06.12.1977
Sameinað þing: 26. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (715)
Umræður utan dagskrár
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Ég verð að þakka hæstv. iðnrh. fyrir að færa okkur upp í hendurnar efni sem vert er að ræða um í öllum þeim tónleika sem við höfum búið við hér á Alþ. að undanförnu. Við vitum að eitthvað mikið hefur verið að gerast í herbúðum stjórnarflokkanna þessa dagana, en það gerist heldur lítið á hv. Alþ. Við erum látnir bauka hér við minni háttar mál eða sitja hér inni og hlusta á alllangar framsöguræður sumra hæstv. ráðh., sem þá hafa tekið upp þann hátt að tala þannig að enginn maður í salnum heyri til þeirra. En það skiptir ekki miklu máli. Við vitum að öll stóru málin hafa verið til meðferðar einhvers staðar annars staðar og við erum látnir bíða, og það er helst að skilja á öllu, að við eigum, t.d. almennir þm. hér ekkert að fá að heyra varðandi afgreiðslu fjárl. fyrr en um miðjan desembermánuð eða þegar kannske tæp vika verður til jólafris. Auðvitað er ekki staðið við marggefið loforð um það, að lánsfjáráætlunin, sem markar stefnuna í efnahagsmálum að verulegu leyti, sé lögð fram í nóvember, eins og margsinnis hefur verið lýst yfir af ríkisstj. að skyldi verða gert. Hún er ekki komin fram enn þá. Þetta þekkjum við öll hér á Alþ. hvernig er ástatt í þessum efnum. En hér er þó boðið upp á það að ræða um eitt mikilsvert málefni, þ.e. um aronskuna og deilurnar í Sjálfstfl. um það merkilega mál.
Nú er það svo, að þetta mál varðar ekki þá Sjálfstfl: menn eina, og því er full ástæða til þess að ræða málið og það ítarlega hér á Alþ. nú þegar hæstv. iðnrh. er svo elskulegur að taka málið upp á þennan hátt.
Það hefur auðvitað ekki farið fram hjá neinum manni svo að segja í þessu landi, að fram hafa farið að undanförnu heiftúðlegar deilur innan Sjálfstfl. um afstöðuna til aronskunnar. í þeim umr., sem hér fóru fram fyrir nokkru utan dagskrár á Alþ., gerði hæstv. forsrh. nokkra grein fyrir afstöðu sinni. Það hefur hann einnig gert á öðrum vettvangi. Og Morgunblaðið hefur greinilega sagt hver afstaða þess er. Afstaða hæstv. forsrh. var á þá lund, að hann væri algerlega á móti því að farið yrði til viðbótar við það sem er að taka við fjárgreiðslum frá hinu erlenda herliði sem dvelur í landinu. Það var mjög greinilegt á málflutningi hans, að hann undi þessu ástandi tiltölulega vel eins og það er. Að vísu lágu orð hans að því, að það þyrfti að meta á hverjum tíma aðstöðuna í þessum málum, í hinum svonefndu varnarmálum, og vissulega gæti það mat leitt til þess, að hér þyrfti að ráðast í enn frekari hernaðarframkvæmdir í landinu en gert hefur verið. Í þeim efnum hafði hann m.a. minnst á það, að til þess gæti komið, að gerður yrði sérstakur herflugvöllur á Austurlandi og þá þyrfti að tengja þann völl eða aðra slíka veili, sem kynnu að verða gerðir annars staðar á landinu, saman t.d. við herflugvöllinn hér syðra og þá væri greinilega komin upp ný staða. Og okkur fannst það ýmsum þm, hér, að það mætti lesa út úr þessum orðum hæstv. forsrh., að ef að þessu ráði yrði horfið eða ef þetta mál kæmi upp, þá lægju þessi mál nokkuð öðruvísi fyrir en nú og þá væri e.t.v. til í dæminu að fara að taka umtalsverðar greiðslur af hinu erlenda hernámsliði umfram það sem er í dag. En þegar gengið var að hæstv. forsrh, í sambandi við þetta, þá færðist hann mjög undan og lét eiginlega í það skína, að hann hefði minnst á hervöll á Austurlandi í þágu varnanna næstum að segja af tilviljun og til aðvörunar fyrir ýmsa o.s.frv., en í rauninni hefði hann ekki meint neitt með þessu og því væri ekki beint þörf á að ræða það. Svo sennilegt sem það er út af fyrir sig, þegar hann stóð í sínum flokki í því varnarstríði sem hann var þá í greinilega — í sambandi við þessi mál þá nefndi hann slíkt stórmál sem þetta af einhverri hendingu.
Það hefur ekki heldur farið fram hjá okkur, að það voru ýmsir menn í Sjálfstfl. sem höfðu allt aðra skoðun á þessum málum en þá sem hæstv. forsrh. hefur túlkað. Dagblaðið Vísir hefur m.a. skýrt frá því, hver hafi verið afstaða hæstv. iðnrh. í þessum efnum, og haft eftir honum tiltekin ummæli sem hæstv. iðnrh. hefur nú afneitað. En mér sýnist að það, sem hæstv. iðnrh. sagði um afstöðu sína til þessara mála, sýni mjög ljóslega að hæstv. iðnrh. og hæstv. forsrh. hafa hvor sína skoðun í þessu stóra máli, því að auðvitað snýst þetta mál, eins og það er lagt fyrir í dag, einfaldlega um það, hvort Íslendingar eigi að krefja hið ameríska herlið, sem dvelur í landinu, um frekari fjárgreiðslur en eru í dag. Um það snýst málið. Menn geta auðvitað kallað þessar frekari fjárgreiðslur ýmsum nöfnum. Hæstv. forsrh. hefur t.d. túlkað málið þannig, að hann sé alveg á móti því að selja landið. Hann vill ekki setja verðmiða á Ísland og selja það. Það eru einhverjir allt aðrir vondir menn, sem eflaust er að finna í Sjálfstfl., sem þetta vilja gera. Og hæstv. iðnrh. segir: Ég er á móti því að taka sérstakt leigugjald fyrir flugvöllinn eða nokkra sérstaka landleigu. — Það var greinilegt að hann var á móti sérstöku leigugjaldi fyrir varnarstöðina, eins og hann orðaði það. En hvað vildi þá hæstv. iðnrh. að gert yrði þó í þessum nýju fjárkröfumálum? Það var býsna athyglisvert. Jú, það var ljóst að hann vildi að hinn erlendi her tæki að einhverju verulegu leyti að sér almannavarnir í landinu, þó undir stjórn Íslendinga, nefndi í þessu sambandi, að það yrði að verja fólkið í landinu ekki síður en landið sjálft og til þess að hægt væri að verja fólkið þyrfti að huga að ýmsu í landinu sjálfu, m.a. að við byggjum við margar þröngar brýr og vonda vegi.
Til hvers er þetta nefnt? Fer það nokkuð á milli mála, að sá, sem þetta segir, vill láta víkka brýrnar svo að menn komist greiðlega þar yfir með það fólk sem á að bjarga? Fer nokkuð á milli mála, að hann vill láta lagfæra vegina og hann vill fá peninga frá einhverjum í þessa vegi? Hvort flokksbræður hans og flokkssystkini kalla þetta að hann vilji selja landið og setja verðmiða á Ísland eða ekki, það kemur ekki mikið við mig. Það skiptir ekki neinu höfuðmáli. Hér er aðeins spurningin um það, að sá aðili, sem talar á þennan hátt, vill fá meiri peninga fyrir snúð sinn.
Þetta var ekki það einasta sem kom fram hjá hæstv. iðnrh. Hann vildi ýmislegt fleira. Hann taldi upp átta atriði. Hann nefndi það í öðru lagi, að við þyrftum að hafa íslenska sérfræðinga sem gæfu sig að þessum málum. Jú, það er ekkert um það að villast, að þar a.m.k. hefðu getað opnast möguleikar fyrir okkur að koma talsvert mörgum mönnum í vinnu og fá eitthvað fyrir þá til þess að snúast í kringum herliðið. Það er hægt að láta þá borga með ýmsum hætti, að ég tali nú ekki um það, þegar komið var að síðasta töluliðnum sem hæstv. ráðh.
taldi hér upp, en hann var eitthvað á þessa leið: Athuga þarf um það, hvort fleiri verktakar en nú taka þátt í framkvæmdum geti ekki komið til með að taka að sér framkvæmdir á vegum hersins.
Hæstv. forsrh. er tiltölulega ánægður með það ástand sem er. Hann vill hafa þetta nokkurn veginn eins og það er. Íslenskir aðalverktakar eru þarna komnir upp úr gömlum Sameinuðum verktökum sem hann stjórnaði einu sinni. Þetta er allt sæmilega gott og menn geta bara vel unað við það. Þeir græða vel. Rannsókn fær sinn bita út úr öllu saman. Hún á svolítinn part í félaginu og hefur ekki verið að mögla í svipinn. Og hæstv. forsrh. og hluti Sjálfstfl. er ánægður með þetta fyrirkomulag. En svo kemur hæstv. iðnrh., varaformaður Sjálfstfl., og hann er óánægður með skipulagið. Hann vill athuga þetta betur, hvort ekki geti komið fleiri inn í þetta púkk. Hann er sýnilega með einhverja sem þurfa að komast þarna að líka. Þetta er auðskilið út af fyrir sig hjá þeim sem eru á fjörunum eftir því að fá þarna meiri peninga og vilja fá meira fyrir snúð sinn.
Hæstv. iðnrh. nefndi líka að herliðið þar suður frá fengi vörur sínar undanþegnar tolli. Jú, við höfum vitað lengi að þetta var svona. Af hverju nefnir hann þetta sem þriðja atriði? Hann vill sýnilega fara að láta herinn borga toll og fá peninga í tolltekjum af innflutningi þeirra. Ég gat ekki skilið mál hans á annan veg en þann. Þetta gat ekki komið inn í þessa upptalningu hafandi neina þýðingu, nema það væri meiningin að hafa út úr þeim peninga eftir þessari leið. Vissulega er þetta hægt. Það hefur oft verið minnst á þetta áður. En það var líka ljóst, að hæstv. forsrh. taldi ástandið viðunandi eins og það væri og var ekkert á því að fá frekari peninga, ekki eftir þessari leið heldur.
Svo nefndi hæstv. iðnrh. einnig að Íslendingar yrðu að greiða drepþungan bensínskatt til þess að halda uppi vegakerfinu í landinu, en þeir þarna innan girðingar fyrir sunnan slyppu alveg við þann skatt, en væru samt á okkar vegum. Það var augljóst mál, að hann vildi láta þá borga þarna eitthvað til samræmis við Íslendinga, þeir yrðu að borga eitthvert gjald til jöfnunar við það sem Íslendingar greiddu í bensínskatt.
Þegar þetta allt er tekið saman sem hér hefur verið nefnt, þá er augljóst að hæstv. iðnrh. er á því, að við eigum að láta hið ameríska herlið, sem hér dvelur, borga meira en það hefur gert. Hann hefur þegar fundið upp ýmsar leiðir til þess. Það er hægt að leggja á þá þetta gjald og hitt gjaldið, hinn skattinn, og koma að hjá þeim mönnum umfram það sem nú er. Það er hægt að hafa meira fé út úr þessu. En hæstv. forsrh. hafði áður túlkað að hann væri því algjörlega andvígur. Og það hefur Morgunblaðið einnig sagt í sínum málflutningi. Það vill ekki að við verðum fjárhagslega háðir hinu svonefnda varnarliði.
Ég segi það, að mér þykir þetta mál svo stórt og alvarlegt að full ástæða sé til þess, að hv. Alþ. eyði nokkru af þeim tíma, sem það á alveg nóg af núna í aðgerðarleysinu, til að ræða um þetta mál. Þannig er nú komið, að núv. ríkisstj. hefur siglt okkar efnahagsmálum fullkomlega í strand þrátt fyrir í rauninni einstætt góðæri, meiri framleiðslu til lands og sjávar en nokkru sinni áður og hærra verð fyrir okkar útflutningsvörur en við höfum nokkurn tíma áður fengið. Efnahagsvandinn er slíkur alls staðar, að allt er í rauninni í upplausn, og þrátt fyrir allt verða menn að játa að kaupmáttur hinna almennu launa er síst meiri en hann var þegar ríkisstj. tók við völdum. Það er svo sem eðlilegt, þegar þannig er komið, að þá komi það upp hjá ríkisstj. hvernig hún geti fundið upp á einhverjum nýjum leiðum til að krafsa inn viðbótarpeninga við það sem þegar er krafsað inn. Af þeim ástæðum auðvitað hefur aronskan komið svo mikið upp á yfirborðið eins og hún hefur gert nú upp á síðkastið. Nú gerast þeir menn allháværir sem segja: Við eigum ekki aðeins að hafa þetta herlið í landinu, sem er hér auðvitað fyrst og fremst á vegum Bandaríkjamanna sjálfra og fyrir þá, við eigum að hafa út úr herliðinn meira fé. Við eigum að athuga um það, hvort þeir þurfa ekki á því að halda að fá hér frekari herframkvæmdir í landinu. Við eigum að athuga hvort það er ekki hægt að koma fleiri mönnum í vinnu til þeirra. Við eigum að athuga hvort við komum ekki einhverjum nýjum verktökum inn í þennan mikla „bisness“. Og við eigum að athuga hvort ríkissjóður geti ekki fengið meiri tekjur af þessu liði en við höfum hingað til fengið.
Þetta eru ástæðurnar til þess að aronskan kemur upp. Menn eru búnir að sigla hér öllu í strand, og þá er til þess arna gripið. Hæstv. forsrh. er sýnilega hræddur við að fara þessa leið, m.a. vegna þess sem hann hefur sagt um þessi mál áður. Það er Morgunblaðið líka. Við höfum enn ekki heyrt hvaða leið það er sem hæstv. forsrh. og Morgunblaðið vilja fara til lausnar á efnahagsvandanum. Við sjáum nokkuð af því, hvað hæstv. iðnrh, vill gera til þess að leysa vandann. Ég held að það fari ekkert á milli mála, þó að hann afneiti þeim ummælum sem Vísir hefur haft eftir honum og hefur eflaust haft ranglega eftir honum, þá sýnist mér að kjarni málsins liggi ljóslega fyrir, að hæstv. iðnrh. hefur verið og er á þeirri skoðun, að hann vill taka meira gjald af hinum erlenda her en tekið hefur verið. Það er kjarni málsins. Hvort hann vill taka sérstakt fast leigugjald fyrir herstöðina eða ekki, það er í rauninni aðeins form á, málinu, en eldri kjarni málsins.
Það verður mjög fróðlegt að heyra það þegar fleiri sjálfstæðismenn koma í þennan hóp og lýsa afstöðu sinni til þessa stóra máls. Við skulum vona að hér geti orðið fjörugar umr, og merkilegar um býsna stórt mál, því það er sýnilegt að innan Sjálfstfl. ríkir engin ein skoðun í málinu. Ég held að málið sé engan veginn þannig, að það sé eitthvað einangrað við formann Sjálfstfl. og varaformann. Það er ábyggilegt að innan flokksins eru stórar og sterkar fylkingar sem takast á um afstöðuna í þessu máli.
Ég þarf auðvitað ekki að taka það fram, sem fram hefur komið frá mér, að mér þykir hernámið nógu bölvað, eins og það hefur verið, og nógu hættulegt fyrir okkur þó að ofan á þá skömm og þá áhættu alla bætist ekki að það eigi að gera okkur enn þá háðari þessu hernámi fjárhagslega en við höfum verið. Lengi getur vont versnað, eins og þar stendur. Og það er auðvitað enginn vafi á því, að ef farið yrði inn á þessa braut sem hæstv. iðnrh, er hér sýnilega talsmaður fyrir, — þó hann vilji kannske ekki kalla það aronsku, þá sýnist mér það vera aronska, — þá er greinilegt að þá værum við, ef yrði farið inn á þá braut sem hann boðar hér, að gera okkur háðari hinum erlenda her en við þó erum — og nóg er samt.
Það er enginn vafi á því, það er hægt að benda á ýmis sannindamerki um það, að það eru býsna sterkir aðilar erlendis sem hafa verið að ýta á með það að undanförnu að fá enn þá sterkari hernaðarleg ítök í okkar landi en þeir hafa í dag. Það hafa birst hér greinar úr erlendum blöðum í okkar íslensku blöðum síðustu daga, þar sem hefur greinilega komið fram, að opinskátt er rætt um það erlendis að það þurfi að fá hér miklu sterkari aðstöðu og viðtækari aðstöðu fyrir erlendan her en ameríski herinn býr við í dag. Það fer ekkert á milli mála, að það eru uppi till. í þessa átt, og við vitum um það, í forustuliði Sjálfstfl. hefur það komið fram margsinnis áður, að þar eru til ýmsir aðilar sem alltaf virðast vera tilbúnir til þess a.m.k. að hlusta á kröfur í þá átt að opna enn þá frekar fyrir hernámi hér í landinu en hefur verið. Ég efast ekkert um það fyrir mitt leyti, að ef við færum inn á þá hraut að gerast fjárhagslega háðari hernáminu en við erum í dag, þá mundum við um leið vera að ryðja brautina fyrir enn þá frekara hernámi í landinu. Ég óttast það, að afleiðingin af því yrði m.a. sú, að það yrði fljótlega farið að byggja nýjan herflugvöll á Austurlandi og kannske enn annan á Norðurlandi og þeir yrðu þá enn þá fleiri Íslendingarnir sem snerust í kringum einhvern hernámsgróða. Og þá yrðu það einnig enn þá fleiri sem gæfust upp á því að reyna að stjórna efnahagsmálum Íslendinga. Að mínum dómi væri nær að við ræddum á eðlilegan hátt hér á Alþ. um þann stórkostlega vanda sem við stöndum frammi fyrir í efnahagsmálum þjóðarinnar, eins og komið er, og hvað væri helst til úrræða í sambandi við það sem við getum augljóslega gert sjálfir, Íslendingar, án þess að ætla að grípa til slíkra óyndisúrræða eins og þarna er verið að togast á um í Sjálfstfl.
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri að sinni, en ég vonast til þess að heyra eitthvað af framhaldinu af þeim deilum sem eiga sér stað innan Sjálfstfl.