18.10.1977
Sameinað þing: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (57)
19. mál, sundlaug við Endurhæfingadeild Borgarspítalans
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég held að mér sé óhætt að segja það, að mér sé fyllilega ljós þýðing sundlauga á endurhæfingarstofnunum og fyrir sjúka sem eru í endurhæfingu. Þó að ég hafi í fyrra verið einn af flm. þess máls sem hér er verið að ræða, þá hef ég lítið látið heyra til mín um það opinberlega. En ég vil láta það koma fram núna á þeim stutta tíma sem við höfum til umr. í fyrirspurnatíma, að eftir að fjárl. voru afgr. í fyrra eins og raun bar vitni hafði ég mjög náið samband við fjmrh., forsrh, og heilbrrh., og mér er óhætt að fullyrða það, að þegar fsp. hv. 3. þm. Reykv. var lögð fram hér í þinginu, þá varð ég dálítið hissa og sneri mér þá strax til fjmrh, og spurði: Hvað, er ekki séð fyrir þessu í fjárl. eins og fjmrh. hefur tjáð mér og ég hef eftir honum tjáð öðrum, m.a. dr. Ásgeiri Ellertssyni yfirlækni á endurhæfingarstöðinni? — Jú, það er gert ráð fyrir því, sagði fjmrh. Hann er því miður ekki viðstaddur hér, en við vitum það þm. að hann er bundinn við önnur störf í bili. En ég þori að segja frá þessu, því að svo ákveðið og eindregið var svar hans. Ég hef einnig fengið fulla vissu fyrir því, að það skortir ekki á vilja hinna ráðh. Sjálfstfl., og ég efast ekkert um ráðh. Framsfl., enda var einn þeirra flm, málsins í fyrra, og ég býst við að það sé enginn ágreiningur á milli þeirra.
Þetta vil ég láta fram koma og tel þess vegna að umr. og sérstaklega deilur um þetta mál séu til ills eins, því að málið er leyst og það verður á fjárl. næsta árs, því sem nú liggur fyrir. Og það að fjvn. fjallar um skiptingu þess fjár sem forsrh. tjáði að væri ætlað til heilbrigðismálanna, það er auðvitað mjög sterkt. Afgreiðsla fjvn. í fyrra sýnir það. Það er ekki líklegt að fjvn. nú sé neitt annars sinnis og muni þess vegna, áður en til afgreiðslu fjárlaganna kemur, skipta þessari fjárupphæð þannig að séð sé fyrir fé til þessarar sundlaugar.
Ég álít að það hafi verið mjög illt að í fyrra hófust deilur um byggingu sundlaugar við Endurhæfingardeild Borgarspítalans annars vegar. Ef við byrjum á einum staðnum, þá höldum við áfram og annar kemur næst. En ég álit að við þurfum ekki að eyða fleiri orðum að þessu nú, þetta mál megi eftir öllum atvikum teljast leyst.