07.12.1977
Neðri deild: 26. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (738)

21. mál, kosningar til Alþingis

Magnús Kjartansson:

Hæstv. forseti. Þetta frv. er nú til umr. hér í Nd. Alþ. í þriðja skipti. Ég hygg að mælt hafi verið fyrir því 10. nóv., fyrir næstum því mánuði, en síðan var rætt um það öðru sinni fyrir svo sem hálfum mánuði. Ég kvaddi mér hljóðs í annað skiptið sem rætt var um það í tilefni af einhverjum ummælum, mig minnir að það hafi verið í tilefni af ræðu hv. þm. Tómasar Árnasonar. En ég er nú satt að segja búinn að gleyma tilefni þess að ég kvaddi mér hljóðs. Engu að síður vil ég gjarnan segja nokkur orð um þetta mál.

Það hefur tíðkast mjög á Íslandi á undanförnum árum að talað hefur verið óvirðulega bæði um Alþingi Íslendinga og um íslenska stjórnmálaflokka. Uppi hefur verið mjög neikvæður tónn í garð Alþingis Íslendinga og sú gagnrýni, sem fram hefur verið borin, hefur að minni hyggju verið studd nokkrum rökum. Við höfum ekki endurnýjað starfshætti Alþ. eins og við hefðum þurft að gera þegar sú sjálfsagða breyting var tekin upp að alþingisstarf varð fullt starf í þjóðfélaginu. Fyrir þann tíma fengu alþm., eins og allir vita, afar lágar greiðslur fyrir störf sín og urðu að gegna öðru starfi við hliðina á þingmennskunni til þess að hafa lífsframfæri. Þessi breyting gerði það hins vegar að verkum að alþm. hafa sómasamleg laun allt árið, en þessu hefur ekki verið fylgt eftir með því að ætlast til þess að alþm. helguðu viðfangsefnum sínum krafta sína á sama hátt og gert er í öðrum þjóðþingum þar sem ég þekki til. Við tökum okkur afarlangt sumarleyfi til að mynda, og þá er ekkert starfað formlega á vegum Alþ. sjálfs. Annars staðar, þar sem ég þekki til, t.a.m. alls staðar á Norðurlöndum, starfa nefndir þingsins allan ársins hring, og þegar hlé er á þingstörfum kanna þn. einstök mál, fylgjast með því hvernig ríkisstj. heldur á málum sem samþykkt hafa verið á þingi o.s.frv. Ég held að það ætti að huga að því, að Alþingi Íslendinga taki á sig talsvert meiri starfsbyrði en verið hefur, einmitt til þess að afla sér vitneskju um alls konar vandamál, sem uppi eru í þjóðfélaginu, og reyna að vinna saman að því að leysa vandamál, sem upp koma, og einnig að fylgjast með því, hvernig ríkisstj. hverju sinni fara með ákvarðanir Alþ.

En það er ákaflega mikið um það að ráðh. láta sér nægja að loka ákvarðanir Alþ. niðri í skúffu hjá sér og framkvæma þær ekki og þetta lætur Alþ. sér lynda.

En jafnhliða þessum áróðri gegn Alþ., sem uppi hefur verið lengi, hefur verið í gangi að undanförnu áróður gegn stjórnmálaflokkum, að stjórnmálaflokkar séu einhver annarleg fyrirbæri í þjóðfélaginu, og í staðinn hafa menn farið að flíka einhverjum einstaklingum sem ættu að vera réttu mennirnir til þess að sitja hér á Alþ. Röksemdin hefur verið sú, að þar hefur verið um menn að ræða sem oft hafa birst á sjónvarpsskermi og komið þar vel fyrir. Þeir menn eru taldir tilvaldir til að vera á Alþ. Ég ætla að þetta viðhorf sé ákaflega hættulegt. En það verður vart vissrar uppgjafar fyrir þessum áróðri, sem er að minni hyggju andstæður heilbrigðri lýðræðishugmynd, hér á hinu háa Alþ. Það kemur m.a. fram í frv. því til laga, sem nú er til umr., frá hv. þm. Jóni Skaftasyni. Hann er með þá hugmynd að listum sé ekki raðað hjá stjórnmálaflokkum eins og gert hefur verið, heldur skuli mönnum á listanum raðað í stafrófsröð.

Nú er það svo, að víða um lönd eru ákvæði sem gera auðveldara fyrir að gera upp á milli manna heldur en hér á Íslandi í sambandi við kosningar. En reynslan er sú, að það er tiltölulega mjög lítill hluti kjósenda sem kýs með því hugarfari. Það er mjög lítill hluti kjósenda sem kýs flokk út af einhverjum mönnum sem eru á listanum, heldur vegna stefnumiða sem flokkarnir eru fulltrúar fyrir. Það er ákaflega litið um það í löndum þar sem ég þekki til í námunda við okkur í Evrópu, að menn noti rétt til þess að færa til menn á listum, og ég er sannfærður um að sú yrði raunin hér einnig ef farið væri inn á þessa braut sem hv. þm. Jón Skaftason leggur til, að notuð verði stafrófsröð.

Ég hef átt sæti í stjórnmálaflokkum í meira en 30 ár þar sem kosið hefur verið til vissra trúnaðarstarfa eftir listum sem raðað hefur verið á eftir stafrófsröð. Þannig hafa verið kosnir fulltrúar á flokksþing eða landsfundi þeirra stjórnmálasamtaka sem ég hef verið í, og þannig hafa einnig verið kosnir fulltrúar í miðstjórn. Ég hef talsverða reynslu af þessu og sú reynsla er dálítið skrýtin og skemmtileg. Það hefur allan tímann sannast að þeir, sem eru snemma í stafrófsröðinni, hafa meiri líkur á að vera kosnir en þeir, sem voru siðar í stafrófsröðinni. Þetta hefur stafað einfaldlega af því, að fólk hefur vitað að það hafði þarna möguleika á að kjósa 20, 30, 40 menn t.a.m. og hefur ráðstafað atkv. frjálslegar í upphafi. Svo áttaði það sig á því, þegar það var komið niður á miðjan lista eða svo, að það eru ekki eftir nema fá atkv. og þá þurfti að fara að velja og hafna, þannig að ef einhver fræðimaður færi að athuga, hvaða regla væri á bak við þá menn, sem setið hafa í miðstjórnum í Sósíalistaflokknum og Alþb., þá kynni að vera hægt að grafa upp einhver átakamál, ég veit það ekki. En aðalreglan yrði sú að meiri hluti fólks er snemma í stafrófsröð með nöfn sín. Ef tekin væri upp þessi regla, sem hv. þm. Jón Skaftason gerir till. um, mætti segja mér að ýmsir annarlegir atburðir færu að gerast. Það er hægt að fá nafnbreytingar hér á Íslandi, og ég geri ráð fyrir því að þeir, sem hefðu áhuga á því að komast á þing, mundu fara út í það að fá breytt nöfnum sínum. Það gæti endað á því, að allir karlmenn hér á þingi hétu Aðalbergur — mig minnir að það sé fyrsta nafnið í stafrófsröðinni í bókum um mannanöfn — og að allar konur hér á þingi hétu Aðalbjörg. Ef þessi þróun héldi áfram, ásamt því að þingmennskustarf erfist eins og nú virðist vera farið að gerast, getur það endað á því, að allir þm. á Íslandi heiti Aðalbergur Aðalbergsson og allar konur á þingi heiti Aðalbjörg Aðalbergsdóttir. Þetta getur leitt til slíks ástands, vegna þess að þetta vandamál, sem verið er að tala um, er miklu, miklu minna en menn halda. Upphafið, stafurinn sem nöfn manna byrja á, hefur miklu meiri áhrif en allur ágreiningur sem kann að vera um einstaklinga eða stjórnmálaflokka.

Hér er sem sé verið að leggja til að tekið verði upp visst stjórnleysi í sambandi við kjör manna á þing. En mér er spurn: Hvers vegna er ekki farið lengra? Það er hægt að velja menn á þing samkv. reglum líkindareiknings. Það er t.a.m. hægt að hafa þann hátt á að steypa hér úti á Austurvelli fyrir aftan styttuna af Jóni Sigurðssyni heljarstóran harðkúluhatt og setja í hann nöfn allra þeirra sem hafa kosningarrétt á Íslandi. Síðan væri hægt að framkvæma kosninguna þannig að velja einhverja fallega stúlku og klæða hana í föt Fjallkonunnar. Það yrði að vísu að hengja hana neðan í krana, en láta hana síðan síga ofan í hattinn og draga nöfn úr hattinum þangað til 60 nöfn væru komin. Rétt væri að hafa hátíðahöld með þessu. Það mætti láta forseta þjóðarinnar vera viðstaddan og áhorfendur gætu sungið „Öxar við ána“ eða eitthvað þess háttar. En líkindareikningurinn segir að upp úr þessu myndi koma sama hlutfall á milli stjórnmálaflokka og er í raun og veru, að vísu ekki hverju sinni, en ef við tækjum tímabil eins og t.d. eina öld, þá mundi koma út að þetta væri alveg rétt mynd sem kæmi af stjórnmálaátökunum í landinu, og fyrir þjóð, sem hefur þjóðsöng þar sem lögð eru að jöfnu einn dagur og þúsund ár, skiptir varla miklu máli um eina öld eða svo, þótt einhverjir smágallar væru á þessari framkvæmd. Með þessu móti væri hægt að leggja niður alla stjórnmálaflokka á Íslandi og þetta yrði bara að eins konar þjóðhátíð, eða hvað menn kalla það, hvernig menn væru valdir hér á hið háa Alþ. Með þessu er hins vegar verið að gefa undir fótinn ákaflega háskalegu sjónarmiði að mínu viti. Það sem á að skera úr um þjóðmálaátök eru stefnumið stjórnmálaflokkanna og raunar einnig þeir hagsmunahópar sem flokkarnir berjast fyrir. Ef ekki er tekist á um málefni hér á hinu háa Alþ., þá verður þetta að marklausri stofnun með öllu — algerlega marklausri stofnun.

Ég vil lýsa sárum vonbrigðum mínum með að hugmyndir um glundroða og hreina vitleysu á þessu sviði skuli eiga formælendur hér á hinu háa Alþ. Ef við viljum hafa raunverulegt lýðræði verður það að byggjast á skoðunum og samtökum um skoðanir. En að gera þetta að einhverri stofnun fyrir framagosa, sem líta vel út á sjónvarpsskermi, finnst mér ákaflega alvarleg hugmynd.

Í sambandi við umr. um þetta skringilega frv., sem mér finnst einvörðungu hjákátlegt, hefur margt borið á góma í sambandi við kosningarrétt og kjördæmi. Ég hef áður lýst því hér á Alþ. hver er afstaða mín til kosningarréttar. Ég lít svo á að kosningarréttur sé mannréttindi og það megi ekki skerða þau mannréttindi út frá neinum sjónarmíðum. Við skulum muna eftir því, að meðan kosningarréttur var bundinn við eignir manna á Íslandi voru færð rök fyrir því, að það væri hættulegt að breyta þessari skipan, og menn tóku þær röksemdir alvarlega. Það er hægt að lesa æðimikið um þetta. Slíkar röksemdir eru sem betur fer ekki til lengur, en þær voru til þá. Og alveg nákvæmlega sama máli gegndi um það, þegar konur fengu atkvæðisrétt. Þá voru haldnar um það alvarlegar og rökstuddar ræður, hvað væri hættulegt að konur hefðu kosningarrétt. Þetta segir enginn núna, og ég er ansi hræddur um að röksemdir sem uppi eru um að fólk, sem búi á einhverjum tilteknum landshluta, eigi að hafa margfaldan kosningarrétt á við aðra, verði taldar mjög undarlegt fyrirbæri eftir tiltölulega skamman tíma. Mér er það fullkomlega ljóst, að byggðir landsins hafa mismunandi aðstöðu til þess að gegna ýmsum verkefnum. En það á ekki að leysa með því að skerða mannréttindi, það er alveg fráleit hugmynd. Ég veit ósköp vel að þm. utan af landi hafa margir miklar annir fyrir fólk í kjördæmi sínu. Þeir gegna hvers konar erindum, og ég hef síst neitt við það að athuga. Það verður að vera til kerfi sem gerir öllum landshlutum kleift að hafa greiðan aðgang að þeim opinberu stofnunum til að mynda, sem menn þurfa að leita til. En það á ekki að gera það með því að skerða mannréttindi. Það er algerlega röng regla.

Stundum heyrist að kjördæmi, önnur en Reykjavík, þurfi að hafa meiri rétt vegna þess að hér í Reykjavík séu miðstöðvar stjórnkerfisins alls. Ég held að þessar kenningar séu algerlega rangar og komi ekki einu sinni fram í verki. Menn hafa yfirleitt verið kosnir á þing hér á Íslandi eftir stjórnmálaflokkum. Þegar ég sat í ríkisstj. þeirri, sem áður var en sú sem nú situr, þá hafði hv. þm. Karvel Pálmason áhuga á mörgum málum í tengslum við kjördæmi sitt. En hann leitaði ekki til fulltrúa Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi um stuðning við málefni sin. Hann leitaði ekki til fulltrúa Alþfl. í Vestfjarðakjördæmi um stuðning við málefni sín. Hann leitaði m.a. til mín, Reykvíkingsins, og ég veit ekki til að ég hafi sinnt hans erindum neitt verr en aðrir. Ég hef aldrei litið svo á að ég sæti hér á þingi sem einhver sérstakur fulltrúi Reykjavíkur. Mér er vissulega annt um að Reykjavík fái þá aðstöðu sem hún þarf að hafa. Ég tel mig sitja hér á þingi sem fulltrúa stjórnmálaflokks með tilteknar stjórnmálaskoðanir, og mér hefur aldrei dottið í hug að setjast á hagsmunamál annarra kjördæma vegna þess að þau væru ekki hluti af því kjördæmi sem ég er kosinn í, enda minnist ég þess ekki að á þeim tíma, sem ég gegndi framkvæmdastjórastörfum fyrir hið háa Alþ., hafi ég nokkurn tíma sætt ámæli fyrir það að ég hafi tekið Reykjavík fram yfir önnur kjördæmi. Mér hefur aldrei dottið í hug að lita þannig á mál, og ég vil satt að segja gagnrýna það enn einu sinni að mér finnst sumir þm. úti á landi ala á óeðlilegan og óheiðarlegan hátt á því að reyna að búa til óvild til Reykjavíkur hjá fólki úti um land. Þetta er algerlega ómaklegt, og þetta er hættulegt. Mál þróast ekki hér á þingi á kjördæmagrundvelli, heldur á flokksgrundvelli.

Ég minntist áðan á hv. þm. Karvel Pálmason. Sama máli gegnir um hv. þm. Tómas Árnason. Hann leitaði stundum til mín um málefni Austurlands. En ég efast um, að hann hafi nokkurn tíma leitað til hv. þm. Sverris Hermannssonar, þó að hann sé kosinn í sama kjördæmi. (Gripið fram í.) Það sýnir að það er ekki kjördæmið, sem skiptir máli, heldur flokkarnir sem menn eru fulltrúar fyrir. Þess vegna er þessi röksemd, að það sé eitthvert hagsmunamál fyrir t.a.m. Vestfirði að Vestfirðingar hafi fjórfaldan atkvæðisrétt eða fimmgildan á við Reykvíkinga, algerlega röng. Hún brýtur ekki aðeins í bága við mannréttindi, eins og ég sagði áðan, hún er einnig röng í sambandi við þau átök, sem fram kunna að fara á Alþ., því að átökin fara ekki þannig fram.

Það, sem ég vildi leggja áherslu á í sambandi við þetta mál, er þetta meginatriði: Kosningarrétturinn er mannréttindi, og það á ekki að fjalla um kosningarrétt á neinum öðrum forsendum. Menn, sem vilja misskammta mönnum kosningarrétt út frá annarlegum hagsmunum, eru andvígir lýðræði og þingræði, — svona einfalt er það.

Ég hef lokið máli mínu.