24.11.1977
Sameinað þing: 23. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (585)
44. mál, fræðslustarfsemi um efnahagsmál í sjónvarpi
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki frekar en fyrri ræðumenn, flestir a.m.k., að nota þetta tækifæri til að tala almennt um efnahagsmál og stöðu þeirra nú, þótt vissulega væri ástæða til þess, heldur skal halda mig við þessa till.
Það er vissulega rétt, sem kom fram hjá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni, að stjórnmál og efnahagsmál eru ekki mál sem hægt er að skilja að, og svo er með mjög mörg mál í hverju þjóðfélagi, að þau hljóta að snerta mjög stjórnmál. En það er ekki það sama og menn út af fyrir sig, þótt hann hafi ekki sagt það, skyldu varast að tala um þau og ræða um þau frá mismunandi sjónarmiðum. Ég held að það sé mikil þörf á því, að það fari fram á einhvern hátt meiri fræðsla um hagfræði og efnahagsmál, og mér finnst almennt að sú umr., sem hefur átt sér stað í þjóðfélaginu, sanni þá þörf. Þótt um leiðir í efnahagsmálum megi mjög deila, þá eru þar ákveðin grundvallaratriði sem ekki verður gengið fram hjá, — grundvallaratriði eins og þau, að það er samhengi á milli halla á utanríkisverslun, verðbólgu, fjármála ríkisins og launanna í þjóðfélaginu. Menn hafa jafnvel viljað halda því fram, að laun skipti engu máli í sambandi við verðbólgu. Það eru ýmis slík grundvallaratriði ekki sjónarmið, heldur grundvallaratriði hagfræði sem af mörgum og oft hafa hreinlega ekki verið viðurkennd í umr., þannig að ég held að það sé full þörf á því að þessi fræðsla fari á einhvern hátt fram.
Spurningin er sú, hvort það sé ekki nauðsynlegt að það fari fram meiri kennsla í hagfræði í skólum landsins. Það er mjög lítið kennt í hagfræði t.d. í gagnfræðaskólum eða í grunnskólum, og sú kennsla er ekki mjög mikil í framhaldsskólum, nema þá þegar komið er upp í háskóla. Ég held að það sé hverjum manni nauðsynlegt á göngu sinni í gegnum lífið að vita sem mest, náttúrlega á öllum sviðum, en víss lágmarkskennsla og lágmarkskunnátta í hagfræði er mjög gagnleg í öllum þjóðfélögum sem vilja veg sinn háan í samfélagi þjóðanna, þannig að ég tek mjög undir að það verði kannað rækilega á hvern hátt slík kennsla og slík fræðsla getur farið fram. Ég er t.d. þeirrar skoðunar, að það sé alveg nauðsynlegt að einn fréttamaður sjónvarps sé hagfræðimenntaður maður. Það er mjög mikill hluti af fréttum á hverjum tíma sem snerta hagfræði og efnahagsmál, og það er afskaplega hvimleitt oft hvernig ýmsar upplýsingar eru settar fram. Ég hef tekið eftir því hjá öðrum þjóðum, að það er mjög algengt að allar slíkar upplýsingar og allur slíkur fréttaflutningur fer fram undir umsjón manns sem hefur bæði þekkingu og menntun á því sviði. Svo má að vísu segja um öll mál. En ég býst við því og ég er þess fullvíss, að þessi mál út af fyrir sig séu svo mikilvæg sérstaklega nú í okkar þjóðfélagi, að það verði að tryggja að um þau fjalli í fjölmiðlum eins og sjónvarpi, sem er mjög áhrifamikill fjölmiðill, menn sem eru vissulega hlutlausir, en hafa verulega þekkingu á því sviði til þess að geta komið þeim upplýsingum á réttan hátt til þjóðarinnar. Þess vegna held ég að út af fyrir sig sé það mikilvægasta, sem við þyrftum á að halda í dag, að það væri fenginn hagfræðingur eða hæfur maður á því sviði til þess að annast slíkan fréttaflutning í sjónvarpi.