18.10.1977
Sameinað þing: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

19. mál, sundlaug við Endurhæfingadeild Borgarspítalans

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að benda á og minna hv. þm. á að hér er ekki verið að ræða um þáltill. Hér er verið að svara fyrirspurn. Þeirri fyrirspurn hefur verið svarað, og ættum að halda okkur við þingsköp og halda okkur frá almennum umr. þegar um fyrirspurnir er að ræða. Ég legg því til að við, sem erum sjálfsagt allir sammála um þetta mál, látum nú verkin tala, en látum orðræður falla niður.