28.11.1977
Neðri deild: 20. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í B-deild Alþingistíðinda. (617)
Varamaður tekur þingsæti
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég ætla fyrst að gera aths. við ummæli hæstv. forsrh, hér áðan, að rætt hefði verið um að gera flugvöll, koma upp herstöð á Norðausturlandi, og hann nefndi sem dæmi skrif Sigurðar Líndals í því sambandi. Það er rétt, Sigurður skrifaði fyrir fáeinum árum allmikið um það, að rétt væri að koma upp herstöð á Melrakkasléttu. En ég vil, vegna Sigurðar Líndals, að hér komi fram, að það, sem vakti fyrir honum var ekki að auka umsvif Bandaríkjahers á Íslandi, heldur hitt, að bægja frá þéttbýlinu hér á suðvesturkjálkanum þeirri hættu sem stafa af herstöðinni á Keflavíkurvelli.
Hæstv. forsrh. talar um að sjálfsagt sé að meta svonefnd varnarmál öðru hvoru. Við eigum að láta far fram sjálfstætt mat á stöðunni hverju sinni. Það er mjög lýðræðislegur tónn í hæstv. forsrh., þegar hann segir þetta. Maður gæti næstum haldið að hann ætti við það t.d., að Alþingi Íslendinga ætti að ákveða þetta og þar með allir flokkar sem hér eiga fulltrúa. Hætt er nú við samt að það vaki ekki fyrir hæstv. forsrh. að hafa alla flokka með í slíkri athugun, að leyfa ollum flokkum aðild að þeirri könnun sem hann talar um.
Árið 1971, skömmu eftir að vinstri stjórnin kom til valda, var flutt hér á Alþ. Þáltill. sem er með ólýðræðislegustu málum sem komið hafa inn á Alþingi Íslendinga, mál þess eðlis að kalla mátti eitt meiri háttar þinghneyksli. 1. flm. þessarar till. var núv. hæstv. forsrh. og með honum voru flm. níu aðrir þm. Sjálfstfl. Hæstv. núv. forsrh. steig þarna fram í nafni flokksins við tíunda mann til þess að flytja svo hljóðandi þáltill., með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að ferla hverjum þeirra þingflokka, sem styðja þátttöku Íslands í Atlantshafsbandalaginu, að tilnefna einn fulltrúa, sem skuli starfa með utanrrh. í viðræðum við Bandaríkjamenn og aðrar þjóðir bandalagsins um endurskoðun á varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna á grundvelli Norður-Atlandshafssamningsins, þátttöku Íslands í störfum bandalagsins og skipan öryggismála landsins.“
Till. er svohljóðandi, en í grg. segir m.a. með leyfi hæstv. forseta, þegar hæstv. forsrh. er að skýra hvað fyrir honum vakir.
„Eðli málsins samkvæmt er útilokað, að þeir, sem andvígir eru áframhaldandi aðild Íslands að Atlandshafsbandalaginu, taki þátt í viðræðum við það og Bandaríkjamenn um varnarmál Íslands.“
Eðli málsins samkvæmt er útilokað, að einn sjötti þm. fái notið þess rétta síns að eiga aðild að slíkum viðræðum. Það er ekki laust við að maður efist um heilindin, hvað sem líður svipnum á hæstv. forsrh., þegar hann þrástagast á því hér, að nauðsynlegt sé að meta stöðuna í svonefndum varnarmálum, óvilhallt skilst manni. Reyndar er vafamál að forsrh. hafi vilja í raun og veru, hvað þá getu til að meta þessa stöðu. Allar upplýsingar um þessa stöðu koma annars staðar frá og eftir þeim er farið.
Ég vil aðeins, áður en ég vík nánar að því atriði, geta þess, að þessi till. núv. hæstv. forsrh. var felld í utanrmn. Og í nál., sem formaður n., hv. þm. Þórarinn Þórarinsson, formaður þingflokks Framsfl. skrifaði undir ásamt öðrum nm., segir að þessi till. hæstv. forsrh. og hinna sjálfstæðismannanna sé „bein árás á lýðræðislega stjórnarhætti“. Og hygg ég að þarna sé ekki of sterkt að orði kveðið. Já, það mat, sem við kynnum að fá gert í svonefndum varnarmálum, ég veit ekki hvernig hæstv. forsrh. hugsar sér það. En mat, opinbert mat íslenskra stjórnvalda, og þá fyrst og fremst flokks hæstv. forsrh., Sjálfstfl., á þessum málum hefur alveg ráðist af því, hvað talsmenn Atlantshafsbandalagsins og aðallega Bandaríkjanna segja hverju sinni. Og málgagn hæstv. forsrh. er óspart notað í því sambandi. Í hvert sinn sem þannig horfir í samskiptum stórveldanna tveggja í austri og vestri, að eitthvað kann að virðast vera að lagast samkomulagið, þá fyllist blað hæstv. forsrh. af fullyrðingum, löngum greinum þess efnis að nú sé heldur en ekki að aukast árásarhættan o.s.frv. Og það bregst yfirleitt ekki, að hingað til lands kemur einhver legáti frá Bandaríkjunum eða NATO til þess að vitna í útvarpi og sjónvarpi og öðrum fjölmiðlum um það hver nauðsyn sé á því að hafa herstöðina á Keflavíkurflugvelli og að við séum áfram í NATO, — lífsnauðsyn fyrir allan „hinn frjálsa heim“. Ég er ekki í neinum vafa um það, — ég vil nú kveða heldur sterkar að orði en hv. þm. Lúðvík Jósepsson áðan, — ég er ekki í neinum vafa um það, að hér er maðkur í mysunni. Það er eitthvað að gerast á bak við tjöldin sem kemur m.a. fram í þessum þenkingum hæstv. forsrh. um það, að e.t.v. þyrftum við einhvern tíma að leyfa hernaðarflugvöll á Austurlandi. Ég er ekki í neinum vafa um þetta. Og þetta er að sjálfsögðu í beinum tengslum við vissa niðurstöðu sem fékkst í prófkjöri hjá Sjálfstfl. í Reykjavík nú nýlega. Í tengslum við þetta eru líka þenkingar iðnrh. eða yfirlýsingar um það, að við getum ekki einir og hjálparlaust lagt varanlega vegi. Og með tilliti til reynslunnar kæmi mér ekki á óvart að nú innan skamms birtist enn einn legátinn frá NATO eða Bandaríkjunum eða kannske sjálfur Jósep Luns, til þess að segja okkur að nú gangi þetta ekki lengur sisvona. Spyrillinn í sjónvarpi mun spyrja: Hver er nauðsynin á hernaðaraðstöðunni hér? Og enn mun það ítrekað, hve gríðarlega mikil sú nauðsyn sé, fyrir allan „hinn frjálsa heim“. Síðan verður spurt: Er varnaraðstaðan nógu mikil? Og legátinn mun svara: Nei, því fer fjarri. Og hvað væri þá til ráða? mun spyrillinn segja. T.d. að koma upp öðrum hernaðarflugvelli einhvers staðar. T.d. hvar? segir spyrillinn. T.d. á Austurlandi eða Norðausturlandi. Mér kæmi sannarlega ekki á óvart þó að einn slíkur legáti birtist hér nú alveg á næstunni.
Mér þykir verst að hæstv. dómsmrh. er horfinn úr salnum, því að ég ætlaði að beina til hans aths. Menn hafa e.t.v. ekki tekið eftir því, en í ræðu sinni hér áðan kallaði hann hið svonefnda varnarlið ekki varnarlið. Það hét allt í einu í ræðu hæstv. dómsmrh. ekki varnarlið, heldur kallaði hann það „viðvörunarsveitir“. Ég tel að þetta sé þess háttar orðalagsbreyting, að maður hljóti að beina til hæstv. dómsmrh., sem nú er kominn þarna í dyrnar, fsp. þess efnis, hvort hann telji að þessar sveitir, sem hér eru, séu okkur ekki til neinna varna. Og viðvörunarsveitir, — ef þetta eru aðeins viðvörunarsveitir, — viðvörunarsveitir í þágu hverra? Eru þær í þágu okkar Íslendinga eða í þágu einhverra annarra?