07.12.1977
Efri deild: 23. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 985 í B-deild Alþingistíðinda. (728)
113. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég get verið mjög stuttorður. Ég vil aðeins taka í einu og öllu undir orð hv. síðasta ræðumanns, hafði það sama í huga, að vekja athygli á því, að óhjákvæmilegt væri að við fengjum nánari grg. með þessu frv., jafnframt því að ég tel eðlilegt að þetta mál fari til fjh.- og viðskn. Það er þannig vaxið.
Nú vita allir menn að langar umr, urðu í Sþ. um mótun og skipan í orkumálum og þar inn í fléttaðist hugmyndin um verðjöfnunargjald af orkusölu í landinu. Því tel ég mjög mikilvægt, þar sem það kom fram í Sþ. að verulegur meiri hluti virðist vera fyrir meginefni þeirrar þáltill. er þar var lögð fram, en það voru hvorki meira né minna en allir þm. Framsfl. flm. að þeirri þáltill. að undanskildum ráðh., og ég verð því að óska þess eindregið, eins og hv. síðasti ræðumaður, að við fáum grg. um þessi mál og rekstraráætlun, mjög glögga, um Orkubú Vestfjarða, þar sem hæstv. ráðh. vitnaði í þarfir á skiptingu á þessu gjaldi vegna rekstrarörðugleika Orkubúsins.
Ég get vel ímyndað mér að við verðum að taka það skref, sem frv. gerir ráð fyrir, og er ekki að boða neina andspyrnu gagnvart frv. sem slíku. En er nákvæmlega þessi skipting nauðsynleg og hin eina rétta eða ekki? Eins og kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, þá varðar aðra landsfjórðunga mjög um hvað þeir eiga í vændum, ef eftir þessari stefnu verður farið alfarið.
Ég sem sagt vil eindregið mælast til þess, að málið verði skoðað í nýju ljósi. Það kom ekki fram eða ég hnaut ekki um það í orðum hæstv. ráðh., hvort hann leggur á það áherslu að þetta fari í gegn þegar í stað eða ekki. Ef svo er, að við fáum sæmilegt svigrúm til að fjalla um málið og fá gögn í málinu, sem ég tel óhjákvæmilegt að við fáum, þá er það vel. En ég tel það mjög miður og tel vægast sagt ekki hægt að fylgja því ef það á að fara í gegn núna á einni viku eða svo.
Ég skal ekki hafa þessa aths. lengri, herra forseti, vildi aðeins undirstrika það, að þetta mál er svo stórt og að nokkru leyti um grundvallaratriði að ræða, að við hljótum að eiga rétt á verulega góðum grg. og athugunum á málinu.