08.12.1977
Sameinað þing: 28. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1024 í B-deild Alþingistíðinda. (746)
39. mál, flugsamgöngur við Vestfirði
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Aðeins fáein orð til viðbótar. — Ég vissi alltaf að hv. 5. þm. Suðurl. þætti vænt um okkur Vestfirðinga og Vestfirði, þó að hann léti nú einhvern tíma þau orð falla, að Vestfirðir væru einhver ólöguleg viðbótarslaufa á landinu sem þyrfti að klippa af, en það var ekki verið að tala um flugmál þá, — ég held að það hafi verið samgöngur á sjó. Og mikið þykir mér til um traust hans á mér sem Vestfirðingi, að ég skuli ekki þurfa nein tæki, flugvélar eða annað, heldur muni ég finna hjálparlaust fjöllin vestfirsku á eigin vængjum. Ætli það væri nú ekki vissara fyrir mig að hafa flugráðsmanninn Garðar Sigurðsson mér við hlið til að vera eilítið öruggari? En að gamni slepptu vil ég endurtaka það, að við erum ekki að gefa í skyn að það sé viljaleysi eða samhaldssemi eða níska í garð Vestfirðinga sem þarna sé helst að átelja, heldur einfaldlega okkar sérstaklega erfiða aðstaða í samgöngulegu tilliti.
Ég hjó eftir því að hæstv. ráðh. sagði út frá efni þessarar till., að það væri hæpið að gera úttekt á úttekt ofan, og átti þá vafalaust við þá athugun, sem hér er farið fram á, og í annan stað þá skýrslu sem hann vitnaði einnig í um áætlunarflugvelli og búnað þeirra, sem er ágæt skýrsla sem skaði var að skyldi ekki gefast tími til að ræða um á Alþ. í fyrra. En það er ekki að tilefnislausu að við förum fram á þessa athugun, vegna þess að í svari hæstv. ráðh. við fsp. minni í fyrra kom það greinilega fram, að þessi atriði, sem við erum að fara sérstaklega fram á að verði athuguð, þ. á m. möguleikar á framlengingu flugbrauta við Holt í Önundarfirði og í Bolungarvík, hafa ekkert verið athuguð. Og það er rétt, sem hv. 5. þm. Vestf. sagði, þessi tæknilega athugun, sem við erum að fara fram á, hefur alls ekki verið gerð. Þessi skýrsla fjallar meira um almenna stefnumótun í flugmálum heldur en tekin séu fyrir ákveðin svæði sem athuguð hafi verið frá tæknilegu sjónarmiði.
En úr því að ég er að vitna í þessa skýrslu langar mig, vegna þess einmitt að hæstv. ráðh. lýsti því yfir að framkvæmd flugmála í næstu framtíð mundi byggjast á þessari skýrslu um áætlunarflugvelli og búnað þeirra og þeim athugunum og niðurstöðum sem þar kæmu fram, — í því sambandi langar mig sérstaklega til að vitna beint í þessa skýrslu, en þar stendur á bls. 49 með leyfi forseta, — í þessum kafla er talað um mat á forgangsröð framkvæmda og þar segir:
„Sum byggðarlög eru sérstaklega háð flugsamgöngum, einkum að vetrarlagi þegar fjallvegir lokast. Má í þessu sambandi nefna t.d. Patreksfjörð, Suðureyri, Ísafjörð, Þórshöfn og Vopnafjörð. Á sumum þessara flugvalla eru aðflugsaðstæður þröngar og rými fyrir flugvöllinn takmarkað. Þrátt fyrir þessa annmarka verður að leggja sérstaka áherslu á að íbúar þessara og svipaðra byggðarlaga njóti reglubundinna og öruggra flugsamgangna, sérstaklega yfir vetrarmánuðina.“
Þetta er mergurinn málsins. Það er þetta, að mat á þörfinni verði látið ráða framkvæmdum. Þarna hafa þeir góðu menn, sem hafa tekið saman þessa skýrslu, komist að þessari niðurstöðu um hvar þörfin sé einna brýnust. Og það er einmitt þetta sem við viljum að sé lagt til grundvallar framkvæmdum á næstunni, að taka fyrst þá staði, hvar sem þeir eru á landinu, hvort sem þeir eru á Vestfjörðum eða annars staðar, sem mest þurfa á endurbótum að halda.