24.11.1977
Sameinað þing: 23. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 847 í B-deild Alþingistíðinda. (584)

44. mál, fræðslustarfsemi um efnahagsmál í sjónvarpi

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég ætlaði ekki að blanda mér í þær umr. sem hér hafa farið fram um efnahagsmál almennt eða þróun efnahagsmála á þessu ári. Tækifæri gefst til að ræða um það síðar og þær aðgerðir sem hafa verið gerðar á því sviði, samhljóða tillögur bankastjóra Seðlabankans. Ég sleppi því að tala um þau mál nú. En mér finnst rétt að veita nokkrar upplýsingar í sambandi við þá till. sem hér liggur fyrir.

Ég er alveg sammála flm, og síðasta ræðumanni um að það er mikilvægt að halda uppi fræðslu í hljóðvarpi og sjónvarpi um þessi mál. En það er dálitið vandasamt með þessi mál að fara vegna þess að sjónarmiðin eru mörg og margir aðilar sem koma hér við sögu og vilja koma sjónarmiðum sinum fram, Það hefur verið reynt að gera þetta með ýmsum hætti, bæði með umræðuþáttum, í Kastljósi, fréttum og víðar, en að sjálfsögðu má betur gera í þeim efnum.

Mér finnst rétt að skýra frá því í þessu sambandi, að fyrir nokkrum mánuðum flutti Friðrik Sophusson þá till. í útvarpsráði, að komið yrði upp sérstökum fræðilegum þætti um efnahagsmál, nokkuð líkt því sem fim. gerir ráð fyrir. Niðurstaðan varð sú, að leitað var til tveggja manna og þeir fengir til þess að taka að sér stjórn á slíkum þætti a. m. k, til að byrja með. Þeir menn, sem urðu fyrir valinu, voru Ásmundur Stefánsson hagfræðingur Alþýðusambandsins og dr. Þráinn Eggertsson lektor við viðskiptadeild Háskólans. Þessir menn hafa eitthvað unnið að þessu síðan, en ekki hefur orðið af framkvæmd enn þá. En ég geri mér frekar von um að það geti orðið. Það yrði kannske frekar fræðsla um grundvallaratriði efnahagsmála og reynt að sneiða hjá pólitík í þáttum eins og þessum, og þyrfti að sjálfsögðu fleira að koma til, til þess að myndin yrði sem fullkomnust, Okkur fannst rétt að velja mennina, sem ættu að sjá um þennan þátt til að byrja með, á þann hátt að það væri tryggt að það kæmu fram mismunandi sjónarmið, eða kannske væri frekar rétt að orða þetta þannig, að það kæmu fram sem flest sjónarmið og næðist sem best mynd af því máli sem um væri rætt.

Þá finnst mér rétt að geta þess, að á síðasta hausti var ákveðið að fella í einn þátt alla þætti um efnahagsmál og atvinnumál, sem eru fluttir í hljóðvarpinu, og fela sérstökum manni að skipuleggja stóran umræðuþátt um þessi mál. Það var algert samkomulag um það að fela Magnúsi Bjarnfreðssyni að stjórna slíkum þætti. Hann mun þegar hafa stjórnað tveimur eða þremur slíkum, og ég hygg að menn séu sammála um að þar sé nokkuð vel af stað farið.

Þetta fannst mér rétt að upplýsa hér í sambandi við till.