13.12.1977
Sameinað þing: 30. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1185 í B-deild Alþingistíðinda. (799)
1. mál, fjárlög 1978
Sverrir Bergmann:
Herra forseti. Ég hef á þskj. 160 flutt um það till. ásamt hv. þm. Jóhanni Hafstein, Magnúsi Kjartanssyni, Eggert G. Þorsteinssyni og Albert Guðmundssyni, að til sundlaugar við Grensásdeild Borgarsjúkrahússins verði veittar 50 millj. kr. í stað 3 millj., eins og nú stendur.
Ég hef gerst meðflm. að þessari till. vegna þess, að hér er ákaflega þarft mál og nauðsynlegt á ferðinni. Það vita allir hv. alþm., að endurhæfing verður ekki framkvæmd svo vel sé án sundlaugar, eins og nú háttar við Grensásdeildina. Ég held að það þýði lítt um það að fást núna, þótt ekki hafi verið gert ráð fyrir sundlaug upphaflega við Grensásdeildina. Deildin var í upphafi ætluð til annarrar starfsemi. En við verðum einfaldlega að horfast í augu við þá staðreynd, að þessi starfsemi fer þarna fram núna, ég fullyrði, með mjög miklum ágætum og skortur á sundlaug stendur starfsemi deildarinnar mjög fyrir þrifum.
Þá er það einnig annað atriði, að Alþ. hefur rannar þegar afgr, upphaflega þáltill. um þetta mál með ákaflega jákvæðu hugarfari, þótt till. muni að vísu hafa verið vísað til ríkisstj. og enda þótt slík afgreiðsla jafngildi að öðru jöfnu ekki endilega langlífi. Ég tel mig einnig muna það rétt, að hæstv. forsrh. hafi sagt í umr. hér á hv. Alþ. fyrr í vetur, að fjármagn mundi verða tryggt til þessara framkvæmda, og ég er þess alveg fullvíss, að hæstv. fjvn. vill ekkert það gera að hæstv. forsrh, fái þar ekki staðið við orð sín.
Þá vil ég geta þess einnig í þriðja lagi, að hæstv. utanrrh., hvers sæti ég held nú hér á hv. Alþ., var einn af upphaflegum flm. þáltill. um sundlaug við Grensásdeild Borgarsjúkrahússins.
Það eru þessi þrjú atriði, sem ég hef nefnt, sem gera það að verkum að ég styð þessa till. Þetta er að sjálfsögðu mikið hagsmunamál íbúum Reykjavíkur, en þetta er einnig hagsmunamál allra landsmanna, því Grensásdeildin þjónar fleirum en Reykvíkingum einum. Ég styð þessa till., enda þótt ég geri mér ákaflega vel ljósan þann efnahagsvanda, sem við er að etja, og hve lítið svigrúm er til aukinna útgjalda. Raunar lit ég á sjálfan mig sem talsmann sparnaðar og aukinnar hagræðingar, sérlega í öllum opinberum rekstri, og ég harma það mjög að enn skuli vera svo, að það eitt þyki nú fært til lausnar þeim efnahagsvanda, sem við stöndum frammi fyrir, að leggja á nýjar álögur. Það skiptir mig engu máli hvaða nöfn þessum álögum eru gefin. Ég harma það ákaflega mikið, að það skuli ekki liggja fyrir rækileg úttekt á rekstri jafnveigamikilla þátta eins og t.d. heilbrigðismálin eru, og ég harma það sömuleiðis, að það skuli ekki liggja fyrir nú þegar nauðsynlegar breytingar á skattalöggjöfinni, því það er a.m.k. ekki farsælt til lengdar að innheimta gjöld eftir kerfi, sem er margreynt að ekki getur talist réttlátt, og það verður um síðir einnig ómögulegt að ná inn þeim peningum, sem vantar, eftir þessu kerfi. Það verður ekki til lengdar sótt endalaust fé til landsmanna eftir þessu margnefnda kerfi og með sömu framkvæmd, svo að það dugi. En ef hins vegar einhverjir þeir peningar eru í umferð, skattskyldir peningar, en sleppa fram hjá þessu okkar álags- og innheimtukerfi, þá verður að búa svo um hnútana að hægt sé að ná í það fé, því sá takmarkaði fjöldi þegnanna, sem skattkerfið nær til, hvort heldur þeir hafa miklar eða litlar tekjur, þessi takmarkaði fjöldi stendur ekki endalaust undir nýjum álögum. Okkur má líka vera ljóst, að við sækjum, a.m.k. ekki í bráð, nema takmarkað fé til erlendra lánastofnana og a.m.k. í bili ekki mikið til frekari framkvæmda. Ég veit að ég er ekkert að færa í tal nein sérstök vísindi. Ég veit það, að öllum hv. alþm. er þetta vel ljóst og að ekki verður mjög lengi haldið áfram á sömu braut.
Það hlýtur að verða fljótlega að koma til ný skattalöggjöf og bætt framkvæmd við innheimtu skatta ásamt með sparnaði í ríkisrekstrinum og endurskipulagningu á mörgum þáttum þess, og ég vil af einlægni treysta því, að hæstv. ríkisstj. vinni að þessu ötullega. Það er líka mín skoðun, að á erfiðum tímum sé nauðsynlegt að meta nauðsyn framkvæmda og hvort þær séu tímabærar, hvort þær séu arðbærar og hver áhrif þeirra séu á atvinnu og byggð í landinu. Ég hygg að ekkert annað sé skynsamlegur búskapur. Það má líta á þetta sem eins konar innskot, en ég vil svo víkja svolítið nánar að sundlaugum og endurhæfingu og vildi segja þetta til viðbótar.
Ég held að þessi till. um sundlaug við Grensásdeild Borgarspítalans hafi upphaflega verið borin fram af nokkurri tilfinningasemi, og ég vona að ég særi ekki neinn með því, en ég held að hún hafi verið borin fram af tilfinningasemi fyrst og fremst og nánast eingöngu. En það breytir engu um það, að hv. Alþ. hefur léð þessari till. sitt góða eyra og ég hef áður vitnað til orða hæstv, forsrh. Ég lít því svo á, að við þetta verði einfaldlega að standa. Hvorki hæstv. forsrh. né hv. alþm. allir vilja vera ómerkir orða sinna. En það er ekki hægt að komast hjá því að benda á það, að við Landsspítalann í Reykjavík er þegar grunnur að sundlaug og á Landsspítalanum fer fram gífurlega mikil endurhæfing. Þar þarf að endurhæfa sjúklinga með taugasjúkdóma, gigtarsjúkdóma, bæklunarsjúkdóma, m.a. eftir slys, hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, svo að nokkuð sé nefnt. það vantar mjög tilfinnanlega einnig sundlaug við þessa stofnun.
Ég þarf auðvitað ekkert að skýra fyrir hv. þm., hvað endurhæfing er orðin mikilvægur þáttur í lækningum, og ég þarf heldur ekkert að útskýra það fyrir hv. þm., hvað sundlaug er mikilvægur þáttur, svo að endurhæfing sé eins góð og frekast er kostur á. Ég leyfi mér í þessu sambandi að vísa til orða hv. þm. Odds Ólafssonar áðan. Og nú vil ég enn bæta því við, að það er grunnur að sundlaug og teikningar að sundlaug fyrirliggjandi við hús Öryrkjabandalagsins í Hátúni 12 í Reykjavík. Þessi sundlaug er til hliðar við að öðru leyti vonandi í nánustu framtíð fullgerða endurhæfingarstöð á neðstu hæð þess húss. Það er því raunar einnig mjög áriðandi að koma þar upp sundlaug hið allra fyrsta.
Ég geri mér hins vegar ljóst, að þýðingarlítið er að vera að biðja um fé í allt þetta. það virðist ekki liggja á lausu og það virðist auk þess ekki vera hægt að innheimta það nema eftir kerfi, sem ekki hefur tekist að sniða agnúana af, þannig að það gæti verið sæmilega réttlátt.
Mín skoðun er sú, að það þurfi að hyggja miklu betur að því, hvernig fé til heilbrigðismála nýtist, og ég leyfi mér að fullyrða að með betra skipulagi, sem er tiltölulega einfalt að koma fyrir og koma í framkvæmd ef vilji er fyrir hendi, þá er allt það fé þegar til sem þarf til að koma upp þessum sundlaugum á skikkanlegum tíma, ekki bara við Grensásdeildina, heldur á hinum stöðunum líka. Og ég fullyrði að það sé ekki bara til fé til þessa, heldur einnig fé til þess að hægt sé að kaupa inn í landið nauðsynleg rannsóknatæki, þannig að heilbrigðisþjónustan staðni ekki, eins og hún hefur sýnt merki um þrátt fyrir allt undanfarin ár, heldur takist henni nokkurn veginn að fylgjast með því sem er að gerast. Ég hlýt því að harma það mjög, að þáltill., sem ég flutti hér ásamt hv. þm. Oddi Ólafssyni 1975 og hafði þann tilgang að kanna hversu best mætti nýta það té, sem fer í heilbrigðisþjónustuna, hefur raunverulega enga afgreiðslu fengið sem máli skiptir.
Uppbygging endurhæfingar er ákaflega veigamikið mál, og ég veit, að hv. þm. gera sér fulla grein fyrir því. Það er raunverulegt efnahagsmál, eins og fram kom hjú hv. þm. Oddi Ólafssyni í ræðu hans áðan. Hver einasta sundlaug, sem kemur upp við endurhæfingarstöðvar, er mikill ávinningur og leysir vanda mikils fjölda fólks. Það er ekkert launungarmál, að slíkar laugar þurfa að koma við Landsspítalann og einnig við Hátún 12 í Reykjavík, og ég efast ekkert um að það getur verið þörf fyrir slíkar laugar viðar en hér á þessu svæði.
Það er rétt hjá hv. þm, Oddi Ólafssyni, að það er fullkomin og góð laug til staðar á Háaleitisbraut 13 hér í Reykjavík og hún leysir auðvitað ákaflega mikinn vanda, og það sama á við um Reykjalund. Starf þessara stofnana er gífurlega mikið, og það er ákaflega gott starf sem unnið er á þessum stöðvum. Það er þjóðinni raunverulega alveg ómetanlegt. En því miður anna þessar tvær stofnanir ekki því álagi sem er á endurhæfingarstarfseminni.
Það má vel vera, að það hefði átt að fara þá leið að skoða þessi sundlaugarmál vegna endurhæfingar sem meira heildarmál. Það er þó ákaflega erfitt um það að fullyrða, því að það er ekki alltaf svo auðvelt að ná samkomulagi um röðun framkvæmda og hver staðurinn eigi að hafa forgang. Í því efni eru allir mannlegir og hverjum og einum er hlýjast til eigin bæjar. Það má segja að sú leið, sem hefur verið opnuð, að hefjast handa svolítið tilviljanakennt og kannske fyrir tilfinningasemi á einum stað, að sá háttur sé kannske alveg jafnfarsæli, því að auðvitað mundi slík laug ekki aðeins þjóna Grensásdeildinni, hún yrði að sjálfsögðu gernýtt og mundi þjóna vafalaust miklu fleiri einstaklingum en þeim sem endilega lægju þar, þannig að hún mundi koma til viðbótar þeim, sem nú eru fyrir, og leysa vanda umfram þann sem tekur til sjúklinga deildarinnar sjálfrar. En þegar ég segi að þetta kunni að vera jafnfarsælt, þá verður það þó því aðeins jafnfarsælt að þessi framkvæmd sé beinlínis drifin áfram, en ekki að hún liggi í láginni árum saman og komist endanlega til framkvæmda jafnvel eftir áratugi og á sama tíma sé haldið að sér höndum með sömu framkvæmdir á öðrum stöðum. Ef þetta á að vera jafnfarsælt, þá verður að drífa þessa framkvæmd af og jafnframt að gera um leið áætlun í þá átt að hafist verði handa strax annars staðar, þannig að þessum málum verði lokið á öllum þessum stöðum á tiltölulega skömmum tíma. Og um leið og við gerum þetta skulum við hafa það hugfast, hvort þeir peningar leynast ekki í þeirri fjárveitingu, sem nú þegar fer til heilbrigðismála í landinu, sem mætti nota í þetta þarfaverk án þess að heilbrigðisþjónustan verði á nokkurn hátt verri. Að því er vandalaust að leiða rök og hægt að benda á, hvar þægilegt er að færa til án þess að það þurfi að skaða nokkurn mann, nema þá helst ímyndaðan metnað einhverra einstaklinga.
Ég vil með þessum orðum vænta þess, að hv. fjvn. taki þetta mál til vinsamlegrar athugunar og finni á því lausn í þeim anda sem ég hef nú nefnt.