29.11.1977
Sameinað þing: 24. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (628)
42. mál, símaafnot aldraðs fólks og öryrkja
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég var einn af þeim sem tóku þátt í þeim umr. sem fram fóru á síðasta þingi varðandi þetta mál. Eins og hér hefur komið fram, urðu allmiklar umr, um þetta og allhart deilt á hæstv. ráðh, fyrir að hafa ekki orðið við þessari einróma samþykkt Alþingis. Það liggur fyrir alveg einróma viljayfirlýsing Alþingis í þessu máli. Og ég tek undir þá gagnrýni, að það er erfitt fyrir Alþ. þegar það hefur samþ. einróma að eitthvað skuli framkvæmt, að sætta sig við það, hvort sem það er hæstv, samgrh. eða einhver annar einstaklingur í stjórnkerfinu sem liggur síðan á því máli. Hér er enn eitt dæmið um það, hversu vald Alþ. er í raun og veru orðið lítið í reynd. Það getur svo að segja hver og einn ráðh., að því er virðist með hliðsjón af þessu, virt að vettugi einróma viljayfirlýsingu Alþ. um framkvæmd í tilteknu máli. Mér finnst ástæða til þess að mótmæla slíku sérstaklega. Það getur enginn alþm. setið undir því, að einróma vilji þingsins sé virtur að vettugi, hvaða hæstv. ráðh. eða einstaklingur sem þar á hlut að máli. Ég vil því mótmæla slíkum seinagangi og slíkum vinnubrögðum. Það er ekki sæmandi að það skuli líða mörg ár án þess að farið sé að einróma viljayfirlýsingu Alþingis í þessu máli sem og öðrum.