1976 ákvað heilbr.- og trmrn. að setja á laggirnar rannsóknastofnun, þ.e.a.s. Matvælarannsóknir ríkisins. Það var álit rn. og sérfróðra manna á þessu sviði, að yrði ekkert gert í þessu máli stefndi hér í algjört óefni. Stofnuninni var skipaður forstöðumaður, Guðlaugur Hannesson gerlafræðingur, og voru ráðnir honum til aðstoðar tveir starfsmenn. Fyrst um sinn var stofnunin til húsa að Skúlagötu 4. í húsnæði Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins sem góðfúslega lét stofnuninni í té húsnæði meðan leitað var eftir heppilegu húsnæði undir stofnunina. Í ágústmánuði s.l. tók stofnunin til starfa í nýju húsnæði að Skipholti 15 hér í Reykjavík, en það húsnæði hefur verið sérstaklega útbúið með hliðsjón af þörfum og störfum stofnunarinnar, og má segja að nú sé allvel búið að þessari stofnun sem slíkri. Sem stendur vinna við stofnunina 7 menn í fullu starfi. Engin ákvæði er að finna um stofnunina í lögum og verður að sjálfsögðu ekki við slíkt unað til langframa enda er hér um að ræða stofnun sem kveða þarf á um í lögum að mati rn, bæði vegna nauðsynjarinnar og þess kostnaðar sem hún hefur í för með sér.

Eins og áður segir, var það fyrst og fremst nauðsynin sem knúði á um stofnunina, og þarf væntanlega ekki að deila um slíkt. Tilveruréttur slíkrar stofnunar verður að vera tryggður í landi sem Íslandi, þar sem matvælaframleiðsla er ein aðalframleiðslugrein, bæði til sjávar og sveita. Þegar frv, þetta er lagt fram hefur stofnunin starfað hátt á annað ár og ætti því að vera komin töluverð reynsla á það, hvernig rannsóknum stofnunarinnar verði best háttað. Þótt gerlafræðilegar rannsóknir skipi að sjálfsögðu veigamikinn sess á þessum vettvangi eru slíkar rannsóknir ekki nema hluti þeirra rannsókna sem æskilegt er að slík stofnun annist. Því er gert ráð fyrir því í frv., að stofnunin annist ekki eingöngu gerlafræðilegar rannsóknir, heldur einnig efna- og örverufræðilegar rannsóknir. Má hér nefna sem dæmi rannsóknir á aukaefnum í matvælum, sbr. reglugerð nr. 250 frá s.l. ári um tilbúning og dreifingu matvæla og annarra neyslu- og nauðsynjavara. Þessi reglugerð öðlaðist gildi 1. mars 1976 og er hún stefnumarkandi hvað snertir matvælaeftirlit hér á landi, þar sem með reglugerðinni fylgir sérstakur listi yfir aukefni sem blanda má í matvæli hér á landi og magn þeirra. Má með sanni segja að erfitt mun reynast að framfylgja ákvæðum þessarar reglugerðar nema rannsóknaraðstaða verði fyrir hendi.

Til þess að fyrirbyggja allan misskilning skal á það bent, að stofnuninni er ekki ætlað að annast matvælaeftirlit sem slíkt. Matvælaeftirlit er í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaganna undir yfirumsjón Heilbrigðiseftirlits ríkisins samkv. lögum nr. 12 1969, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Stofnunin yrði fyrst og fremst þjónustustofnun fyrir þessa aðila og ætti því að auðvelda allt eftirlit með matvælum. Rannsóknir stofnunarinnar yrðu aðallega sýnisrannsóknir vegna heilbrigðiseftirlitsins í landinu. Gert er ráð fyrir að heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna geti að kostnaðarlausu sent sýni til stofnunarinnar sem síðan greini sýnin. Þarf ekki að fara mörgum orðum um það, að stofnun sem þessi horfir til mikils öryggis á þessu sviði, eins og hún hefur gert frá því hún tók til starfa.

Eins og fram hefur komið er hér um nýmæli að ræða í lagasmið. Hins ber að geta, að mjög er tímabært að tryggja tilverurétt Matvælarannsókna ríkisins með löggjöf.

Að svo stöddu tel ég ekki ástæðu til að fjalla frekar um efnisatriði frv., en vísa um það til frv, sjálfs ásamt aths. við það. Ég vænti þess, að þetta frv. hljóti góðar undirtektir og skjóta fyrirgreiðslu hér á Alþ., og legg til, að að lokinni þessari umr. verði því vísað til hv. heilbr.- og trn.