29.11.1977
Sameinað þing: 24. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (634)

88. mál, innheimta skemmtanaskatts

Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason):

Herra forseti. Ég hef á þskj. 101 leyft mér að beina til hæstv. heilbrrh. svo hljóðandi fyrirspurn:

„Hvernig stendur á því að enn hefur ekki verið sett reglugerð um rekstur heilsugæslustöðva, þ. á m, starfsskyldu lækna sem við þær starfa?“

Ástæðan til þessarar fyrirspurnar er sú, að mér er kunnugt um að ekki gengur allt sem skyldi í heilsugæslustöðvunum. Fólk kvartar um að læknar, sem þar eru komnir til starfa, oft af yngri kynslóð, hafi annan skilning á starfi sínu heldur en þeir eldri. Kveður rammt að þessu stundum. Ég veit dæmi þess, að fárveikt fólk hefur orðið að fara langan veg að vetrarlagi í kuldatíð til læknanna, vegna þess að þeir hafa lagt niður siði hinna gömlu, að fara á bæina þegar þeir eru beðnir þess, vefengja iðulega ástæðurnar, telja að sjúklingar eigi að koma að því er virðist í nær öllum tilfellum til þeirra. Einhver orðaði þetta þannig, að það bæri orðið minna á þjónustu læknanna við fólkið, nú væri ætlast til þess að fólkið þjónaði kerfinu.

Þegar spurt er um ástæðurnar til þessa fær maður oftast það svar, að ein aðalástæðan sé sú, að enn hefur ekki verið sett reglugerð um rekstur heilsugæslustöðva. Það skýtur sér hver bak við annan. Eitt er nú t.d. það, að enginn má heita yfirlæknir. Og vald þeirra manna, sem skipa stjórnir heilsugæslustöðvanna, er líka oft á tíðum mjög óljóst.

Fólk álítur, að þetta kæmist í betra lag ef sett væri reglugerð um rekstur heilsugæslustöðvanna.