08.12.1977
Sameinað þing: 28. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í B-deild Alþingistíðinda. (747)
39. mál, flugsamgöngur við Vestfirði
Flm. (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Ég vil fyrst segja það, að þeir eru ekki illa staddir, þeir Alþb: menn eða þeirra þingflokkur, í flugspekinni meðan þeir hafa álíka fulltrúa í flugráði og hér er nú nýlega búinn að ljúka máli sínu. En að því verður vikið síðar.
Hæstv. samgrh. sagði áðan, að það hefði verið áætlun sín að ræða þá skýrslu sem hin títtnefnda nefnd gekk frá á sínum tíma hér á Alþ. Það er rétt sem hann sagði, þessari skýrslu var útbýtt á einhverjum síðustu dögum þingsins nú í vor. Það er því miður með þessa skýrslu eins og svo margar aðrar, að þeim er ekki útbýtt fyrr en kannske einum til tveimur dögum áður en þingi er lokið og þar með útilokað, hvort sem það er nú gert með fyrirfram ákveðnum aðgerðum, að með nokkru móti sé hægt að ræða þessi eðlilegu mál hér á Alþingi. Sama átti sér stað varðandi skýrslu samgrh. um hafnaframkvæmdir á árinu 1976. Þeirri skýrslu var útbýtt hér annað hvort síðasta eða næstsíðasta dag þingsins og engin umr. gat átt sér stað um hana af þeim sökum. Ber auðvitað að harma, að þetta skyldi ekki takast. Væntanlega fáum við þá umr. um þessa skýrslu og það verður auðvitað ágætt út af fyrir sig. En varðandi þá skýrslu vil ég aðeins undirstrika það, sem kom fram hjá hv. 9. landsk. þm., að sú skýrsla fjallar ekki um það sem við erum að tala um í þessari þáltill. Og það er með þetta mál eins og mörg önnur, að með því að halda alltaf áfram þeirri tuggu, að það megi ekkert gera í ákveðnum framkvæmdaflokkum nema því aðeins að það nái þá yfir landið allt sem heild, þá verður aldrei neitt gert. Ef það eru ekki rök fyrir því að taka út úr í þessu tilfelli landshluta eins og Vestfirði, sem sannanlega eru langverst settir varðandi flugsamgöngur og samgöngur almennt talað, ef það er ekki réttlætanlegt að gera það, taka þá út úr og láta þá fá forgangsröðun á framkvæmdum vegna þessarar sérstöðu, þá eru menn, sem tala á því plani að það verði að gera þetta allt í einu, beinlínis á móti því að réttur verði hlutur þeirra sem verr eru settir. Þá eru menn í verki á móti því að rétta í þessu tilfelli hlut Vestfirðinga vegna þessarar sérstöðu sem þeir eru í. Það þýðir ekkert að koma hér upp á Alþ., hvort sem þar eiga í hlut flugráðsmenn eða ekki, og segja: Ja, það liggur fyrir skýrsla um allt landið, hvað þarf að gera, en það verður ekki hægt að gera það allt í einu, segja þeir, og þar með er málið afgreitt — ekkert gert. Þessir menn, sem svona tala, eru í raun og veru andvígir því að nokkuð sé gert í þessu tilfelli fyrir Vestfirðinga til þess að bæta aðstöðu þeirra að því er varðar samgöngumál, og þrátt fyrir það að þeir séu upprunnir Vestfirðingar, og leitt er að segja það. En það á við um hv. 5, þm. Suðurl., því miður verður það að segjast, að hann er upprunninn Vestfirðingur. (Gripið fram í: Því miður?) Því miður. eftir því sem hann talar.
Hæstv. ráðh. er því miður farinn. Hann sagði hér áðan að við mættum ekki eyða allt .of miklu í úttekt á úttekt ofan og rannsóknir. Að vísu er það rétt út af fyrir sig, að það á ekki að eyða fé að óþörfu til slíkra hluta. En það getur oft verið æskilegt og nauðsynlegt og jafnframt auðvitað þá skynsamlegt. Og það getur bætt fyrir síðar meir að kanna vel og athuga um framkvæmdir, hvort sem það er af þessu tagi eða einhverju öðru sem gert er ráð fyrir að ráðast í. — ég tala nú ekki um þegar þannig er háttað eins og í þessu tilfelli, að engin athugun að því er þessa hluti varðar, sem við erum hér að tala um, hefur átt sér stað, það er ókannað mál. Menn bara slá fram fullyrðingum um að þetta og þetta sé ekki hægt, menn séu uppi í skýjunum að biðja um þetta eða hitt, en engin rök fyrir því að það hafi nokkurn tíma farið fram eðlileg eða raunhæf athugun á því, hvort og þá með hvaða hætti sé hægt að bæta þetta ástand.
Hæstv. samgrh. sagði, að í núverandi fjárlagagerð eða væntanlegri væri farið inn á þá stefnu að framkvæma það sem n. lagði til. Þó að slíkt verði gert að einhverju marki, þá er það víðs fjarri að þar sé verið að fara inn á þá stefnu að framkvæma eins og n. taldi nauðsynlegt að gert yrði, því að það mun líklega vera rétt hjá flugráðsmanninum, hv. þm. Garðari Sigurðssyni, miðað við verðlag 1976 var gert ráð fyrir að það þyrfti um einn milljarð árlega nokkur næstu ár til þess að koma þessum málum í eðlilegt og viðunandi horf. Og það kom alveg sama fram hjá hæstv. ráðh., og það varð ég fyrir vonbrigðum með, — það kom fram nákvæmlega sama afstaðan hjá honum og hjá svo mörgum öðrum, einnig hjá hv. þm. Garðari Sigurðssyni, hann sagði: Þetta er heildarmál. Það má ekki taka sérstaka þætti út úr. — Þar með er auðvitað öllu saman drepið á dreif og tækifæri gefst til þess að liggja um svo og svo langan tíma á þessu sem og öðru sem nauðsynlegt er að framkvæma. Og ég undirstrika það enn einu sinni, að með svona tali eru menn vitandi vits að drepa í þessu tilfelli þessu máli á dreif. Ég harma það mjög, að hæstv. samgrh. skyldi tala í þeim dúr sem hann gerði áðan, því að ég gat ekki betur heyrt, að vísu var það ekki alveg augljóst, en hann talaði, að mér fannst, í þeim dúr að hann teldi þetta óþarft mál, sem hér væri um að ræða að því er varðaði Vestfirði. Það væri í raun og veru búið að gera þessa athugun og það kæmi síðan síðar meir að því að framkvæma hana á landsmælikvarða að því er mér skildist. Þetta harma ég mjög hjá hæstv. samgrh„ að hann skyldi taka þannig í þetta mál, því að eins og hér hefur komið fram áður, hér er einungis farið fram á það, að þetta verði athugað, þessir ákveðnu hlutir.
Hv. þm. Garðar Sigurðsson fann því nú til foráttu hjá okkur, — hann talaði alltaf um mig sem einan flm. að þessu máli, en það er mesti misskilningur, þeir eru fleiri, að vísu er enginn Alþb.-maður þar, það er kannske þess vegna, — en þessi hv. þm. fann þessari till. það til foráttu, að við gerðum ráð fyrir að það yrðu athugaðir ákveðnir þættir, ákveðin málefni. Samkv. hans tali hefði till. líklega átt að vera svona: „Alþingi ályktar að fela samgrh, að láta athuga eitthvað um með hvaða hætti tryggja megi sem bestar flugsamgöngur við Vestfirði“ — að hafa eitthvað, ekki benda á ákveðna hluti sem við viljum að séu athugaðir, að fenginni nokkurri reynslu, ekki bara heimamanna á Vestfjörðum, heldur og sumra af okkar færustu flugstjórum sem hafa flogið á þessari flugleið um áraraðir. Nei, heldur vill hann láta athuga bara eitthvað og þá kæmi að sjálfsögðu í hlut spekinga eins og hans íflugráði að ákveða hvað þetta eitthvað væri. Og þá sjá menn útkomuna, ef þeir eru allir eins og hv. þm. Garðar Sigurðsson, hvað út úr þeirri athugun kæmi.
Það væri fróðlegt að fá að heyra það, hvort hv. þm. Kjartan Ólafsson, sem nú situr á þingi fyrir Alþb. og er talinn a.m.k. af mörgum sem þm. Vestf„ frambjóðandi er hann af Vestfjörðum a.m.k. hvort hann er nú sammála því sem hv. flokksbróðir hans, þm. Garðar Sigurðsson, talaði hér áðan, hvort má skilja það svo, að hv. þm. Garðar Sigurðsson tali hér í nafni Alþb. í þessu máli eins og hann gerði það. Það væri ábyggilega fróðlegt fyrir Vestfirðinga að fá vitneskju um það, hvort þessi hv. þm., flugráðsmaðurinn Garðar Sigurðsson, talaði hér í nafni Alþb. eða hvort þm. eins og hv. þm. Kjartan Ólafsson er á einhverri annarri skoðun í þessu máli heldur en kom fram hjá hv. þm. Garðari Sigurðssyni. Það væri fróðlegt að vita. (GS: Það eru ýmsir sem eru ósammála í Alþb. eins og þm. veit.) Nei, en þá væri æskilegt að það kæmi fram. Það væri æskilegt og ég vona að svo sé að því er varðar þetta. sannarlega, því að það tal. sem hv. þm. Garðar Sigurðsson viðhafði hér, er ekki til framdráttar þessu mikilsverða máli Vestfirðinga almennt talað. Það er síður en svo til framdráttar því. Það er frekar neikvætt til framdráttar því. Það er frekar neikvætt til framdráttar þessu mjög svo mikla hagsmunamáli allra Vestfirðinga varðandi samgöngurnar.
Hv. þm. Garðar Sigurðsson sagði: Vestfirðir hafa svo sannarlega ekki verið afskiptir í þessum málum að því er varðar fjárveitingar á undanförnum árum. Það má vel vera að honum þyki og hafi þótt nægilegt fjármagn veitt til Vestfjarða að því er varðar flugmál á undanförnum árum. Við skulum aðeins líta á þessar tölur, við höfum þær hér. Við höfum t.d. fjárlög frá árinu 1974–1977 og á árinu 1974 var veitt til flugmála í heild 141 millj. rösklega. Af því voru Vestfirðir með 16.7 millj., 16 millj. og 700 þús. Á árinu 1975 voru veittar 148.5 millj. í heild, af því Vestfirðir með 5 millj. Ríflega skammtað það, segir Garðar Sigurðsson, 5 millj. af 148 millj. rúmum, nægilegt fyrir Vestfirðinga að hans mati. Árið 1976 er heildarfjármagnið um 202 millj. sem fer í flugmál. Af því eru Vestfirðir með 32 millj. Og á árinu 1977 er heildartalan 261 millj, til hinna raunverulegu framkvæmda og af því eru Vestfirðir með 49 millj. Allt saman nægilegt og alls ekki afskiptur landsfjórðungur, ekki einu sinni miðað við allar þær aðstæður sem þar er við að búa. Og enn spyr ég: Eru aðrir þm. Alþb. á sama máli og þessi hv. þm. þess, Garðar Sigurðsson, að því er varðar þetta mál hjá Vestfirðingum. Það verður fróðlegt að fá um það vitneskju, hvort svo er eða ekki.
Þá þótti hv. þm. Garðari Sigurðssyni ég vera stórorður í garð stjórnvalda og ráðandi manna í þjóðfélaginu. Ég sagði, það vill nú svo vel til að ég hafði þetta skrifað, ég sagði að þessi einangrun, sem þér er um að ræða að því er varðar Vestfirði, væri óþolandi og raunar furðulegt hversu stjórnvöld eru viljalítil og afskiptalaus til úrbóta. Ég hygg að hann væri vandfundinn, sá Vestfirðingur, þó að flugráðsmaðurinn Garðar Sigurðsson leitaði hans sjálfur, sem fyndist að hér væri of stórt upp í sig tekið að því er þetta varðar. Ég hygg að Vestfirðingar almennt séu um það sammála, að hér hafi verið lítill vilji og afskiptaleysi hjá stjórnvöldum um að gera hér á úrbætur Vestfirðingum til handa í þessu máli. Og séu þetta stóryrði í garð stjórnvalda, — nú nefndi ég ekki nein ákveðin stjórnvöld, kannske hefur hv. þm. tekið þetta nærri sér varðandi núv. hæstv. ríkisstj. eða stjórnvöld, þetta gat alveg eins átt við um aðrar ríkisstj. sem setið hafa í landinu á undanförnum árum og áratugum eins og hæstv. núv. ríkisstj., — en þyki honum þetta stóryrði í garð stjórnvalda, þá er ég ábyggilega ekki einn Vestfirðinga um að viðhafa þessi orð og okkur þykir þau ekki stóryrði með hliðsjón af því, hvernig þessi mál standa nú í dag.
Ég verð að segja það almennt um ræðu hv. þm. Garðars Sigurðssonar, að mér fannst hún ekki bera þess vitni að hér talaði, að því er mér finnst að ætti að vera, ábyrgur aðili í flugráði, eins og hann talaði um þessi mál. Hann talaði um þessi mál miklu frekar í gamansömum dúr, ekki af alvöru eða frá því sjónarmiði að hér væri um stórkostlegt hagsmunamál heils landshluta að ræða. Hann sneri þessu öllu eða að verulegu leyti a.m.k. upp í gamanmál og talaði út frá því. Mér fannst það síst af öllu sæma þessum hv. þm., vegna þess kannske ekki síst að hann er flugráðsmaður og ber þar af leiðandi í fyrsta lagi vissa ábyrgð varðandi þennan þátt samgöngumála og ætti að vera góð fyrirmynd okkar leikmanna í því að tala um þessi mál, því ekki fór hjá því að hann talaði í þeim dúr að hann a.m.k, vissi allmiklu meira í þessum efnum heldur en t.d. ég og heldur en allir þm. sem að þessari þáltill. standa. Það er ég honum ekki sár fyrir, síður en svo, en ýmislegt, sem fram kom í ræðu hans, kom þó mér fyrir sjónir á þann veg, að hann bæri ekki meira skynbragð á ýmsa þætti þessa máls, sem hér er um að ræða, heldur en við sem að þessari þáltill. stöndum, síður en svo að svo væri.
Það má vel vera að honum þyki það fjarlæg draumsýn að það verði athugað, — það er nú ekki farið fram á meira en að athuga hvort ekki sé í raun og veru hugsanlegt með nútímatækni að lýsa þannig aðstæður við Ísafjörð að það gagni í senn flugvellinum og lýsingu kaupstaðarins. Ég hygg að þetta sé ekki eins fjarrænt og þessi hv. þm. vildi vera að láta. A.m.k. er það í mínum huga þess virði að til þess verði fengnir menn með vitneskju og kannske sérstakan lærdóm í þessum efnum, en ekki sjálfskipaðir sérfræðingar að eigin mati, það kann aldrei góðri lukku að stýra. Við fullyrðum ekkert um þessi mál í þessari þáltill. Það eina, sem við óskum eftir, er að þessi athugun verði látin fara fram, hún verði framkvæmd af þar til bærum mönnum. En að fenginni vitneskju um þann hluta flugráðs sem snýr að hv. þm. Garðari Sigurðssyni, þá frábið ég það að flugráð verði látið framkvæma þessa athugun, nema þá því aðeins að þar séu í sæti miklum mun skárri og ábyrgari aðilar en þessi hv. flugráður virtist mér við þessa ræðu hans hér áðan.