13.12.1977
Sameinað þing: 30. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (790)
1. mál, fjárlög 1978
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Ég mun einungis mæla hér nokkur orð fyrir tveimur brtt., sem ég er viðriðinn. Fyrri brtt. er á þskj. 150 og í öðru lagi brtt. á þskj. 160.
Till. sú, sem við flytjum, hv. 11. landsk. þm., Geir Gunnarsson, hv. 1. landsk. þm., Jón Árm. Héðinsson, og ég, um Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur að vísu þegar verið kynnt, en ég vil þó til áherslu fara um hana nokkrum orðum. Þessi nýi skóli, sem er þegar orðinn aðalframhaldsskóli allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum, er í uppbyggingu og er svo ráð fyrir gert, að á næsta ári verði um að ræða hvorki meira né minna en 120–140 nemenda fjölgun í þessum skóla. Ég held að þó að reynsla sé ekki mikil af skólanum sé hægt að fullyrða það, að hún sé mjög góð. Sveitarfélögin þarna syðra og Suðurnesjamenn almennt eru mjög ánægðir með þá lausn, sem þessi skóli veitir í sambandi við framhaldsskólamenntun á Suðurnesjum. Og það er enginn efi á því, að sú viðbótarbygging, sem bráðnauðsynleg er nú við þennan skóla, er hið stóra mál Suðurnesjamanna allra í skólamálum í dag. Á þetta var lögð alveg sérstök áhersla á fundi sem alþm. Reykjaneskjördæmis héldu með bæjarstjórum og oddvitum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum nú í haust. Þeir stóðu þar upp, sveitarstjórnarmennirnir, bæjarstjórar og oddvitar, hver á fætur öðrum og lýstu því að það væri hið stærsta og brýnasta mál í skólamálum þarna syðra að þessi viðbótarbygging kæmist upp þannig að hægt yrði að taka hana í notkun fyrir eða í byrjun næsta skólaárs. Það liggur fyrir að hin raunverulega fjármagnsþörf til þessa verks er um 100 millj, kr., væri það á fjárl., en vegna þeirrar nauðsynjar, sem er á að koma þessari byggingu upp telja sveitarfélögin að þau muni reyna og e.t.v. muni þeim verða kleift með lántökum að brúa þarna nokkurt bil, þannig að þau gætu útvegað e.t.v. nokkra tugi millj. En sú upphæð, sem er á brtt. fjvn., er 35 millj. Hún er allsendis ófullnægjandi og mundi ekki nálgast það að leysa þann vanda sem þarna er um að ræða, en 65 millj. fjárveiting, eins og við gerum till. um, mundi sennilega leysa meginvandann. Sveitarfélögin mundu, eins og ég segi, telja að þá væri þeim kleift að útvega það fjármagn sem á vanlaði til þess að þessi nauðsynlega framkvæmd kæmist í gagnið á eðlilegum og réttum tíma.
Síðan ætla ég að víkja nokkrum orðum að þeirri brtt., sem ég flyt á þskj. 160. Það er fyrsta brtt. á því þskj. Hún er um nokkra hækkun á þeirri fjárveitingu, sem ætluð er til aðstoðar við þróunarlönd. Það eru senn liðin 7 ár síðan sett var af Alþ. löggjöf um aðstoð Íslands við þróunarlöndin. Samkv. þeirri löggjöf var kosin sérstök nefnd til að annast framkvæmdir, og var veitt dálítið byrjunarframlag á fjárl. Um þessa löggjöf var, ef ég man rétt, alger samstaða hér á Alþ. Ýmsir vildu að vísu byrja smátt, en sækja þá fremur í sig veðrið. Það var ekki hægt að segja annað en að með lögunum, sem samþ. voru, var merkið þegar í upphafi selt býsna hátt, því í 2. gr. þessara laga, sem eru frá 1971, um aðstoð við þróunarlöndin, segir, að að því skuli stefnt að framlög Íslendinga til þróunaraðstoðar nái sem fyrst því marki, sem samþ. hafði verið sem viðmiðun á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þá fyrir fáum árum, þ.e. að þessi framlög nemi í heild 1% af þjóðartekjum. Því miður hefur skort mikið á að reynt væri í nokkurri alvöru að nálgast þetta mark. Lengi vel mátti segja að saman færi ákaflega lítilfjörlegur fjárhagsstuðningur af Íslands hálfu og sú vansæmd, að við — þessi tiltölulega ríka þjóð — fórum að sækjast eftir umtalsverðum fjármunum af því fé sem aflögufærar þjóðir lögðu fram til þróunaraðstoðar. s.l. ár var óneitanlega gerð þér umtalsverð bragarbót, þegar hætt var að þiggja þessa þróunaraðstoð. Þá firrtum við okkur þeirri vansæmd að ásælast fjármuni úr þróunarsjóði Sameinuðu þjóðanna, þeim sjóði sem hefur það hlutverk að hjálpa þróunarlöndunum, þeim sem fátækust eru. Og á s.l. ári gerðum við nokkru betur en þetta, og vissulega ber að þakka það. Hin afar lága fjárhæð, sem veitt hafði verið í aðstoð Íslands við þróunarlöndin, var tvöfölduð í íslenskum krónum talið, hækkaði úr 12.5 millj, kr. í 25 millj. kr. Þessar tvennar aðgerðir, að hætta að ásælast peninga úr Þróunarsjóði Sameinuðu þjóðanna og tvöföldun hinnar litlu fjárhæðar, sem íslenska þjóðin leggur til aðstoðar við þróunarlöndin, þessar aðgerðir voru mjög ánægjulegar. Þær voru þeim til sóma sem þar áttu einkum hlut að máli, og þar hygg ég að fyrst og fremst megi nefna þá hæstv. utanrrh , Einar Ágústsson, og hæstv. fjmrh., Matthías Á. Mathiesen. Miðað við það hversu illa hafði verið staðið að verki um fjárframlög til þróunaraðstoðarinnar áður og hve miklir eftirbátar annarra Norðurlandaþjóða við vorum og erum á þessu sviði, hvort heldur miðað er við þjóðartekjur á mann eða við fólksfjölda, þá var hér óneitanlega um nokkra framför að ræða. Hér gat í rauninni verið sett ákveðið stefnumark og það sæmilega verðugt mark til þess að stefna að næstu árin, meðan við værum að nálgast eitthvað það sem aðrar aflögufærar þjóðir telja sér sæma og skylt að leggja af mörkum í þessu skyni. Það markmið gat verið að tvöfalda þessa sáralitlu þróunaraðstoð árlega í ísl. kr. nokkur næstu árin.
Sem dæmi um það, hversu miklir eftirbátar við erum næstu nágranna okkar í þessu efni vil ég aðeins nefna, að Svíar hafa fram að þessu verði eina þjóðin í heiminum, sem náð hefur markinu sem á sínum tíma var sett af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, þessu 1% marki. Á næsta ári gera Norðmenn ráð fyrir að ná markinu einnig og yrðu þá líklega önnur þjóðin í veröldinni sem næði því. Samtals ætla Norðmenn á næsta ári, þ.e.a.s. bæði norska ríkið og ýmis samtök, frjáls samtök þar í landi, að veita til þróunarhjálpar upphæð sem nemur 63 milljörðum ísl. kr. Miðað við fólksfjölda ætti þróunarhjálp Íslendinga þess vegna að vera um 3 milliarða ísl. kr.
Nú er ég ekki að fara fram á neitt slíkt. Ég hygg að segja megi, að hvorki hæstv. ríkisstj., hv. Alþ. né þjóðin sjálf sé í rauninni undir það búin að taka undir till. sem hníga eitthvað í þessa átt. Við erum því miður allt of oft að berja okkur, enda þótt meðaltekjur hér séu meira en tvítugfaldar miðað við hin fátækustu lönd. En við verðum samvisku okkar vegna og heiður, okkar vegna að gera til mikilla muna betur í þessum efnum en við höfum gert, og það er einber barlómur að halda því fram, að við höfum ekki efni á því.
Í fjárlagafrv. fyrir árið 1978 er framlagið til þróunaraðstoðar aukið úr 25 millj. í 40 millj. kr. Vissulega er þetta framför frá þeirri alveg fráleitu reglu að láta sömu vesældarupphæðina í ísl. kr. dingla óbreytta á fjárlögum ár eftir ár, eins og lengi var gert, þrátt fyrir gengisfellingar, gengissig og verðbólgu. En hitt er ljóst, að meginhluti þessarar hækkunar nægir aðeins til þess að vega upp á móti fyrirsjáanlegu gengissigi og verðbólgu.
það er eðlilegt að menn spyrji, hvort hið litla framlag, sem við höfum veitt til þróunaraðstoðar hafi komið að einhverju gagni, Ég hygg að það hafi tvímælalaust komið að gagni. Það hefur tekist ágæt samvinna meðal Norðurlanda um ýmis verkefni, aðallega í Afríku, og ég held áð undirbúningur allur að þeim verkefnum, sem Norðurlöndin vinna að sameiginlega, hafi verið góður og þessi aðstoð muni skila árangri og hafi jafnvel þegar gert það.
Við höfum verið síðustu árin lítils háttar aðilar að þessum sameiginlegu verkefnum Norðurlanda. Sú stofnun, sem sér um þessa þróunaraðstoð fyrir okkar hönd og er sett samkv. lögum frá 1971, eins og ég áðan nefndi, hefur sótt um 52 millj. kr. til þeirra brýnu verkefna sem hún hyggst vinna að á næsta ári. Þessi fyrirhuguðu meginviðfangsefni eru tvenns konar. Það er annars vegar að halda áfram þeim samnorrænu verkefnum í Kenýa og Tansaníu, sem unnið hefur verið að, og einnig að taka upp nýtt norrænt verkefni í Mosambique, sem er þó unnið, að ég hygg, í samvinnu við FAO. Til þessara verkefna er sótt samtals um 23 millj. kr., en auk þess er fyrirhuguð aðstoð við Kenýa á sviði fiskveiða og er gert ráð fyrir að sú aðstoð kosti á næsta ári 25 millj, kr.
Guðjón Illugason skipstjóri, sem hefur manna mest og best unnið ýmis störf í þessum löndum á sviði fiskveiðimála, hefur undirbúið þetta málefni ásamt fleirum og nú standa yfir samningar við Kenýastjórn um þessa aðstoð og framkvæmd hennar. Aðstoðin yrði falin í þjálfun fiskimanna frá Kenýa, í leiðbeiningum um hentugan skipakost, um veiðarfæri, um fiskvinnslu og annað sem að útgerð lýtur.
Vissulega kemur margvísleg aðstoð til greina þegar um það er að ræða að leggja einhverja hjálp af mörkum til þeirra landa sem fátækust eru í veröldinni og eiga við mesta erfiðleika að stríða. Þar á meðal kemur vissulega til greina að kaupa og leggja fram til handa sveltandi fólki næringarrík íslensk matvæli, sem við eigum sem betur fer mikið af. Hitt er þó vafalaust mest um vert, þegar til lengdar lætur, að aðstoða fólkið í þróunarlöndunum til sjálfsbjargar, að gera það fært um að nytja auðlindir landa sinna í eigin þágu. Að því hefur viðleitni Norðurlandaþjóða beinst fyrst og fremst, og að því beinist viðleitni þeirrar stofnunar sem við höfum falið sérstaklega að annast þessi mál fyrir okkar hönd.
Ég legg sem sagt til á þskj. 160, að liðurinn Aðstoð Íslands við þróunarlöndin hækki úr 40 millj. í 50 millj. kr. Það yrði þá helmings hækkun frá síðasta ári, og ég tel að við stæðum okkur sómasamlega ef við tækjum upp þann hátt allmörg næstu árin, þangað til við erum farnir að vinna myndarlega að þessu máli, að tvöfalda þessa upphæð í krónum talið á hverju ári.