02.12.1977
Neðri deild: 24. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (683)

98. mál, löndun á loðnu til bræðslu

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Eins og hv. 8. þm. Reykv., 1. flm. þessa máls, tók fram í framsöguræðu sinni, eru flm. frv. allir nm. í sjútvn. Nd. fyrir utan einn, þ.e.a.s. þann sem hér stendur. Við höfðum rætt þetta mál nokkuð áður en við héldum beint fund í n. og höfum síðan spjallað um það á nefndarfundum fram og til baka og velt því fyrir okkur, hvort þetta væri rétt mál og sanngjarnt, og einnig hefur nú komið þarna upp hvaða aðili hefði átt að flytja málið. Sjútvn. var ekki beðin af hæstv. ráðh. að flytja málið, nema kannske óbeint, en það fékkst ekki staðfest að þetta væri gert að hans ósk. Mér hefði fundist eðlilegast að hæstv. sjútvrh. hefði komið þessu máli sjálfur á framfæri við hv. d., en ekki svona óbeint ætlast til þess að sjútvn. eða hluti hennar flytti málið.

Ástæðan til þess, að ég er ekki einn af flm. þessa máls, er ekki fyrst og fremst sú að ég sé harður á móti málinu. Ég sé að það eru margir kostir við þetta mál, en einnig gallar. Og þegar á þessa kosti og galla er litið, þá held ég að ég verði að segja, að kostirnir séu fleiri, þó að gallarnir séu mjög áberandi. En þó ég vilji ekki berjast gegn málinu og sé því að sumu leyti hlynntur sá ég samt ekki ástæðu til þess að ganga fram fyrir skjöldu og flytja það.

1. flm., hv. þm. Pétur Sigurðsson, hefur nú geri grein fyrir efnisatriðum í málinu og er ástæðulaust að rekja það sérstak.lega frekar. Kostirnir við að fá slíkt skip hingað til loðnuseiða eru kannske fyrst og fremst þeir, að verksmiðjukostur landsmanna nýtist betur, þar sem þessu danska skipi á að beina til verksmiðja sem ekki fá afla frá þeim íslensku, þ.e.a.s. beina því til hafna sem liggja lengst frá veiðisvæðinu hverju sinni. Á það að vera í höndum loðnunefndar að sjá um framkvæmd þess.

Það er líka kostur við málið, að þarna gefum við íslenskum sjómönnum, sem eru um bori í þessu skipi, íslenskri áhöfn að öllu leyti, möguleika á að stunda veiðar á loðnu sem við eigum víst mjög mikið af. Þó eigum við að mínum dómi ekki allt of mikið af henni, þannig að það er ekki endalaust hægt að hætta við öðrum skipum en okkar. Ég er viss um að skip okkar geta áður en langt um liður veitt allt það loðnumagn sem við erum taldir geta eða mega taka hér á miðunum.

Gallarnir hins vegar við að koma þessu máli í gegn eru auðvitað fyrst og fremst þeir, að skinið er danskt, það siglir undir dönskum fána, veiðir í landhelgi Efnahagsbandalagsins þegar því hentar. Það getur fengið hluta af þeim síldveiðikvóta sem leyfður er í Norðursjó. Á sama tíma og íslenskir sjómenn, sem telja sig hafa misst þar mikils, verða að gjöra svo vel að sitja heima og horfa á, dugir þessu skipi sá danski fári og danska heimahöfn til þess að geta setið að þeim afla. Hins vegar dugir þessu skipi íslensk útgerðaraðild og íslensk áhöfn til þess að geta neitað sér toppana í loðnuveiðinni þegar það hentar því betur. Ég er viss um að þetta atriði verður ekki vinsælt hjá íslenskum sjómönnum sem stunda þessar veiðar.

Hins vegar er svo um hnútana búið í þessu frv., að það á ekki að veita fordæmi. Leyfið er gefið út á skip, eitt nafngreint skip, og fyrst og fremst um mjög takmarkaðan tíma, þ.e.a.s. aðeins á næsta ári, og á þessu ári getum við séð hver viðbrögðin verða. En ég vildi þó miklu frekar að þetta skip kæmi með sína íslensku góðu áhöfn og fyrirmyndaraflamenn og skipið yrði íslenskt að því ári liðnu, þannig að það þyrfti ekki að leita sérstakra leyfa til þessara veiða hér, en gæti tekið þátt í að veiða hluta af þeim stofnun sem við getum aukið sókn í á næstunni, ekki aðeins loðnu, heldur þegar við förum að veiða mjög mikið af kolmunna, sem allt útlit er fyrir að við getum gert svo skiptir mörgum hundruðum þúsunda tonna.

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs í þessu máli til þess að gera grein fyrir þeirri afstöðu minni að hafa ekki viljað ganga fram fyrir skjöldu í því að koma þessu máli áfram. En þar sem ég á sæti í sjútvn., þeirri n. sem fær málið til meðferðar, þá getum við sjálfsagt rætt þetta nánar og þau atriði, sem minnst hefur verið á, þegar málið kemur úr nefnd.