13.12.1977
Sameinað þing: 30. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (783)

1. mál, fjárlög 1978

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Í ræðu minni við 1. umr. um frv. til fjárlaga fyrir árið 1978 kom fram, að rík áhersla hefur verið á það lögð að hraða eftir föngum gerð lánsfjáráætlunar fyrir árið 1978 sem hér er lögð fram, svo að hún gæti verið til yfirlits og athugunar sem nánast samhliða fjárlagafrv. Nokkur vandkvæði hafa þó verið á því að flýta áætluninni svo sem æskilegt hefði verið og um var rætt, þar sem annars vegar hefur verið kappkostað að vanda sem mest til verksins, ekki síst með því að áætlunin væri í sem mestu samræmi við fjárlagatillögur og tillögur ríkisstj. um fjáröflun með lántöku, og hins vegar tefur það áætlunina, að ákvarðanir um einstakar framkvæmdir og fjáröflun til þeirra hljóta ætíð að taka nokkurn tíma í meðferð ríkisstj. og nefnda. Þrátt fyrir þessar tafir hefur þó tekist að þessu sinni að kynna þingmönnum lánsfjáráætlun þegar við 2. umr. um fjárlagafrv. í stað 3. umr. eins og verið hefur tvö undanfarin ár.

Lánsfjáráætlun fyrir árið 1978 er þriðja árlega heildaráætlunin um lánastarfsemina í landinu sem ríkisstj. leggur fram á Alþingi. Í áætlunum þessum hafa verið settar fram hugmyndir og markmið um þróun í lánamálum í samræmi við efnahagsstefnu ríkisstj. Þótt lánsfjáráætlanir árin 1976 og 1977 hafi ekki gengið fram nákvæmlega, hafa þær gefið mjög gagnlegt yfirlit yfir starfsemi lánastofnana og auðveldað mjög stjórn lánamála og peningamála. Nokkuð hefur skort á að lánskjör og ýmis atriði önnur, sem áhrif hafa á lánahreyfingar, hafi verið ákveðin með samræmdum hætti, og jafnframt hafa möguleikar yfirvalda í peningamálum til að fylgja áætlunum eftir verið fremur takmarkaðir. Á þessu ári hefur hins vegar verið stigið stórt skref í samræmingu lánskjara og tekin upp virkari og sveigjanlegri vaxtastefna en fyrr. Lánsfjáráætlunin fyrir árið 1978, sem hér er lögð fram, og raunar öll peningastjórn ætti því að verða mun styrkari en áður. Við ýmis framkvæmdavandamál er þó enn að etja og verður áfram unnið að úrlausn þeirra í þeim tilgangi að efla stjórn peninga- og lánamála í landinu, svo sem óhjákvæmilegt er til þess að unnt sé að koma fram brýnustu markmiðum efnahagsstefnunnar næstu missiri.

Lánsfjáráætlun fyrir árið 1978 er samin á vegum fjmrn. í samvinnu fjárlaga- og hagsýslustofnunar, Framkvæmdastofnunar ríkisins, Seðlabanka Íslands og Þjóðhagsstofnunar. Undirbúningsvinna að því er tekur til lánamála er að meginhluta unnin í hagfræðideild Seðlabankans. Efni um ríkisframkvæmdir og fjáröflun til þeirra er unnið í fjárlaga- og hagsýslustofnun. Útlánaáætlanir fjárfestingarlánasjóða eru reistar á efni frá Framkvæmdastofnun ríkisins og Húsnæðismálastofnuninni. Áætlunin er reist á þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar og spá Seðlabankans um þróun greiðslujafnaðar 1978, sem samdar voru í októbermánuði s.l.

Í skýrslunni er fyrst fjallað um meginatriði efnahagsstefnu ríkisstj. og almennar efnahagshorfur. Síðan er fjallað um meginniðurstöður lánsfjáráætlunarinnar fyrir lánamarkaðinn í heild og hvað varðar banka, fjárfestingarlánasjóði og lífeyrissjóði. Þá er gerð grein fyrir áætlun ríkisstj. um opinberar framkvæmdir, sem fjár er aflað til með lánum, svo og um áformaða erlenda lántöku. Loks er fjallað um fjármunamyndunarspá fyrir árið 1978. Í töfluviðauka er yfirlit yfir niðurstöður lánsfjáráætlunarinnar. Í heild gefur skýrslan yfirlit yfir uppruna og ráðstöfun lánsfjár 1976 og 1977 og skiptingu þess eftir lánþegum.

Ríkisstj. hefur lýst þeirri meginstefnu sinni í efnahagsmálum næsta árið að bægja verði frá hættunni á vaxandi viðskiptahalla og skuldasöfnun við útlönd og á aukinni verðbólgu, sem veikir stöðu atvinnuveganna og teflir þar með atvinnuöryggi í tvísýnu auk þess sem hún veldur margvíslegum öðrum efnahagsvanda. Að öllu óbreyttu er peningatekjum og þjóðarútgjöldum stefnt hærra en samrýmst getur jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Af þessum ástæðum er aðgerða þörf á sviði fjármála og lánamála, sem grein verður gerð fyrir í lagafrumvörpum þess efnis. Lagt verður fram á Alþ. frv. til laga um heimild til erlendrar lántöku, ábyrgðarheimildir og aðrar ráðstafanir á sviði lánamála sem nauðsynlegar eru til þess að ná markmiðum lánsfjáráætlunarinnar á næsta ári.

Meginmarkmið þessarar lánsfjáráætlunar er að aukning heildarútlána á næsta ári verði ekki meiri en svo að samrýmst geti eftirfarandi viðmiðunum:

1 ) Verðbólguhraði og viðskiptahalli verði ekki meiri 1978 en 1977.

2) Hlutur innlends sparnaðar í fjármögnun framkvæmda og rekstrarlána verði aukinn svo að erlendar lántökur fari ekki fram úr afborgunum eldri lána, auk þeirrar eflingar gjaldeyrisstöðunnar, sem talin er nauðsynleg.

3) Þessu marki verði náð samtímis öruggri atvinnu.

Í samræmi við mat á núverandi stöðu og horfum í efnahagsmálum, sem fram kemur í þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunarinnar, er að því stefnt, að þjóðarútgjöld aukist ekki meira en um 4% á næsta ári eða um svipað hlutfall og þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur. Í þessu felst, að viðskiptahallinn við útlönd yrði ekki meiri en 1–2% af þjóðarframleiðslu eða svipaður og á árinu 1977. Síðustu tölur um utanríkisverslun á haustmánuðunum 1977 benda raunar til vaxandi viðskiptahalla. Þannig er fremur hætta á, að hallinn á viðskiptum við útlönd verði meiri á árinu 1977 en hér er spáð, fyrst og fremst vegna uppsöfnunar útflutningsbirgða, því talið er að útflutningsframleiðsla verði síst minni en spáð hefur verið, en útflutningur nokkru lægri á síðustu vikum. Miðað við þá kaupmáttaraukningu, sem að er stefnt á næsta ári með kjarasamningum í ár, og þau framkvæmdaáform, sem uppi eru í ýmsum greinum atvinnulífsins, er vexti þjóðarútgjalda þröngur stakkur skorinn með þessum markmiðum. Þó er í þjóðhagsspánni reiknað með að einkaneysla aukist um 6% á næsta ári og samneysla um 1–2%. Á hinn bóginn er reiknað með um 3% samdrætti í fjármunamyndun, sem er óhjákvæmilegt eigi endar að nást saman. Í þessum tölum hefur verið reiknað með áhrifum þeirra aðgerða sem fram koma í frv. til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum 1978, auk þeirra ráðstafana, sem lánsfjáráætlun þessi felur í sér. Frv. verður lagt fram á þinginu í dag eða í síðasta lagi á morgun. Samdrátturinn í fjármunamyndun kemur annars vegar fram í opinberum framkvæmdum, einkum vegna þess að enn dregur úr orkuframkvæmdum, en á móti mun vegagerð verða stóraukin. Á hinn bóginn mun innflutningur skipa og flugvéla verða mun minni en í ár. Í heild er þannig reiknað með 3–4% aukningu þjóðarútgjalda, og verður öll áhersla lögð á að halda útgjaldaaukningunni innan þessa ramma og innan líklegra vaxtarmarka þjóðarframleiðslu og þjóðartekna.

Framan af þessu ári dró talsvert úr verðhækkunum, en hraði verðbólgunnar hefur nú síðustu mánuðina farið vaxandi á ný í kjölfar kjarasamninganna. Þannig má telja að umsamdar kauphækkanir ásamt öðrum verðhækkunartilfellum hafi þegar ráðið gangi verðbreytinga fram á mitt næsta ár. Í forsendum þjóðhagsspár er reiknað með að unnt verði að halda verðbreytingum þannig í skefjum að þær verði ekki meiri að meðaltali 1978 en í ár, og er þá miðað við fyrirsjáanlega þróun fram til miðs næsta árs, en töluvert dragi úr síðari hluta ársins. Þessi forsenda þjóðhagsspárinnar felur þó þegar í sér að verulegu aðhaldi verði beitt á sviði opinberra fjármála, peningamála og verðlagsmála. Að vextir einkaneyslunnar óheftum og án sérstaks viðnáms í peninga- og lánsfjármálum stefnir hins vegar í örari verðhækkanir og meiri viðskiptahalla en þjóðhagsspáin sýnir. Í þjóðhagsspánni er miðað við að neysluvöruverð hækki um 31% að meðaltali 1978. Verðhækkun samneyslu er áættuð mun meiri, 42%, vegna hinna umtalsverðu launahækkana opinberra starfsmanna, en byggingarvísitala er talin hækka um 29% að meðaltali. Við þessar verðbreytingar er einnig miðað í lánsfjáráætluninni. Því miður er hættan sú, að þessar tölur séu fremur of lágar en of háar, og telur ríkisstj. því brýnt að beita öllum tiltækum ráðum gegn þeim mikla verðbólguþrýstingi sem nú einkennir þjóðarbúskapinn.

Á síðustu árum hafa fjárfestingarútgjöld verið stór og vaxandi hluti þjóðarútgjalda, enda hefur mikið verið færst í fang á flestum sviðum framkvæmda. Reynslan hér á landi virðist benda til að eðlilegt meðalhóf í fjárfestingu sé ekki yfir fjórðungi af þjóðartekjum, ef henni á að mæta með inniendum sparnaði. Nú síðustu árin hefur fjárfestingarhlutfallið hins vegar verið rösklega 30%, hæst 197–1975 um 33–34%, en lækkaði í tæp 31% á síðasta ári, og spáð er frekari lækkun 1977 eða niður í rúmlega 27% af þjóðarframleiðslu. Vöxtur innlends sparnaðar hefur þó engan veginn haldist í hendur við þessa miklu aukningu fjármunamyndunar sem að verulegu leyti hefur því verið háð innflutningi fjármagns.

Samkvæmt fyrirliggjandi þjóðhagsspá 1978 er reiknað með að á næsta ári verði varið um 126 milljörðum króna til fjármunamyndunar í landinu. Er þá annars vegar gert ráð fyrir að verðlag fjármunamyndunarinnar verði um 28% hærra 1918 en 1977, og raunar er byggingarkostnaðurinn talinn hækka heldur meira, eða um 29%, en erlendi verðþátturinn nokkru minna. Hins vegar er reiknað með að raunvirði fjármunamyndunar verði um 3% lægra en á árinu 1977. Hér er því stefnt að enn lægri hlut fjárfestingar í þjóðarframleiðslu á næsta ári, eða um 26%, og er þessi stefna þáttur í þeirri viðleitni ríkisstj. að draga úr erlendri lántökuþörf og efla innlendan sparnað.

Meginástæða þess, að reiknað er með samdrætti í fjármunamyndun á árinu 1978, er að framkvæmdir við stórvirkjanir verði einungis röskur helmingur þess sem þær verða í ár, og gert er ráð fyrir að innflutningur skipa og flugvéla dragist saman um 39%. Í spánni er reiknað með að til Þjórsárvirkjana og Kröfluvirkjunar verði varið 5.2 milljörðum kr., en ætla má að í ár muni framkvæmdakostnaður við þessar virkjanir nema 7.6 milljörðum kr. Þá er reiknað með að innflutningur skipa og flugvéla nemi 8.4 milljörðum kr. 1978 í stað 11 milljarða í ár, en jafnframt er gert ráð fyrir að skip verði seld úr landi fyrir 1.8 milljarða kr. 1978 samanborið við 1 milljarð á þessu ári. Framkvæmdir við járnblendiverksmiðjuna að Grundartanga eru taldar munu vega upp að nokkru samdráttinn í stórframkvæmdum og sérstökum innflutningi fjárfestingarvöru, en heildarframkvæmdakostnaður við verksmiðjuna er áætlaður tæpir 8 milljarðar kr. 1978.

Fjármunamyndun önnur en með sérstökum framkvæmdum og kaupum skipa og flugvéla er talin aukast um 21/2% á næsta ári. Fjármunamyndun atvinnuveganna í heild er á hinn bóginn talin munu dragast saman um tæplega 3%, fyrst og fremst vegna minni skipakaupa, en á móti vega framkvæmdirnar að Grundartanga. Að þeim frátöldum er reiknað með að fjármunamyndun atvinnuveganna verði um 11% minni 1978 en í ár. Íbúðabyggingar eru taldar aukast um 6% 1978.

Opinberar framkvæmdir eru loks taldar munu dragast saman um 9% á næsta ári eftir um 16% samdrátt 1977. Samdrátturinn verður einkum vegna nær þriðjungi minni framkvæmda við rafvirkjanir og rafveitur, en einnig er gert ráð fyrir að framkvæmdir við hita- og vatnsveitur verði heldur minni á næsta ári en 1977, samanborið við fimmtungsaukningu í ár.

Samgönguframkvæmdir verða hins vegar auknar að mun á árinu 1978. Eftir hina miklu vegagerð og brúarsmiði á árunum 1973 og 1974 hefur verið dregið úr þessum framkvæmdum á sama tíma og orkuframkvæmdirnar hafa verið í hámarki. Á næsta ári, er nokkurt hlé verður milli áfanga í virkjunarmálum, gefst hins vegar tækifæri til að auka samgönguframkvæmdir á ný.

Er þá gert ráð fyrir að vegagerð og brúarsmíði verði aukin um 16–17%, en að samgönguframkvæmdir í heild aukist um 9%, en til þeirra teljast auk vegagerðarinnar framkvæmdir við götur og holræsi, hafnir og vita, flugvelli, síma og dreifikerfi hljóðvarps og sjónvarps. Er áformað að verja alls tæpum 15 milljörðum kr. til þessara framkvæmda á árinu 1978. Loks er reiknað með um 4% aukningu í opinberum byggingum.

Þessar spár um fjármunamyndun á árinu 1978 hafa eftir föngum verið gerðar í samræmi við fjárveitingartillögu fjárlagafrv. og lántökuáform. Þær tillögur og ákvarðanir, sem þar koma fram, gefa til kynna að í heild muni hreinar ríkisframkvæmdir dragast saman um 17% á árinu 1978, en að frátöldum meiri háttar virkjunarframkvæmdum muni þær aukast um 4–5%. Af einstökum þáttum þessara framkvæmda er reiknað með að raforkuframkvæmdir minnki um röskan þriðjung og nemi 9.4 milljörðum kr. samanborið við 11.5 milljarða í ár, framkvæmdir við samgöngumannvirki á vegum ríkisins eru taldar aukast um 16% og nema 7.9 milljörðum kr., samanborið við 5.3 milljarða á þessu ári. Sameiginlegar framkvæmdir ríkis og sveitarfélaga eru taldar verða mjög svipaðar 1978 og í ár, og sama máli gegnir um framkvæmdir á vegum sveitarfélaganna einna.

Að gefnum markmiðum ríkisstj. og horfunum fram undan í efnahagsmálum er ljóst, að lánsfjárframboð verður að takmarka við nauðsynlegustu framkvæmdir og brýnustu rekstrarfjárþörf atvinnuveganna. Einkum er brýnt að hafa hemil á peningaútstreymi úr Seðlabankanum og draga úr lántökum erlendis. Í lánsfjáráætlun þessari er gert ráð fyrir að erlendar lántökur verði takmarkaðar við 20 milljarða kr. á næsta ári og miðist við að mæta afborgunum erlendra lána og áætluðum viðskiptahalla, svo að ekki þurfi að koma til rýrnunar gjaldeyrisstöðunnar af þeim ástæðum. Hér eru erlendum lántökum settar þrengri skorður en í lánsfjáráætlun áranna 1976 og 1977, enda mjög brýnt að stöðva aukningu skulda út á við um sinn. Ráðgert er að þessu markmiði sé m.a. náð með því að taka ekki lán erlendis vegna fjárfestingarlánasjóða og draga úr erlendum lánum til opinberra framkvæmda, svo að erlend lán til þessara þarfa samanlögð eru að krónutölu aðeins helmingur af sambærilegri tölu í lánsfjáráætlun fyrir 1977.

Með lánsfjáráætlunum, sem fram hafa verið settar undanfarin ár, hefur ætið verið stefnt að hóflegri aukningu á heildarframboði lánsfjár til þess að styðja viðleitni stjórnvalda til að draga úr viðskiptahalla við útlönd og áframhaldandi verðþenslu. Á hinn bóginn hefur einnig verið reynt að mæta lánsfjárþörf vegna nauðsynlegustu framkvæmda svo og rekstrarfjárþörf atvinnuveganna. Í fyrstu lánsfjáráætluninni, sem gerð var árið 1976, var stefnt að því að einkaaðilar fengju stærri skerf en áður af heildarframboði lánsfjár. Þetta stóðst aðeins að því marki, að einkaaðilar fengu svipað fjármagn og að var stefnt, en opinberir aðilar tóku til sín alla aukningu lánsfjár sem varð frá gerð áætlunar. Uppruni lánsfjárframboðs umfram lánsfjáráætlun 1916 var mestur í bankakerfinu og stafaði af auknu ráðstöfunarfé innlánsstofnana svo og stöðu ríkissjóðs við Seðlabanka, sem varð mun lakari en að var stefnt, enda þótt greiðsluafkoma batnaði mjög frá árinu áður. Að öðru leyti má segja, að lánastarfsemin hafi í stórum dráttum fylgt þeim línum sem lagðar voru í áætluninni.

Of snemmt er að leggja lokamat á lánsfjáráætlun 1977. Þó er ljóst að á lánsfjármarkaðnum er nú mun meira fjármagn, bæði af innlendum og erlendum uppruna, en að var stefnt. Lánanotkun opinberra aðila verður langt umfram sett mark, því að verðbréfaútgáfa innanlands verður um 600 millj. kr. meiri en í upphaflegri áætlun, og greiðsluafkoma ríkissjóðs mun ekki gera kleift að endurgreiða Seðlabanka jafnmikið af eldri lánum og til stóð. Þá hafa einkaaðilar tekið meira af erlendum lánum en við var búist, jafnframt því að endurkaup Seðlabankans hafa aukist nær tvöfalt á við það sem gert var ráð fyrir í áætlun.

Snúast verður gegn þessum merkjum um jafnvægisleysi í lánamálum með ákveðnum hætti. Vaxtahækkunin á þessu ári er liður í þeirri viðleitni og lánsfjáráætlunin fyrir 1978 fylgir henni eftir.

Megineinkenni lánsfjáráætlunar 1978 eru annars vegar samdráttur erlendra fjárfestingarlána og rýmri mörk um útlán bankakerfisins en viðurkennd voru í fyrri lánsfjáráætlunum vegna rekstrarfjárþarfar atvinnuveganna. Byggist þetta á þeim forsendum, að nokkuð dragi úr fjarmunamyndun og að innlendur sparnaður renni í auknum mæli til lánakerfisins. Gert er ráð fyrir samdrætti í lánum til opinberra aðila og atvinnuvegirnir hafi því greiðari aðgang að innlendu lánsfé. Nettóaukning lána er áætluð um 64 milljarðar kr. á næsta ári, sem er 11% hærri fjárhæð en spáð var fyrir 1977, þar af er áætlað að einkaaðilar fái 59 milljarða kr., eða 43% hækkun, og opinberir aðilar 5 milljarða kr., sem er einungis tæpur þriðjungur þess lánsfjár, sem til þeirra þarfa fellur á árinu 1977.

Helstu niðurstöður lánsfjáráætlunar hvað varðar einstaka hluta lánakerfisins má setja fram í fáum orðum. Hvað bankakerfið áhrærir er stefnt að því að bæta gjaldeyrisstöðu og lausafjárstöðu innlánsstofnana, einkum með því að dregið verði úr útlánsaukningu bankanna. Útlán innlánsstofnana aukast sennilega um röskan þriðjung á þessu ári, og er það mun meira en að var stefnt í lánsfjáráætlun 1977.

Stefnt er að því, að á næsta ári verði útlánaaukning innlánsstofnana heldur minni en almennar verðlagshækkanir. Þá er áætlað, að skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann lækki, en á hinn bóginn er búist við jafnmikilli innstæðulækkun sjóða í opinberri vörslu, Niðurstaðan verður sú, að innlendir liðir bankakerfisins í heild aukast um 30%. Þetta er meiri vöxtur en venjulega er sýndur í áætlunum um peningamál, en þar sem áætlað er að þjóðarframleiðslan aukist um 4% og almennt verðlag hækki um meira en 30% er hér í reynd um verulega aðhaldssemi að ræða sem stuðlað gæti að bættum viðskiptajöfnuði við útlönd. Raskist jafnvægi á peningamarkaðinum, t.d. þannig að sparnaður einkaaðila eða opinberra aðila verði minni en nú er búist við, verður nauðsynlegt að endurskoða stefnuna í útlánamálum.

Útlán fjárfestingarlánasjóða eru talin munu aukast um röskan þriðjung á þessu ári, sem er mun meiri aukning en að var stefnt í síðustu lánsfjáráætlun. Á næsta ári er hins vegar gert ráð fyrir að útlán aukist um rösklega fimmtung eða um 22%, þegar á heildina er litið. Útlánaaukning íbúðarlánasjóða er hins vegar áætluð nokkru meiri, eða um 27%. Útlánaaukningin er hins vegar áætluð mun minni, eða um 19%.

Við setningu útlánamarkmiða fjárfestingarlánasjóða á næsta ári er byggt á spá um fjármunamyndun og verðbreytingu hennar sem felld er í ramma þjóðhagsspárinnar. Aðhald að lánveitingum og annarri fjármögnun innan þessa ramma er algjört skilyrði þess, að ekki verði meiri halli á þjóðarbúinu út á við en spáin gerir ráð fyrir.

Ég hef lokið grg, fyrir þeirri lánsfjáráætlun sem nú hefur verið lögð fram við 2. umr, fjárlaga.

Þær umr., sem hér hafa faríð fram af hálfu stjórnarandstöðunnar, gefa mér tækifæri til þess að víkja að þeim vinnubrögðum, sem hún hefur gert að umræðuefni sérstaklega. Ég held að það, sem fram hefur komið hjá þeim hv. stjórnarandstæðingum, sé í raun og veru af þeirra hálfu meira sjónarspil heldur en að því fylgi nokkur alvara. A.m.k, getur ekki verið um að ræða mikla alvöru hjá 11. landsk, þm., fyrrv, form. fjvn., sem lengi hefur setið á Alþ., átt sæti í fjvn. og verið form. hennar um þriggja ára skeið og tekið þátt í afgreiðslu fjárlaga hér um langan tíma og haft forustu á meðan hann var form. fjvn.

Ég held að upplýsingastreymi til fjvn. og þm. nú sé töluvert meira en það hefur verið áður. Lánsfjáráætlun hefur aldrei verið samin fyrir Alþ. fyrr en í tíð núv. ríkisstj., og eins og ég gat um hér áðan, þá er hér um að ræða þá hina þriðju sem lögð er fram. Það er að sjálfsögðu hægt að gagnrýna það, að hún skuli ekki vera komin fram fyrr en við 2. umr. fjárlaga, en þeir aðilar, sem ekki stóðu að neinni lánsfjárætlun, hafa varla efni á því að gagnrýna þegar þó nú er meiri hraði á afgreiðslu mála í sambandi við lánsfjáráætlun heldur en áður og okkur tekst að hafa hana til umr, hér við 2, umr. fjárl. Og það var ekki svo, að hv, fjvn.-mönnum og forustumönnum stjórnarandstöðunnar hafi ekki verið kynnt málið, því ég gerði ráðstafanir í síðari hluta seinustu viku til þess að þeir fengju lánsfjáráætlunina, eins og hún þá var, til skoðunar þannig að þeir hefðu fullt tækifæri til þess að ræða efni hennar við þessa umr., enda þótt hún yrði ekki lögð fram fyrr.

Sú tylliástæða minni hluta fjvn. að leggja ekki fram nál. er algjörlega út í hött. Vinnubrögð fjvn. hafa verið með svipuðum hætti og áður, og 2. umr, fer fram á svipuðum tíma og áður. Það hefur ekki verið venja í fjvn. Alþ., að fyrir 2. umr. hafi verið tekin til endurskoðunar tekjuhlið fjárl. og breyttar verðlagsforsendur sem frv. hefur verið byggt á. Það hefur verið gert á milli 2. og 3. umr. Þess var þó óskað nú, að framkvæmdastjóri Þjóðhagsstofnunar kæmi á fund n. og gerði henni grein fyrir þeirri endurskoðun, sem fram fer hjá Þjóðhagsstofnun á þessu máli. Hann varð við því að sjálfsögðu og gerði aðilum grein fyrir þessum málum þar. Það hefur öllum verið ljóst, að ekki nema hluti útgjalda vegna launa á árinu 1978 var í útgjaldahlið fjárlagafrv., og ég hef látið það frá mér fara í ræðu og í viðtölum, þannig að öllum þm. hefur verið ljóst hver vandi ríkissjóðs væri vegna þeirra samninga sem gerðir voru nú fyrir nokkrum vikum. Breyttar forsendur frv. bæta að sjálfsögðu við upphæðum í sambandi við útgjöld frv., og það eru þær breytingar sem vanalega koma á millj 2, og 3. umr.

Í lánsfjáráætluninni er hægt að sjá hverjar þessar breyttu forsendur eru, og í lánsfjáráætluninni eru þm. kynnt í fyrsta skipti fyrir 2. umr. þau áform sem ríkisstj. hefur í sambandi við opinberar framkvæmdir og alla fjármunamyndun í landinu á næsta ári. Það er þess vegna algjörlega ástæðulaust að koma við þessa umr. og lýsa því yfir, að vinnubrögðin séu með endemum. Þau hafa aldrei verið eins á Alþingi Íslendinga.

Mig langar í þessu sambandi til þess að rifja upp afgreiðslu fjárlaga í tíð fyrrv. ríkisstj. undir forustu hv. 11. landsk. þm. sem form. fjvn. Menn minnast ársins 1974 í þeim efnum, sem er metár, eins og ég hef áður sagt, þegar borið er saman frávik ríkisreiknings frá fjárlögum. Fjárlög, sem eru upp á 29 milljarða, verða í lokin 41 milljarður þegar ríkisreikningnum er skilað. Og hvernig var þá unnið að þessu fjárlagafrv, og afgreiðslu þessara fjárl.? Jú, þá kom hér upp í ræðustólinn þáv. form. fjvn. og sagði að tekin hefði verið ákvörðun um það, að niðurgreiðslur skyldu lækka, og talan í fjárlagafrv. lækkuð úr 1800 millj. ofan í 1400 millj. eða þar um bil. Hver varð svo reyndin? Ríkisreikningurinn sýnir hins vegar niðurgreiðslur upp á hátt á fjórða milljarð, einfaldlega vegna þess að þeim aðilum, sem stóðu hér í ræðustólnum þá fyrir hönd fjvn, og lögðu til afgreiðslu á fjárlagafrv., var ekki ljóst hvernig vandann skyldi leysa þegar fram á árið kæmi. Og menn muna fjárlagaafgreiðsluna fyrir árið 1972, þegar hér eru afgreidd fjárl. án þess að lög um tekjuöflun hafi verið samþ. Það var einsdæmi í sögu Alþingis. Það eru samþ. fjárl. fyrir árið 1972 og sagt: Við ætlum svo að breyta skattalögunum þegar kemur á útmánuðina til þess að tryggja þessar tekjur. — Hverjir voru þá rígbundnir? Var ekki verið að lýsa því yfir af þáv, stjórnarflokkum að þm, þeirra skyldu samþ. tekjuöflunarfrv. skv, þeim fjárl. sem þá höfðu verið samþ.? Og hver stóð að þessari fjárlagaafgreiðslu annar en hv. 11. landsk, þm., form. fjvn., og hv. 5. þm. Vestf., sem þá var nýr hér á þingi og kannske óvanur vinnubrögðum? Hann lét þá hafa sig til þess að samþ, fjárl. og standa að fjárl. þar sem tekjuhliðin var ekki byggð á lögum. Það er auðvelt fyrir þessa ágætu þm, að koma hér upp nú og gagnrýna þegar búið er að vinna að þessum málum á undanförnum árum með þeim hætti, að lánsfjáráætlun liggur hér frammi, er hér til umr. og stjórnarandstöðunni hefur verið kynnt þetta mál. Þá er talað um ráðleysi og menn viti ekki hvernig þeir hugsi sér að leysa þann vanda sem við blasir.

Ég skal nú ekki fara fleiri orðum um þær ræður sem þessir hv, þm. fluttu. Þeir kvörtuðu hins vegar mjög yfir því, að upplýsingaleysi hefði valdið því, að þeir hefðu ekki getað skilað nál. Þá vantaði eitthvað frá ríkisstj. til þess að geta skrifað nál. sitt. Það næsta, sem maður á kannske von á, er að maður verði beðinn um að skrifa nál. fyrir þá, til þess að þeir geti komið því fram. Ég hugsa að það væri það skynsamlegasta sem gert yrði.

Hér var vikið að því af einum hv, stjórnarandstæðingi, 8. landsk. þm., að hann hefði lesið í blaði um ráðstafanirnar sem ríkisstj. ætlaði að gera, og hann nefndi Dagblaðið. En ég sá þegar ég fletti Alþýðublaðinu, málgagni þessa hv, þm., að það var verið að segja frá einhverju slíku í því blaði. Hvaðan skyldu þeir hafa fengið upplýsingar í sambandi við þessar ráðstafanir? Hann hafði ekki lesið Alþýðublaðið. Nei, nei, Hann hafði lesið Dagblaðið. Nema hann hafi ekki viljað segja frá því að hann hafi lesið Alþýðublaðið. Vel má vera að það hafi verið ástæðan.

Það er öllum hv. þm. ljóst, að það hefur verið unnið að því af hálfu ríkisstj. og hennar stuðningsflokka hvernig vandamál þau, sem við eigum við að glíma, skuli leyst. Og það hefur enginn maður farið í grafgötur með það, að þær hugmyndir, sem upp hafa komið, hafa verið ræddar í ríkisstj., í þingflokkunum, og menn hafa reynt að gera þær þannig úr garði sem allra fyrst, að hægt væri að leggja þau frv. fyrir þingið og umfram allt að lagabálkarnir, sem tekjurnar eiga að byggjast á, séu samþ. áður en fjárl. verða samþ.

Hins vegar gerði ég það í dag, — það átti að gerast í gær, — þá sendi ég alþm, sem trúnaðarmál — en að sjálfsögðu verður það ekki eftir þessa ræðu mína — nokkrar aths. um endurskoðun frv. til fjárl. fyrir árið 1978 þar sem gerð er grein fyrir fjárlagavandanum. Ég tel rétt skv. mjög góðri ábendingu að víkja að þessu hér, þannig að þær umr., sem hér eiga sjálfsagt eftir að halda áfram, geti að einhverju leyti snúist um það sem fjmrh. hefur sagt um hugmyndirnar, til þess að menn þurfi ekki að koma hér upp með stóran stafla af blöðum og lesa um eitthvað sem þar stendur, hvort sem það er rétt eða rangt.

Nýgerðir kjarasamningar við opinbera starfsmenn og síðustu spár um verðlagsþróun á næsta ári hafa í för með sér verulega hækkun ríkisútgjalda umfram áætlun fjárl. Að því er varðar verðbætur á laun var frv. eingöngu miðað við verðbætur frá 1. sept. s.l., og grunnkaupshækkun til opinberra starfsmanna varð meiri en reiknað hafði verið með í frv. og að einhverju leyti meiri en samningar á almenna vinnumarkaðnum höfðu verið. Í ljósi þessara viðhorfa þarf því að endurskoða bæði gjalda- og tekjuhlið frv. Við þessa endurskoðun og við gerð lánsfjáráætlunar, sem ég hef nú gert grein fyrir, er miðað við 30% almenna hækkun verðlags á næsta ári, þó rúmlega 42% hækkun á verðlagi samneysluútgjalda.

Fjárlaga- og hagsýslustofnun áætlar að hækkun ríkisútgjalda til samræmis við þessar breyttu horfur muni verða um 18.3 milljarða kr, frá fjárlagafrv., þ.e. 13.1 milljarður á launalið og 3.9 milljarðar á útgjöldum almannatrygginga sem fylgja launum að miklu leyti. Hækkun á öðrum liðum er talin 1.3 milljarðar, þ.e. 500 millj, kr, vegna ullarmilligreiðslu og tæplega 500 millj, kr. hækkun markaðra tekjustofna til samræmis við væntanlega nýja tekjuáætlun.

Þjóðhagsstofnun vinnur nú að endurskoðun tekjuáætlunar 1978 í ljósi nýjustu vitneskju um innheimtar ríkistekjur 1977 og nýrrar þjóðhagsspár fyrir næsta ár sem fram kemur í lánsfjáráætluninni. Þessu verki er ekki lokið, en fjvn., eins og ég sagði áðan, var gerð grein fyrir bráðabirgðaniðurstöðum s.l. laugardag. Innheimta ríkistekna verður að líkindum á árinu 1917 svipuð og spáð var í fjárlagafrv. í haust eða um 96.5 milljarða, þó fremur undir þeirri fjárhæð en yfir. Á þessum grunni og með breyttum verðlagsforsendum fyrir næsta ár, en hins vegar áfram miðað við 4% aukningu þjóðarútgjalda 1978, fæst sú niðurstaða, að innheimtar ríkistekjur verði á næsta ári 10.7 milljörðum meiri en áætlað er í fjárlagafrv. Í þessari áætlun er reiknað með því, að skattvísitalan verði óbreytt 131 stig, þótt hækkun meðaltekna verði líklega um 42% á milli áranna 1976 og 1977. Þetta hefur í för með sér hækkun tekjuskatts um 300 millj. kr. umfram áætlun fjárlagafrv. Auk þess er reiknað með að tekjur af eignarskatti verði um 300 millj. kr. meiri en áætlað er í frv., þar eð hækkun fasteignamats mun yfirleitt verða á bilinu 30–35% í stað 30% í fyrri áætlun. Áformað er að hækka skattskyldumörk til eignarskatts um 33%, líklega með því að bæta því ákvæði inn í frv. til staðfestingar á brbl. um tekju- og eignarskatt sem nú er til meðferðar hjá fjh: og viðskn. Ed.

Til þess að staðfesta forsendur tekjuáætlunar þarf enn fremur að flytja frv. um framlengingu gildistíma 18% vörugjaldsins, auk frv. um innheimtu gjalda með venjulegum viðauka eða um stimpilgjald og aukatekjur ríkissjóðs til staðfestingar á nýjum gjaldskrám. Annaðhvort frv. verður að samþ. fyrir jólaleyfi, og hafa fjh.- og viðskn. beggja deilda haft málið til meðferðar á fundum sínum nú í morgun. Að öðru leyti er búist við hækkun á gjöldum af innflutningi nálægt 3.7 milljörðum kr. og sköttum af seldum vörum og þjónustu nálægt 5 milljörðum. Hækkun á mörkuðum tekjustofnum er innan við 500 millj, kr., svo að hækkun almennra tekna verður líklega um 10.2 milljarðar kr. Endanlegar niðurstöður um tekjuáætlun munu liggja fyrir síðari hluta þessarar viku, og verður þá fjvn, að sjálfsögðu gerð grein fyrir endurskoðaðri tekjuáætlun og yfirfarnar þær forsendur sem hún byggist á, eins og venja hefur verið undanfarin ár.

Samkvæmt framansögðu er sá vandi, sem við er að glíma, um 7.6 milljarðar, og hann verður með einum eða öðrum hætti að leysa. Þar sem fjárlagafrv, í heild er til meðferðar munu fjh. um gjaldalækkun að sjálfsögðu verða ræddar og settar fram á þeim vettvangi, en aðrar fjármálaráðstafanir verða hins vegar settar fram sem lagafrv., og á ég von á því síðar á þessum fundi, ef hann dregst fram eftir kvöldi, ef ekki, þá verða þessi frv. lögð fram í þinginu á morgun. Meginefni þessara aðgerða er í sambandi við lækkun útgjalda sem nemur um 3 milljörðum 745 millj. Auk þess er gert ráð fyrir lækkun á framkvæmdafé Vegagerðar um 300 millj. frá því, sem fjárlagafrv, gerir ráð fyrir, og þá tekjulækkun að sama skapi. Er gert ráð fyrir að hægt sé að draga úr launaútgjöldum ríkisins um 1700 millj. kr. og þá stefnt að því að dregið verði úr eftirvinnu og öðrum aukagreiðslum, en reynsla af greiðslum á líðandi ári bendir til þess, að þetta sé kleift. Þessari ákvörðun verður að sjálfsögðu að fylgja eftir með sérstökum ráðstöfunum og gerði ég grein fyrir þeim í ræðu minni við 1. umr. fjárl. að nokkru leyti.

þá er ráðgert að lækka útgjöld vegna lyfja og sérfræðiþjónustu sjúkratrygginga um 500 millj, kr. með hækkun gjaldskrár, sem hefur ekki verið hækkuð frá því fyrir einu ári. Er henni ætlað að mæta auknum kostnaði í sambandi við sjúkratryggingarnar að einhverju leyti.

Síðan eru uppi till, um frestun á skuldagreiðslu til lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins um 200 millj. Framlag úr ríkissjóði til byggingar þjóðarbókhlöðu er lækkað, en þá jafnframt lántaka aukin um 35 millj. kr., þannig að framkvæmdafé lækkar um 50 millj. Framlag til ríkisfangelsa lækki um 25 millj. Þá eru útgjöld landhelgisgæslu lækkuð um 150 millj, með því að hætta við fyrirhugaðan rekstur varðskipsins Alberts og að skipið verði selt. Útgjöld skv. sérstökum lögum er ætlað að lækka um 50 millj., og gert ráð fyrir að lækka framlag til Byggðasjóðs um 300 millj., en skv. endurskoðaðri áætlun um eigið fé sjóðsins er þessi lækkun framkvæmanleg innan gildandi lagaákvæða. Liðurinn Óviss útgjöld er lækkaður um 300 millj. og fyrri niðurgreiðsluáætlun um 200 millj, kr., þannig að niðurgreiðsluliðurinn hækkar sem nemur 300 millj. kr. Þá er gert ráð fyrir að lækka áætlun fjárlagafrv. um framræslu um 25 millj. kr. Gert er ráð fyrir lækkun á tillagi til jarðræktar um 5 millj. Þá er gert ráð fyrir lækkun framlags til Orkusjóðs um 100 millj. og gert ráð fyrir till, um lækkun rekstrarkostnaðar Orkustofnunar um 50 millj. Loks er gert ráð fyrir lækkun á ríkisframlagi til húsameistaraembættisins um 5 millj. vegna hækkaðra eigin tekna.

Af þessu má sjá að u.þ.b. helmingur þess vanda, sem við er að glíma, er leystur með lækkun útgjalda. Hins vegar er ljóst, að til þess að brúa bilið þarf með einum eða öðrum hætti að auka tekjur ríkissjóðs, og er gert ráð fyrir að þar sé um að ræða 3.4 milljarða, sem er m.a. fólgið í því, að sjúkragjald verði 2% í staðinn fyrir 1% skv. frv. sem hefur verið lagt fram. Þá verði lagt sérstakt jöfnunargjald á innflutning á sælgæti og brauðvörur, sem mun skila 300 millj. kr. í ríkissjóð. Þá er gert ráð fyrir að bensíngjald hækki um 7.50 kr, með sérstökum lögum, en í fjárlagafrv. var gert ráð fyrir hærri upphæð. Eins og ég gat um er gert ráð fyrir 300 millj. kr. minna framkvæmdafé en frv. gerir ráð fyrir.

Þá er gert ráð fyrir að lagður verði á sérstakur skyldusparnaður, 10%, af tekjum umfram ákveðið mark, sem gefi um 1 milljarð inn á lánahreyfingareikning. Gert er ráð fyrir að tvöfalda flugvallargjald til utanlandsferða, sem gefi um 300 millj. kr. Heimild til álagningar gjalds á gjaldeyrisleyfi verði rýmkuð í 2% og henni beitt að fullu á ferðagjaldeyri, en að hálfu á flest annað, og það mun gefa rúmar 200 millj. kr.

Með þessu skortir eilítið á að náðst hafi jöfnuður í því dæmi sem ég gat um áðan, en nákvæmar niðurstöður fást ekki fyrr en við lok endurskoðunar á tekjuáætlun, sem fjvn. verður, eins og ég sagði áðan, gerð grein fyrir fyrir 3. umr. fjárlagafrv. og þá dæmið skoðað og með hvaða hætti verður eytt þeim halla sem á þessu dæmi er.

Varðandi lánsfjáráætlunina verður til þess að ná markmiðum hennar fram flutt frv. um lántökuheimildir og ríkisábyrgðarheimildir. Í því frv. er gert ráð fyrir að verði ákvæði þess efnis að lífeyrissjóðir ávaxti hluta af fé sínu í verðtryggðum skuldabréfum.

Ég hef nú lokið við að gera þm. grein fyrir því, hvernig ríkissjóðsdæmið stendur, í framhaldi af grg. með lánsfjáráætluninni og tel ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þau mál.