14.12.1977
Efri deild: 25. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (808)
109. mál, ríkisreikningurinn 1975
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1975 liggur hér fyrir á þskj. 130. Þá hefur einnig verið lagt fram frv. til fjáraukalaga sama árs og verður gerð sérstök grein fyrir því í Sþ.
Eins og fram kemur í aths. með frv. er það samið eftir ríkisreikningi fyrir árið 1975. Reikningurinn var afhentur yfirskoðunarmönnum til meðferðar og lagður óendurskoðaður fyrir Alþ. í okt. 1976. Í apríl 1977 var hann lagður fyrir Alþ. endurskoðaður með aths. og till. yfirskoðunarmanna og svörum ráðh.
Við 1. umr. um fjárlagafrv. fyrir þetta ár gerði ég nokkra grein fyrir afkomu ríkissjóðs á árinu 1975 og ríkisreikningi. Ég mun því ekki gera nema örstutta grein fyrir honum nú, enda hafa þm. haft hann til skoðunar, eins og ég sagði, frá hausti 1976.
Yfirskoðunarmenn gerðu fsp. í 12 liðum og birtu auk þeirra yfirlit um viðskipti innheimtuembætta við ríkissjóð samkv. bókhaldi ríkisbókhalds fyrir árið 1975 með hliðstæðum hætti og áður hefur verið gert. Svör við fsp. sínum telja yfirskoðunarmenn ýmist fullnægjandi eða rétt að viðkomandi atriði verði til athugunar. Till. sínum skiluðu yfirskoðunarmenn í mars s.l., og leyfi ég mér að vísa í ríkisreikninginn varðandi þær svo og sjálfar fsp. þeirra og svör við þeim. Tel ég ekki ástæðu til að gera nánari grein fyrir þeim að svo stöddu.
Með frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1975 mun ég gera stutta grein fyrir helstu frávíkum ríkisreiknings og fjárl. ársins, en hér rekja stærstu liði í gjöldum og tekjum A-hluta ríkisreikningsins.
Ég vil eins og áður vekja athygli á tveimur meginreglum við uppgjör A-hluta ríkisreiknings samkv. núgildandi lögum, nr. 52 frá 1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. Önnur er sú, að álagðar tekjur og áfallin gjöld eru lögð til grundvallar við uppgjör rekstrarreiknings; en ekki greiðsluhreyfing þessara liða,
þ.e. innheimta tekna og útgreiðsla gjalda. Af því leiðir að í efnahagsyfirliti eru óinnheimtar tekjur meðal eignarliða og ógreiddar gjaldaskuldbindingar meðal skuldaliða. Hin meginreglan er sú, að fjárfestingarútgjöld A-hlutans eru talin með gjöldum þess árs þegar til þeirra er stofnað, en þeim ekki dreift með afskriftum á bann árafjölda sem gert er ráð fyrir að fjárfestingin endist, eins og gildir um uppgjör fyrirtækja og sjóða ríkisreiknings í B-hluta ríkisreiknings.
Greiðsluafkoma ríkissjóðs á árinu 1975 samkv. hreytingu sjóðseignar, innistæðna og skulda og ávísana á hlaupareikningum við Seðlabanka Íslands og innlánsstofnanir, ásamt breytingu lánareikninga við Seðlabankann var óhagstæð á árinu 1975 um 4 milljarða 928 millj. kr., og að viðbættum lánum við Seðlabankann vegna ábyrgða ríkissjóðs á verðtryggingu Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, að fjárhæð 846 millj., var greiðsluafkoman óhagstæð um 5 milljarða 7 74 millj. kr.
Heildarniðurstaða rekstrarreiknings A-hluta ríkisreiknings fyrir árið 1975 var sú, að gjöld námu 58 milljörðum 576 millj. og 672 þús. kr., en tekjur námu 51 milljarði 443 millj. 985 þús. kr. Gjöldin skiptast í stórum dráttum þannig:
Gjöld vegna fræðslu- og menntamála á vegum menntmrn. námu 7 milljörðum 610 millj. 584 þús. kr., þar af vegna héraðsskóla og grunnskóla 4 milljörðum 105 millj. 875 þús. kr.
Gjöld vegna búnaðarmála námu 2 milljörðum 616 millj. 236 þús., þar af 1 milljarði 102 millj. 438 þús, kr. vegna uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir.
Gjöld vegna útvegsmála námu 2 milljörðum 393 millj. 232 þús. kr., þar af 698 millj. 188 þús. kr. vegna Hafrannsóknastofnunar. Er þá innifalið í þeirri fjárhæð kaupverð á togaranum Baldri fyrir stofnunina, að fjárhæð 342 millj. 121 þús. kr. Einnig eru hér taldar með útvegsmálum 846 millj. 108 þús. kr. vegna skylduframlags ríkissjóðs til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins samkv. sérstökum lögum.
Gjöld vegna dómgæslu og lögreglumála námu 3 milljörðum 15 millj. 980 þús. kr., þar af vegna landhelgisgæslu 886 millj. 25 þús. kr.
Gjöld vegna húsnæðismála námu 2 milljörðum 199 millj. 697 þús. kr., þar af 1 milljarði 896 millj. 788 þús. kr. til Byggingarsjóðs ríkisins eða Húsnæðismálastofnunar.
Gjöld vegna tryggingamála og heilbrigðismála námu 18 milljörðum 468 millj. 588 þús. kr., þar af 76 milljörðum 505 millj. 57 þús. kr. til Tryggingastofnunar ríkisins.
Gjöld vegna toll- og skattheimtu námu 597 millj. 106 þús. kr, og framlag til Ríkisábyrgðasjóðs svo og vegna togara, sem fært er undir fjmrn., en ekki útvegsmál hjá sjútvrn. nam 429 millj. 984 þús. kr.
Gjöld vegna samgöngumála, auk yfirstjórnargjalda samgrn., námu 6 milljörðum 895 millj. 223 þús. kr., þar af vegna vegagerðar 4 milljörðum 5 millj. 224 þús. kr.
Gjöld vegna iðnaðarmála og orkumála, auk yfirstjórnar rn., námu 1 milljarði 571 millj. 763 þús. kr. Kröfluvirkjun er þar ekki meðtalin frekar en aðrar virkjanir sem gerð er grein fyrir í B-hluta ríkisreiknings.
Gjöld vegna niðurgreiðslna á vöruverði námu 5 milljörðum 586 millj. 5 þús. kr.
Gjöld vegna greiðslna á vöxtum og verðbótum lána, sem ríkissjóður hefur tekið, ásamt vöxtum af yfirdráttarskuldum í Seðlabankanum námu alls 1 milljarði 766 millj. 95 þús. kr.
Stærstu einstakir gjaldaliðir A-hluta ríkisreiknings voru eins og áður vegna Tryggingastofnunar, niðurgreiðslna og uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir svo og vegagerðar, samtals 27 milljarðar 195 millj. 724 þús. kr., um 46% gjalda A-hlutans í heild á árinu 1975. Árið 1974 var þessi hlutfallstala 48%.
Tekjur í heild námu, eins og áður sagði, 51 milljarði 43 millj. 987 þús. kr. samkv. tekjufærslu, þ.e. álagningu tekna. Innheimta ársins nam hins vegar, eins og gerð er grein fyrir á bls. 61 og 63 í ríkisreikningi, 49 milljörðum 342 millj. 915 þús. kr. Stærstu teknaliðir A-hluta ríkisreiknings voru eins og áður söluskattur, almenn aðflutningsgjöld, tekju- og eignarskattur og hagnaður af Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Söluskattur nam í tekjufærslu 17 milljörðum 885 millj. 135 þús. kr. og í innheimtu 17 milljörðum 79 millj. 415 þús. kr. Aðflutningsgjöld, almenn, námu 10 milljörðum 110 millj. 812 þús. kr. í tekjufærslu og svo til sömu fjárhæð í innheimtu. Tekju- og eignarskattur, þar með erfðafjárskattur, námu í álagningu 6 milljörðum 102 millj. 569 þús. kr. og í innheimtu 5 milljörðum 724 millj. 515 þús. kr. Barnabætur og persónuafsláttur, að fjárhæð 2 milljarðar 686 millj. 134 þús. kr., hafa þá verið dregin frá. Hagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins nam 4 milljörðum 736 millj. 364 þús. kr. Þessir fjórir liðir námu í tekjufærslu alls 38 milljörðum 842 millj. 880 þús. eða 76% af heildartekjum A-hluta ríkisreiknings árið 1975. Þessi hlutfallstala var um 80% árið 1974. Fimmti stærsti tekjuliðurinn var launaskattur. er nam 2 milljörðum 934 millj. 889 þús. í álagningu. Innheimtan nam 2 milljörðum 700 millj. 565 bús. kr. Að launaskatti meðtöldum námu þessir fimm teknaliðir 82% heildartekna A-hlutans árið 1975, en um 84% gríð 1974.
Ég mun ekki gera nánari grein fyrir niðurstöðum ríkisreiknings fyrir árið 1975. Um frávik reikningsins og fjárl. mun ég fjalla, eins og ég sagði áður. í framsögu fyrir frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1975.
Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh: og viðskn.