19.10.1977
Efri deild: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (84)

25. mál, almannatryggingar

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það er eins með þetta frv. og hin tvö, sem ég mælti fyrir áðan, að það er flutt til staðfestingar á brbl, sem gefin voru út 9. ágúst í sumar, og það var gert í samræmi við ákvörðun ríkisstj. til þess að greiða fyrir samkomulagi um lífeyrismál sem heildarlausn í kjarasamningunum sem undirritaðir voru 22. júní, þess efnis, að tekin verði upp sérstök heimilisuppbót á lífeyri allra einhleypra tekjutryggingarþega, sem búa einir á eigin vegum. Frv. er um það, að einhleypingi, sem nýtur óskertra uppbóta tekjutryggingar og er einn um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað, skal að auki greiða heimilisuppbót, 10 þús. kr. á mánuði, Eigi hann rétt á skertri tekjutryggingu lækkar heimilisuppbótin í sama hlutfalli.

Það tók fyrst nokkurn tíma að vinna að undirbúningi þessarar lagasetningar. Hún var gerð í fullu samráði og samstarfi við tryggingaráð og Tryggingastofnun ríkisins. Eftir að brbl. voru gefin út var rætt á milli rn. og tryggingaráðs um að setja sem fyrst reglugerð um tekjutryggingu almennt, heimilisuppbót og heimildarhækkanir samkv. 19. gr. laga um almannatryggingar. Þessi reglugerð hefur verið gefin út nú fyrir nokkru, eða 30. sept., og er í fullu samkomulagi og samvinnu við tryggingaráð og Tryggingastofnun ríkisins. Hér er um að ræða mjög afmarkaða greiðslu úr almannatryggingum. Þessi heimilisuppbót er eingöngu til þeirra sem njóta tekjutryggingar eða eiga rétt á tekjutryggingu og búa algjörlega einir og án aðstoðar annarra. Var það eitt af þeim efnum sem um var samið við aðila vinnumarkaðarins og þá auðvitað sérstaklega við verkalýðshreyfinguna, að þetta yrði gert með þessum hætti.

Hins vegar hefur það komið í ljós, eftir að auglýst var eftir umsóknum samkv. þessum nýju lögum, að margir hafa sótt og það er mjög mikið um það að fólk sækir um þessa heimilisuppbót sem ekki á rétt á henni. Þess vegna taldi tryggingaráð og heilbrrn. rétt að flýta útgáfu þessarar reglugerðar. En ég get til upplýsingar skýrt frá því, að þegar hafa verið úrskurðaðar um 650 umsóknir um þessa heimilisuppbót, en annað eins liggur fyrir af umsóknum sem ekki hefur verið úrskurðað um enn þá og ekkert verið gert undanfarið, vegna þess að velflest starfsfólk Tryggingastofnunar ríkisins er í verkfalli, en verður vonandi, þegar því er lokið, tekið til og úrskurðað um þær umsóknir sem fyrir liggja.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri, en legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.