30.11.1977
Efri deild: 20. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í B-deild Alþingistíðinda. (668)
100. mál, leiklistarlög
Flm. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af þessum ummælum hv. 10. landsk. þm.
Það er alveg rétt, að ég er ekki fyllilega sáttur við þann skilning og þá túlkun á leiklistarlögunum sem uppi hefur verið í rn. En leiklistarfólk heldur því mjög ákveðið fram, að sú túlkun sé það þröng að önnur atvinnuleikhús, hvort sem þau eru starfrækt nú eða verða starfrækt, þ.e. önnur en Leikfélag Reykjavikur og Leikfélag Akureyrar, eigi þarna engan fjárstuðning vísan, hafi sem sagt enga lagalega viðspyrnu til þess að fá nokkurn fjárhagslegan styrk vegna þess að liður IV, til almennrar leiklistarstarfsemi, eigi eingöngu samkv. grg. — og samkv. 3. gr. einnig — við áhugafélögin. Breytingin er sem sagt mjög einföld í þá átt að tryggja það með lagaákvæði a.m.k., að önnur atvinnuleikhús hafi lagalega möguleika á því að hljóta styrk, eftir því sem veitt er á fjári. hverju sinni, eins og segir reyndar um alla þessa liði: Leikfélag Reykjavíkur, Leikfélag Akureyrar, áhugafélögin og til leiklistarráðsins.
Sem sagt, frv. er ósköp einfalt þannig, og til þess að ekki sé hægt að teygja þetta og toga, þá er það flutt til að veita öðrum atvinnuleikhúsum en þeim, sem þarna eru beint upp talin, lagalega viðspyrnu til þess að eiga möguleika á fjárveitingum og það telja þau sig þurfa og eiga rétt á. Ég skal játa að ég hefði miklu frekar, vegna þess að það vekur óneitanlega gyllivonir þegar komið er af stað með leiklistarlög, — ég hefði mjög gjarnan viljað sjá þarna fjárhæðir. Í fyrstu gerð þessa frv. að leiklistarlögum var um vissar fjárhæðir að ræða sem áttu svo að hækka eftir því sem vísitalan hækkaði, að mig minnir. Þetta var hins vegar fellt brott, og ég veit að tilgangslaust er með öllu að ætla sér að fara af stað með að setja upp þessar ákveðnu fjárhæðir. Rn. hefur lagt þarna ákveðið á móti og þn., sem um þetta hefur fjallað, einnig, að þarna væru tilgreindar fjárhæðir, heldur skyldi eingöngu farið eftir því sem fjvn. ákvæði á ári hverju.
Hins vegar er það staðreynd, að fyrir utan þessar upphæðir, sem ég taldi upp áðan, til Leikfélags Reykjavíkur 9 millj., 5 millj, til Leikfélags Akureyrar, 61/2 millj, til áhugafélaganna, er ekki um neinar upphæðir að ræða til þessarar leiklistarstarfsemi, nema auðvitað, og því hefði ég auðvitað ekki átt að sleppa, til Þjóðleikhússins sjálfs, sem er risi að þessu leyti með sínar 360 millj. á fjárl. þessa árs í bein framlög, sem eflaust eiga þó eftir að hækka. Þess vegna lagði ég áherslu á að Þjóðleikhúsið ætti að stuðla betur að leikstarfsemi áhugafélaganna en það hefur gert.
Það er alveg rétt hjá hv. þm., að þessi nýju leiklistarlög vöktu án efa vonir margra um að nú væri fram undan betri tíð. Ég hins vegar gerði mér grein fyrir því, að um það væri ekki að ræða, hér væri aðeins um nauðsynlega viðspyrnu að ræða. Og ég held að á grunni þessara leiklistarlaga eigum við að geta sótt öllu fastar á en gert hefur verið um fjárstuðning við þessa starfsemi, því að ef við förum að skoða þessar tölur, þá eru þær auðvitað, hvernig sem á þær er lítið, hlægilega lágar miðað við þá miklu starfsemi sem þarna fer fram.