12.12.1977
Efri deild: 24. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1069 í B-deild Alþingistíðinda. (768)

2. mál, niðurfelling útflutningsgjalda á kolmunna- og spærlingsafurðum

Frsm. (Oddur Ólafsson):

Herra forseti. Sjútvn. Ed. hefur haft til umfjöllunar frv. til laga um niðurfellingu útflutningsgjalda á kolmunna- og spærlingsafurðum á árinu 1977. Þetta frv. er til staðfestingar á brbl. sem voru gefin út 15. júlí s.l. um niðurfellingu á útflutningsgjöldum á kolmunna og spærlingi. Þetta er þáttur í þeirri viðleitni sjútvrh. að örva nýtingu fiskstofna, sem hingað til hafa verið lítt eða ekki hagnýttir, og á þann hátt að skapa möguleika til þess að draga úr þorskveiðum nú þegar þorskstofninn er í hættuástandi. Vitað er að mikið magn af kolmunna er bæði fyrir Austurlandi og Vesturlandi á vissum árstímum, og einnig var nokkurt magn veitt á Færeyjamiðum samkv. sérstöku samkomulagi við Færeyinga. Hins vegar er tilraunavinnsla jafnframt dýr og er því eðlilegt að fjárhagur bæði veiða og vinnslu sé erfiður.

Það hafa verið gerðar mjög athyglisverðar tilraunir á þessu ári með vinnslu kolmunna bæði til frystingar og herslu. Má ætla að innan fárra ára verði hér um hagnýta og arðbæra atvinnugrein í sjávarútvegi að ræða. Þess vegna er mjög æskilegt að beina stærri hluta flota okkar á kolmunna- og spærlingsveiðar næstu árin, og samþykkt þessa frv. er liður í þeirri viðleitni að gera þessar veiðar eftirsóknarverðar. N. varð því einhuga um að leggja til að frv. yrði samþ. óbreytt.