29.11.1977
Sameinað þing: 24. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í B-deild Alþingistíðinda. (626)
42. mál, símaafnot aldraðs fólks og öryrkja
Magnús Kjartansson:
Hæstv. forseti. Framkoma hæstv, símamálaráðh. í þessu máli er einhver herfilegasta valdníðsla sem ég hef fylgst með síðan ég fór að fylgjast með störfum Alþingis. Það hefur að vísu ágerst mjög síðustu árin, að ráðh. taka ekkert mark á þáltill. sem samþ. eru hér á Alþ., þó þær fell í sér mjög skýra stefnumörkun, og mér finnst þingið hafa sýnt furðumikið langlundargeð við að þola ráðh. slíka framkomu. En hér var ekki um þál. að ræða. Hér var um að ræða frv. um breyt. á lögum um fjarskipti. Ég flutti þetta frv. á árinu 1974, ef ég man rétt, og það var samþ. árið 1975 einróma hér á hinu háa Alþ. Ég veit ekki hvort hæstv. símamálaráðh. var viðstaddur til þess að greiða atkv., en hann lét ekki í ljós neina andstöðu. Þetta var haft í því formi, að hæstv. ráðh. var heimilað að sjá um framkvæmd þessa vilja Alþingis. Alþingi gekk ekki frá reglum hvernig ætti að framkvæma þetta. Hæstv. ráðh. var falið það. En vilji Alþ. var algjörlega ótvíræður, og hæstv. ráðh. hefur gengið í berhögg við þennan vilja.
Þetta er í þriðja skiptið sem þetta mál kemur til umr. á hinu háa Alþingi. Þegar fyrst var spurt um efndir hæstv. ráðh. á áskorun Alþingis, þá svaraði hann á mjög hrokafullan hátt og taldi að hann sæi ekki neina ástæðu til að framkvæma þetta. Á síðasta þingi kom fram till. um þetta efni, og þá urðu viðbrögð hæstv. ráðh. þau að láta skipa embættismannanefnd, eins og hann greindi frá í ræðu sinni áðan, til þess að fjalla um þetta óvenjulega flókna vandamál.
Það kom fram í ræðu hv. frummælanda, að það væri hægt að misnota slíka heimild. Ég held að það sé algjörlega fráleitt. Það er hægt að binda slíka heimild við ákveðna upphæð, þannig að enginn geti misnotað símann til að hringja t.a.m. til Timbúktú eða eitthvað slíkt. Það er hægt að binda þetta við ákveðna upphæð sem geri öldruðu fólki og fötluðu, sem er bundið eitt á heimilum sínum, kleift að hafa samband við umhverfi sitt. Hér er um algjöra lífsnauðsyn að ræða fyrir þetta fólk, ef það vill geta lifað eðlilegu lifi á heimilum sínum og einnig ef það vill gera viðvart ef það lendir í háskalegum vanda, eins og oft kemur fyrir.
Hæstv. ráðh. sagði að rangt væri að láta útvarp og sjónvarp taka á sig fjárhagsbyrðar af slíkum ástæðum. Það hefur áður verið samþ. hér á hinu háa Alþ., einnig samkvæmt till. frá mér raunar, að hægt væri að undanþiggja aldrað fólk og öryrkja með lágmarkstekjur því að greiða afnotagjald fyrir útvarp. Framkvæmdin hefur verið afar þröng. En þetta hefur verið í framkvæmd, og það er talsvert ískyggilegt að þessi hæstv. ráðh. skuli lýsa því yfir að þessi aðferð sé hæpin.
Í sambandi við símann held ég að það skipti ekki ákaflega miklu máli hvernig framkvæmd yrði háttað fjárhagslega. Sími er það algengur, að ef símagjöld yrðu hækkuð til þess að létta þessari byrði af því fólki sem mest þarf á síma að halda, en hefur ekki peninga til þess að hafa síma, þá hugsa ég að það kæmi ósköp svipað niður og ef síminn gerði reikning til ríkissjóðs. Það er hægt að framkvæma þetta á hvorn háttinn sem er, og hér er ekki um að ræða nein vandamál. Hér er aðeins um að ræða skort á vilja. Ég álít að þessi aðgerð hæstv. ráðh. sé brot á stjórnarskránni — valdníðsla og brot á stjórnar skránni. Og ég vil greina hæstv. ráðh. frá því, að ef hann hlítir ekki vilja Alþingis í þessu máli mjög fljótlega, þá mun ég reyna að kanna leiðir til þess að á það reyni, hvort hæstv. ráðh. hefur ekki verið að brjóta stjórnarskrána með athafnaleysi sínu á þessu sviði.