05.12.1977
Efri deild: 21. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (693)
Umræður utan dagskrár
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Í tilefni af því máli, sem hér er til umr., vil ég taka það fram, að alla s.l. viku voru þm. Norðurl. e. mjög uppteknir af þessu máli. Við héldum bæði fund innbyrðis og náðum fundi með forsrh. um þetta mál. Fyrir okkar forgöngu var haldinn aukafundur í stjórn Framkvæmdastofnunarinnar til þess að fjalla um þessi vandamál Þórshafnarbúa. Ég held að okkur sé öllum ljóst, að hér er um gífurlega mikið vandamál að ræða sem krefst úrlausnar og hennar skjótrar. Ég hef ástæðu til að ætla að svo verði haldið á þessum málum, að þessi vandræði verði leyst. Frá mínum bæjardyrum séð finnst mér að reyni fyrst og fremst á Byggðasjóð sem slíkan að leysa vandræði eins og hér er um að ræða. Hins vegar er þetta mál, eins og hefur verið bent á af hv. fyrirspyrjanda og hv. 5. þm. Norðurl. v., mikið vandræðamál í sambandi við þessa byggð. Ég vildi aðeins koma hingað í ræðustól til þess að skýra hv. þd. frá því, að þetta mál hefur fengið mikla athugun, það er verið að vinna að lausn málsins, og ég hef óbifandi trú á því að okkur takist að fá þann skilning hjá þeim, sem halda um stjórnvölin, að fljótlega verði þetta mál farsællega leyst fyrir hluteigandi byggðarlag.