05.12.1977
Efri deild: 21. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í B-deild Alþingistíðinda. (691)
Umræður utan dagskrár
Forsrh, (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Hv. 5. þm. Norðurl. e. hafði nefnt það við mig fyrir helgi, að hann hygðist bera fram þessa fsp., um sama leyti og óskað var af hálfu þm. Norðurl. e. eftir fundi með ráðh. til að fjalla um það vandamál er fsp. nær til. Hann mun hafa forfallast sökum veikinda að sækja þann fund, en þar var greint frá hvað gert hefði verið af hálfu ríkisstj. til að reyna að greiða úr vandamálum þeirra Þórshafnarbúa. Efast ég raunar ekki um að hann hafi fengið eða a.m.k. að auðvelt hafi verið fyrir hann, að fá upplýsingar um hvað fór fram á þessum fundi. Þrátt fyrir það skal ég ekki láta undir höfuð leggjast að greina hér frá hvernig staða málsins er í dag.
Eins og hv. þm. drap á, hafa Þórshafnarbúar boðið fram fiskimjölsverksmiðju á staðnum til sölu til Síldarverksmiðja ríkisins, en með þeim hætti væri unnt að skapa grundvöll fyrir rekstri togarans. Hefur ríkisstj. og hæstv. sjútvrh. sérstaklega beitt sér fyrir því við stjórn Síldarverksmiðja ríkisins að viðræður yrðu teknar upp um það efni. Sannast best að segja hefur stjórn Síldarverksmiðja ríkisins fremur haft önnur fjárfestingaráform fyrr í huga en kaup á þessari verksmiðju, en hins vegar er það mál ekki enn til lykta leitt og er enn til meðferðar af hálfu stjórnvalda og af hálfu stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins sérstaklega.
Í þessu sambandi vil ég aðeins minnast á að það mun hafa verið fyrir nokkrum árum, samkvæmt beiðni Þórshafnarbúa, að Síldarverksmiðjur ríkisins seldu staðarmönnum þessa síldarverksmiðju sem þeir vilja nú selja aftur. Að vísu er það af þeim sökum, að fárra góðra kosta er völ og þessi er helstur þeirra er staðarmenn sjá til þess að skapa rekstrargrundvöll fyrir togara og fiskvinnslu.
Meðan þessi mál eru enn í athugun af hálfu Síldarverksmiðjanna hefur ríkisstj. óskað eftir því, að Byggðasjóður veiti bráðabirgðafyrirgreiðslu, svo unnt sé að halda áfram viðgerð togarans Fonts, því að ætla verður að það fiskiskip standi undir þeim útgjöldum sem endurbæturnar kosta. Mér finnst hv. þm, mála óþarflega dökkum litum hvert ástand skipsins er, því að mér er sagt að eftir þær viðgerðir, sem nú eru í gangi og fyrirhugaðar eru, verði um fyrsta flokks togara og fiskiskip að ræða.
Á þessu stigi er ekki meira að upplýsa í þessum málum, en að þeim er unnið, eins og ég hef hér greint frá.