24.11.1977
Sameinað þing: 23. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 840 í B-deild Alþingistíðinda. (580)

30. mál, skipulag orkumála

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins gera smávægilegar athugasemdir og skal ekki lengja þessa umr. að ráði. En mér finnst það út af fyrir sig furðulegt vegna þeirra umr., sem hér hafa átt sér stað, að bera það fram að hv. þm. Steingrímur Hermannsson hafi ekki staðið að Orkubúi Vestfjarða af fullum krafti. Ekki hefur farið fram hjá okkur öðrum þm. í Framsfl, að það hefur hann gert.

Ég vildi aðeins ítreka það sem ég sagði hér, vegna þess að það hefur verið nokkuð um það rætt hvers vegna ég var á móti lagasetningunni um Orkubú Vestfjarða. Ég sagði í ræðu minni: Mér fannst lagasetningin ótímabær, þar sem heildarstefnan í landinu hafði ekki verið mörkuð. — Þetta eru þau orð sem ég viðhafði, og aðra röksemdafærslu fyrir þeirri afstöðu minni má finna í umr. við afgreiðslu á því lagafrv.

Ég tek undir þau orð hv. 3. þm. Vestf., að auðvitað verður í slíku máli sem þessu að leita til aðila úti um allt land, úti í kjördæmunum. Ég er vissulega sammála því. Ég var hins vegar þeirrar skoðunar við umr. síðast og er enn, að það hefði verið eðlilegra að það hefðu verið mótaðir einhverjir punktar, eitthvert uppkast að stefnu sem þessir aðilar hefðu fengið sem veganesti. Það er ekki sama og segja að þessir aðilar hefðu orðið því sammála. Ég hefði talið að það hefði verið betra að mynda einhvern slíkan heildarramma áður en þessar n. voru skipaðar. Ég sagði einnig að það væri oft hægt að vera vitur eftir á.

En ég vil sérstaklega leggja áherslu á, að ég taldi óeðlilegt að taka eitt af þessum nál., þ.e. nál. frá Vestfjörðum, og nota það til stefnumörkunar fyrir þann landsfjórðung. Það var það sem ég vildi leggja sérstaka áherslu á, því það hefur allmikil áhrif á umr, þessa máls í hinum landsfjórðungunum. Það hefur ekki farið fram hjá okkur á Austfjörðum í sambandi við umr. um þessi mál, að menn segja þar: Er ekki búið að á kveða eða setja upp það skipulag, að í hverjum landshluta skuli starfa svipað fyrirtæki og Orkubú Vestfjarða? Og ég vil einnig benda hv. þm. Þorvaldi Garðari Kristjánssyni á það, að mönnum í öðrum landshlutum líkar ekki heldur að það sé tekið eitt ákveðið nál. úr einum landshluta og það lögfest, því það eru margir sem skilja það sem ákveðna bendingu á hvern hátt þeir skuli leysa sin mál. Þetta líkar mönnum ekki. Ég tel að það hafi komið fram, að þetta hafi verið á vissan hátt óskynsamlegt. Ég hef ekki sagt að það sé út af fyrir sig óskynsamlegt að stofna Orkubú Vestfjarða, en það fyrirtæki verður að vera í einhverju samhengi við þá heildarstefnu sem verður mörkuð í orkumálum landsins. Ég á sérstaklega við það, að mér finnst óeðlilegt að þetta fyrirtæki annist virkjunarrannsóknir og virkjun fallvatna í þeim landshluta og aðaldreifingu raforkunnar á milli landshluta. Það ern þessi verkefni sem ég lagði sérstaka áherslu á að ættu að vera á landsvísu. En mér finnst að það komi mjög til greina, eins og kemur fram í okkar till., að fyrirtæki í landshlut-um?m annist dreifingu til neytenda.

Þetta vildi ég aðeins láta koma fram sem mínar stuttu athugasemdir.