13.12.1977
Sameinað þing: 30. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1127 í B-deild Alþingistíðinda. (784)

1. mál, fjárlög 1978

Magnús Kjartansson:

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að nota þetta tækifæri til að fjalla almennt um fjárhag íslenska ríkisins, þó að þar séu æðimörg tilefni, sem vert væri að gera að umræðuefni. En mér þótti hæstv. fjmrh. tala mjög hraustlega, þegar hann minnti á umr. í sambandi við fjárlög ársins 1974. Þessi hæstv. ráðh. var þá þm. og hann flutti margar ræður um það, hvernig hægt væri að haga fjárl, ársins 1974. Hann sagði að þær upphæðir, sem væru í því frv., væru allt of háar, það ætti að skera þær niður. Hann hélt um það margar ræður of flutti um þetta margar till. Ég held að það væri ástæða til þess að hæstv. ráðh. læsi núna þessar ræður, sem hann flutti áður en fjárl. 1974 voru samþykkt, og ígrundi eigin stöðu í ljósi þeirra orða, sem féllu frá honum þá, og þeirra till., sem hann bar fram þá.

Það eru gömul íslensk íþrótt að flá kött. Sú íþrótt var í því fólgin, að því er fróðir hafa sagt mér, að menn héngu neðan í bita á fótunum og áttu að fara úr öllum fötum án þess að detta niður af bitanum. Hæstv. ráðh. hefur stundað þessa íþrótt þau þrjú ár sem hann hefur verið fjmrh. Hann hefur hangið neðan í bita og hann hefur tínt af sér allar spjarir. Hann hefur hangið berstrípaður frammi fyrir okkur í þrjú ár. Og ég verð að segja eins og er, að mér rennur þetta til rifja. Mér rennur þetta að sjálfsögðu fyrst og fremst til rifja vegna þess, að stjórn fjármála á Íslandi hefur aldrei verið með slíkum endemum síðan Íslendingar fengu sjálfsstjórn í landi sínu. En mér rennur þetta einnig til rifja vegna hæstv. ráðh. Ég hef þekkt hann síðan hann var skemmtilegur strákur í Hafnarfirði endur fyrir löngu, og ég kann illa við að vita af honum hangandi berstrípuðum í þessum bita. Ég veit að hann mun losna af bitanum fljótlega, og þá veit ég að hann mun kappkosta að reyna að finna á sig einhverjar flíkur í stað allra þeirra sem hann hefur orðið að henda utan af sér undanfarin þrjú ár. En sem sagt, ég ætla ekki að tala almennt um þetta mái, heldur aðeins gera grein fyrir fáeinum brtt. sem ég flyt.

Á þskj. 150 eru nokkrar brtt. og ég minnist ú þær í þeirri röð sem þær eru þar.

Þar er fyrst brtt., sem merkt er með rómverskum II, í sambandi við samskipti okkar og nágranna okkar í vestri, Grænlendinga. Um æðilangt skeið hefur verið upphæð á fjárl., annars vegar til að gera Grænlendingi kleift að stunda nám við Háskóla Íslands og hins vegar til að gera Íslendingi kleift að læra grænlensku. Þessi upphæð hefur verið að lækka að raungildi í þeirri óðaverðbólgu sem vaðið hefur yfir okkur, þannig að þessar upphæðir eru ekki lengur að neinu gagni. Þær hafa áður komið að gagni. Ég vil minna á það, að einn af kunnustu forustumönnum í stjórnmálalífi Grænlendinga, Moses Olsen, stundaði nám við Háskóla Íslands vegna þessa styrks, og ég tel að við eigum að rækja samskipti okkar við Grænlendinga myndarlega. Það hefur gerst að undanförnu sem betur fer, að samskipti Íslendinga og Grænlendinga hafa aukist, og það er ekki langt síðan stofnað var hér félag með góðri þátttöku til þess að tryggja tengsl Íslendinga og Grænlendinga.

Ég hef áður gert grein fyrir því hér, að ég tel ástandið á Grænlandi vera þess eðlis, að það sé smánarblettur á öllum Norðurlöndum. Ég ætla ekki að ítreka þær röksemdir mínar hér. En ég tel að okkur beri skylda til að halda sem bestum tengslum við Grænlendinga og þær litlu upphæðir, sem verið hafa á fjárl., haldi a.m.k. verðgildi sínu þannig að þær geti að einhverju leyti nýst. Þarna er ekki um háar upphæðir að ræða. Ég legg til að í þetta verkefni fari 2 millj. kr. og breytir það að sjálfsögðu engu um fjárlagadæmið, en ég vænti þess að alþm. vilji að við höldum tengslum við nágranna okkar í vestri.

Þriðji liðurinn í þessum till. mínum snertir Þjóðminjasafn Íslands. Ég hef áður gert grein fyrir því hér á þingi, að þann aldarfjórðung, sem Þjóðminjasafnið hefur verið starfandi, hefur ekki verið komið fyrir lyftu í byggingunni. Afleiðingin er sú, að sá mikli hluti Íslendinga, sem er fatlaður, hefur ekki átt þess neinn kost að koma inn í þessa byggingu, sem var gjöf þjóðarinnar til sjálfrar sín í tilefni af lýðveldisstofnuninni. Ég hef kannað, hvað svona lyfta muni kosta. Hún kostar ekki meira en um það bil 10 millj. Till. mín er um 20 millj., vegna þess að ég tel að breyta þurfi þarna aðstæðum þannig að fatlað fólk geti athafnað sig á eðlilegan hátt í byggingunni, m.a. breyta salernum og gera fleiri minni háttar breytingar. Þarna er ekki um stóra upphæð að ræða, en er mikið stórmál.

Við skulum gera okkur það ljóst, að fatlaðir eru fjölmennir. Það eru yfir 30 þús. fatlaðir menn á Íslandi, og það á að vera skylda okkar að ganga þannig frá þjóðfélagi okkar og stofnunum þess, að fatlað fólk geti athafnað sig þar til jafns við aðra. Ég þekki t.a.m. þennan vinnustað, sem við erum í. Hér hafa verið gerðar æðimargar breytingar síðan ég kom fyrst í þetta hús. En það hefur engin af þessum breytingum haft þann tilgang að gera fötluðum auðvelt fyrir að vinna á þessum vinnustað. Þrjár tröppur eru upp að aðalinngangi hússins, en ekkert handrið. Ég segi fyrir mig, ég verð að vanda mig til þess að komast upp þessar tröppur. Og handrið aðalstigans frá hæðinni fyrir neðan og hingað upp er þannig, að það vantar æðimikið á að það nái niður stigann, það eru tvö þrep fyrir neðan handriðið. Maður, sem væri öllu verr fatlaður en ég, gæti ekki starfað hér á hinu háa Alþ. Þetta ástand er algerlega ósæmandi, og við verðum að taka okkur tak, Íslendingar, og ganga þannig frá þjóðfélagi okkar að á þessu sviði verði tryggt jafnrétti. Þetta er hægt að gera og þetta felur ekki í sér mikinn kostnað í sambandi við nýjar byggingar. Það er engin þörf á því að hafa þann hátt á, sem verið hefur hér á Íslandi, að hafa háar tröppur við öll hús. Arkitektar geta teiknað hús í samræmi við sjónarmið fatlaðra og þannig ber að standa að málum. Og ég tel að það færi vel á því, að Þjóðminjasafnið, gjöf Íslendinga til sjálfra sín, yrði þannig útbúið að fatlaðir hefðu tök á því að nýta þá menningarstarfsemi sem þar fer fram.

Í tölul. IV í till, ber ég fram till. um að framlag til þjónustudeildar Borgarspítalans í Reykjavík hækki úr 60 millj. í 155 millj, á næsta ári. Þetta er sú stofnun sem daglega gengur undir nafninu slysadeild. Þar hefur verið þannig ástatt um ákaflega langt árabil að vinnuaðstaða hefur verið algerlega herfileg, ekki síst um helgar, þegar drykkjusjúkt fólk þyrpist þangað inn til viðbótar venjulegum sjúklingum. Vinnuskilyrði þarna hafa verið til algerrar smánar, og ég vil benda á það, að slysadeildin er deild sem starfar fyrir landið allt. Verði menn fyrir alvarlegum slysum úti á landi er venjulega gripið til þess ráðs að reyna að flytja hinn slasaða hingað suður til Reykjavíkur til þess að láta annast hann á slysadeild Borgarspítalans. Þar eru framkvæmdir í gangi, en með þeirri fjárveitingu, sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv., er ekki gert ráð fyrir því, að þeim framkvæmdum ljúki á næsta ári, eins og hægt væri að gera. Þetta er stefna sem ég tel vera algerlega ranga. Það tíðkaðist hér áður fyrr að mylgra fjármunum í allar áttir og ljúka ekki neinu. Ég vil minna menn á það, að það gerðist einmitt hér í Reykjavík, að Borgarspítalinn var í smiðum á annan áratug og á sama tíma deildir við Landsspítalann og engu lokið- Við verðum að vera menn til þess að raða verkefnum og ljúka hverju verkefni á sem allra skemmstum tíma. Það er herfileg meðferð á fjármunum að binda þá í steinsteypu sem ekki kemur að neinu gagni. Þessari framkvæmd við Borgarspítalann verður að ljúka á næsta ári og þessi till, mín er um það.

Í annan stað er ég með aðra till. varðandi heilbrigðismál, og það er að heilsugæslustöð verði undirbúin í Breiðholti og að til þess verði varið 20 millj. kr. að undirbúa þá framkvæmd. Ég minnist þess, að þegar ég tók við störfum sem heilbrrh. voru víða uppi mikil vandamál úti á landi í sambandi við læknaskort. Sem betur fór tókst að bæta talsvert úr þessu, m.a. með góðri samvinnu við lækna á heilbrigðisstofnunum hér í Reykjavík sent tóku að sér að sinna læknisstörfum úti á landi til skiptis, þar sem vandræði voru. En ég er ansi hræddur um að vandinn sé orðinn einna brýnastur og erfiðastur hér í Reykjavík. Það er þannig ástatt hér í Reykjavík, að fimmti hver Reykvíkingur hefur engan heimilislækni og það er ákaflega erfitt og alvarlegt ástand. Úr þessu verður ekki bætt fyrr en búið er að koma hér upp heilsugæslustöðvum. Það hefur verið unnið að einni í Árbæjarhverfinu og í Breiðholtshverfi er brennandi nauðsyn að þetta verði gert.

Ég vil geta þess, að þessar till. og upphæðirnar, sem þar eru, eru ekki frá mér runnar. Ég fékk eins og aðrir þm. Reykjavíkur bréf frá borgarstjóranum í Reykjavík, Birgi Ísleifi Gunnarssyni, þar sem hann fór þess á leit að þm. Reykjavíkur beittu sér fyrir ýmsum verkefnum, þ. á m. þessum. Ég veit ekki betur en borgarstjórn Reykjavíkur standi einhuga að baki slíkum till. Þetta er að minni hyggju mjög mikið stórmál Við skulum minnast þess, að heilsugæsla er mælikvarði á það, á hvaða stigi þjóð stendur félagslega. Við ákváðum fyrir nokkrum árum að gera stórátak í þessum efnum. því miður hefur það enn sem komið er gengið of skrykkjótt, vegna þess að ekki hefur verið samin sú heildaráætlun um þróun heilbrigðismála sem gert er ráð fyrir og mælt fyrir um í gildandi lögum. Ég er hræddur um að ekki verði hægt að vinna skipulega að þessum málum fyrr en sú áætlun hefur verið gerð. En þessa áætlun verður að gera og við verðum að vera menn til þess, alþm., að vinna skipulega að þessum málum. Ég er hér að mæla fyrir till. sem komnar eru frá borgarstjórn Reykjavíkur í heild fyrir tilstilli borgarstjórans.

Á þskj. 160 er till. frá okkur 5. þm. um sundlaug við Grensásdeild Borgarspítalans 1. flm. þessara r till. er hv. þm. Jóhann Hafstein og hann mun að sjálfsögðu mæla fyrir henni. Ég hef ekki neinn hug á að ota mér fram fyrir hann. En ég vil minna alþm. á að þarna er ekki aðeins um málavextina sjálfa að ræða. Þarna er um að ræða heiður Alþingis. Það var samþykkt einróma á hinu háa Alþ. á síðasta ári að lýsa yfir við ríkisstj. þeim vilja Alþ., að fjárveiting til sundlaugar við Grensásdeildina yrði á fjárl. ársins fyrir 1978. Þetta var einróma vilji Alþ. Ég spurðist fyrir um það í þingbyrjun í haust, hvort þetta væri á fjárl. Það gerðist þá, að hingað kom hópur af fötluðu fólki, margir tugir manna, til þess að hlusta á svör ráðh. Við umr. töluðu 5 hæstv. ráðh. og þeir lýstu því allir yfir, að þessi fjárveiting væri á fjárl. En engin slík fjárveiting er hér samkv. till. fjvn. Þar er gert ráð fyrir 3 millj. kr. til frumhönnunar. Þessi frumhönnun var framkvæmd fyrir einu ári af Reykjavíkurborg, það er búið að framkvæma hana. Í þessari till. virðist ekki felast annað en skuldaskil ríkissjóðs við Reykjavíkurborg, að ríkið borgi Reykjavíkurborg það sem Reykjavíkurborg hefur greitt til þess að hanna þessa sundlaug. Ég hef að sjálfsögðu ekkert við það að athuga að ríkissjóður standi í skilum fjárhagslega við Reykjavíkurborg og alla aðra aðila. En hér er ekki um það að ræða. Hér er um að ræða vanda fatlaðs fólks. Hér er um að ræða heilsu og getu fatlaðs fólks til þess að athafna sig í þjóðfélaginu, og mér finnst að sómi Alþ. liggi við, að hvorki ráðh. né alþm. geri sig að minni mönnum með að svíkja loforð gagnvart fötluðu fólki.

Ég hef lokið máli mínu, hæstv. forseti.