05.12.1977
Efri deild: 22. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (703)

Umræður utan dagskrár

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Ég vil fjalla nokkuð um þessa fsp. hér utan dagskrár að gefnu tilefni. Svo vildi til að ég mætti sem varamaður í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins þegar samþ. var stór lánveiting til kaupa á þessum togara. Þá gerði ég fsp. um hvað það mundi kosta að koma togaranum í viðunandi horf og hvernig rekstrarmöguleikar væru fyrir skipið og margt annað. Annar framkvæmdastjóri stofnunarinnar, hv. þm. Sverrir Hermansson, hafði um það mörg orð, að eftir gagngerar breytingar og viðgerð og flokkunarviðgerð væri skipið í mjög góðu veiðihæfu ástandi og menn ættu að geta verið bjartsýnir um að rekstur ætti að geta lyft atvinnulífi staðarins í nokkurt öryggi, en eins og fram kom hjá fyrirspyrjanda er það nú mjög bágborið og hefur oft verið svo áður. Ég dró sumt af þessu mjög í efa. Ég gerði einnig fsp. um hve miklir peningar hefðu farið í frystihúsið, sem þá hafði fengið mikla fjárhagslega fyrirgreiðslu og var nýendurbyggt. Mér telst til að fjárfesting á um 400 íbúa á þessu svæði þarna fyrir u.þ.b. tveimur árum hafi nálgast einn milljarð. Ég verð þá leiðréttur ef ég fer rangt með tölu hér, en mér telst svo til að það hafi nálgast einn milljarð. (Gripið fram í.) Ég bið hv. þm. að taka eftir: í kaup á togaranum og lagfæringu á frystihúsinu. Ég verð þá leiðréttur ef þetta er rangt. Hvað frystihúsið kostaði, það skiptir mjög miklu, og allar breytingarnar sem gerðar voru við að koma atvinnulífinu í lag aftur. Það er nauðsynlegt að fá þessa tölu fram sem fyrst.

Nú er ég ekki að lasta það, að mikið átak sé gert við að byggja upp atvinnulíf úti á landi, en ég gagnrýni það ef þetta kemur ekki að notum í atvinnulífinu og fjárfesting skilar engu til fólksins. Það gagnrýni ég ef þannig er staðið að hlutunum. Það skiptir engu máli hvort hér er um háa eða lága tölu að ræða. Það er eitthvað skakkt þá, eitthvað bogið við hlutina. Ég ræddi um það hér í fyrra, að það var ljóst í sambandi við uppbyggingu á síldarverksmiðjum að um 60–70 millj, kr. vantaði í verksmiðjuna á Þórshöfn svo hún gæti komist í gagnið, eins og sagt er, fyrir s.l. loðnuvertíð. Þá höfðu menn vonir um að þetta fjármagn yrði útvegað. Það hefur ekki verið gert. Sennilega er þessi tala orðin meira en helmingi hærri í dag. Ég tel að það eigi að útvega þetta fjármagn og koma verksmiðjunni í gagnið, og nú er sérstakt tækifæri hér á Alþ. að tryggja verksmiðjunni bráefni. Hvert er hið sérstaka tækifæri? Það er vegna þess að hér liggur fyrir frv. um, að eitt skip undir erlendum fána fái að veiða í íslenskri landhelgi, og ég hef heyrt það af vörum skipstjórans, að hann sé boðinn og búinn til að sigla þangað ef hráefnisskortur er. Ég vil hér slá tvær flugur í einu höggi: tryggja verksmiðjunni nægilegt fjármagn til að vera starfhæfa og öryggi í hráefnisöflun, því annars er það gagnslaust ef enginn vill sigla þangað. Þá þarf að upplýsa um löndunaraðstöðu, þá þarf að upplýsa um dýpi og þar fram eftir götunum og hve langan tíma þetta tekur og hve mikið fjármagn. Það er ekkert annað bægt en að fá þessar tölur. E.t.v. á þetta aðeins að vera verksvið viðkomandi þm., en mér skilst að þeir séu búnir að gera þetta að opinberu máli og þess vegna megum við allir taka þátt í umr.

Það er óverjandi að láta nærri þriðjung af vinnuafli á einhverjum stað á Íslandi vera án vinna. Það er óverjandi og enginn getur unað því, hvort sem um stóran hóp manna er að ræða eða ekki. Það er svo stórt hlutfall í viðkomandi byggðarlagi, að það er eins og hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði, rothögg á atvinnulífið. Við verðum því að leggja á það áherslu, allir þm., að hæstv. ríkisstj. taki málið til alvarlegrar athugunar og — ef Byggðasjóður hefur til þess svigrúm — gera eitthvað skjótlega til að koma atvinnulífinu í gagn aftur.

Það eru eiginlega tveir staðir þarna á Norðurlandi eystra sem hafa oft verið útundan, og mig furðar mjög á hvað þeir hafa oft verið útundan hér á Alþ. Það eru Kópasker og Þórshöfn. Þó verður varla sagt að Þórshöfn hafi verið beint útundan ef fjárfestingartölur hafa numið mörg hundruð millj. kr., þar í talið kaupverð á skipinu sem var eðlilega mjög mikið. Það hefur eitthvað vantað á til þess að atvinnulífið starfi eðlilega og hjól atvinnulífsins snúist eðlilega. Ég varpa einnig fram þeirri hugmynd, að athugað sé gaumgæfilega hvort einhver togari fáist ekki til að leggja upp með vissu millibili. Við vitum að á sumum stöðum er unnið alla laugardaga og jafnvel fram á kvöld. Er þá ekki hægt að jafna framboðið á afla með staðgreiðslu til þess, er selur, til þess að Þórshafnarbúar fái nokkuð af fiski til vinnslu, ef frystihúsið er í nothæfu ástandi? Ég varpa fram þessari spurningu. En ég legg áherslu á það og ég vænti þess, að hæstv. forsrh. beiti nú áhrifum sinum hvað mest og sem skjótast til þess að atvinnulífið fari af stað aftur í þessu litla þorpi þarna á Norðausturlandi, því það þolir ekkert þorp á Íslandi slíkt ástand til lengdar að hafa um þriðjung af vinnufæru fólki án vinnu.