14.12.1977
Efri deild: 26. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (843)
Umræður utan dagskrár
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Þær eru merkilegar og umfangsmiklar, þessar umr. utan dagskrár hér í Ed. um óréttmætan fréttaflutning um verðlagningu landbúnaðarvöru, og menn hafa komið mjög víða við. Ástæðan til þess, að þetta mál var hafið hér, var sennilega sú, eins og hefur komið fram hjá allmörgum ræðumönnum, að fréttamaður lét skoðun sína í ljós óþarflega skýrt að mati margra manna. Vel kann það að vera, að hann hafi hneigst til þess að meta hollustu hinna ýmsu afurðaflokka landbúnaðarvara misjafnlega og látið í það skína, að ekki væri skynsamlegt að verðleggja svo að neytendur mundu auka óþarflega neyslu á t.d. smjöri. En þetta er matsatriði og einstaklingsbundið.
Undirrótin að þessari þróun hér á Íslandi og viðar í heiminum, vaxandi tíðni í hjartabilun eða hjartasjúkdómum, er sennilega sú, eins og fram hefur komið, að menn reyna lítið á sig nema varla að ganga örstutta leið á milli húsa. Þar er líklega fundin aðalorsökin og ekki bundin neinni neysluvenju, heldur áreynsluleysi hins tæknivædda þjóðfélags. Hitt er þó staðreynd, sem læknarnir munn geta staðfest, að þegar maður hefur á annað borð fengið hjartasjúkdóm, þó með mismunandi hætti sé, þá sé honum í öllum tilfellum ráðlagt að borða ekki feiti úr landbúnaðarvörum, hvorki smjör né rjóma né sykur. Hvers vegna er það gert? Þar er sennilega vegna þess að sannað þykir, a.m.k. af líkum af tíðni þessa sjúkdóms, að þessar fæðutegundir séu ekki æskilegar, a.m.k. ekki eflir að menn hafa kennt hjartasjúkdóms.
Ég get vel tekið undir það sjónarmið, að fréttamaður hafi flíkað sinni einkaskoðun þannig að meira en góðu hófi gegndi. En þetta er ekkert nýtt, þetta er alls ekki nýtt. Ég veit ekki hvað margir hv. þm. muna það — það hefur hæði komið fram í sjónvarpi og útvarpi — að þessir ágætu menn, sem fiska nú grásleppu hér hringinn í kringum landið þ. e. bæði verkamenn, bændur og annarra stétta menn, jafnvel alþm., þeir eru sakaðir um það að henda þúsundum tonna af verðmæti í sjóinn, jafnvel af vísindamönnum. Þetta hefur komið fram í fréttaflutningi aftur og aftur. En hvað er hægt að gera við grásleppuna eftir að búið er að hirða hana? Bókstaflega ekki neitt nema salta lítils háttar, örlítinn hluta — og það eru helst Sunnlendingar sem hafa vanist á það, eldri kynslóðin, að borða hana — að öðru leyti er fiskurinn mest vatn og ekkert hægt að nýta hann. Samt sem áður leyfa fréttamenn sér að segja, að hent sé gífurlegum verðmætum í sjóinn. Það er hægt að ganga að þessum fréttaaukum, þar sem þessir menn eru sakaðir um að henda milljónaverðmætum í sjóinn. En þeir þögðu um það á sama tíma, þegar þeir eru skattlagðir fyrir ríkissjóð um 300 millj. á s.l. 5 árum og flytja út fyrir gjaldeyri á þriðja milljarð. Ég veit ekki hvað svona fréttaflutningur er, ef þetta er ekki geggjuð vitleysa. Og á sama tíma segja þeir frá í sömu stofnun, Ríkisútvarpinu, að menn hendi eða sinni ekki að hirða loðnuhrogn sem nemi jafnvel milljörðum að verðmæti, og reikna út af einhverri prósentu eins og best getur verið í eina viku eða 10 daga, — það séu þúsundir og aftur þúsundir tonna, sem nemi milljörðum og milljörðum. Þetta er auðvitað svo vitlaus fréttamennska. að það tekur ekki nokkru tali. En ef ekki koma hæfir fréttamenn inn í þessa stofnun, þá verðum við að ráða bót á því. Það gildir alveg sama um fréttaflutning af landbúnaðinum. Þessir menn eru oft að fjalla um hluti sem þeir hafa ekki hundsvit á, það liggur alveg ljóst fyrir, og draga ályktanir samkv. því.
Vitanlega er það rétt, að við getum gagnrýnt það, bæði hér á Alþ. og víða annars staðar, að fréttamaður leggi skoðun sína með máli og túlki einkasjónarmið sitt. Það er ekki hans sem fréttamanns. Hann getur gert það sem borgari, það er honum algerlega frjálst eins og hverjum öðrum þegn á Íslandi, og hann getur skrifað um það grein og rætt um það með öðrum hætti. En sem fréttamaður verður hann að gæta þeirrar skyldu sinnar að segja hlutlaust og rétt frá. það er hans verksvið sem fréttamanns og ekki annað. Og ég mótmæli öllum óhróðri, hvort sem hann er um bændastéttina eða einhvern annan starfshóp í landinu. Slíkt er ekki í verkahring fréttamanna, ekki undir neinum kringumstæðum, svo að það er ósköp eðlilegt að menn, sem eru hér á Alþ. og eru bændur, uni ekki slíku. Það er ósköp eðlilegt að þeir risi upp og geri aths. við slíkan fréttaflutning. En það getur vel verið að bæði fréttamanninum, sem gerði þetta, og mörgum öðrum sé nokkur vorkunn, þegar verðlagningin tekur þessa stefnu. Og þó að nokkrar skýringar hafi komið fram á því eftir á, hvers vegna þetta var gert. þá kann mönnum einnig að vera nokkur vorkunn, en þeir fóru út af því sviði sem fréttamennska í að vera á.
Þetta er viðkvæmt mál og erfitt mál. Kannske er stofnunin svo vanbúin, að hún geti ekki haft sérfræðinga, sem þyrftu sennilega að vera þarna á vissum sviðum, sérfræðinga eða þjálfaða menn með sérstaka þekkingu á landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði t.d. eða verslun, sem tækju þá að sér sérstaka fréttaþætti og skýringar þar sem kæmu fram mismunandi skoðanir, þegar svona atvik eiga sér stað. E.t.v. hefur fréttamaðurinn fundið að almenningur er orðinn þreyttur á sífelldum tilkynningum um hækkun á landbúnaðatvörum. Þetta kemur fram alls staðar í heiminum og við sjáum það alls staðar að því er mótmælt á báða vegu, neytendur mótmæla hækkun og bændur. mótmæla því, að þeir fái ekki nægilega mikið, Þetta er gamalt og gróið vandamál og verður hér áfram, því að sannarlega hefur það komið fram núna undanfarið að bændur una illa sínum hag. Ég vil segja að þeir gagnrýna harðlega með þeim ályktunum. sem þeir hafa samþykkt undanfarið. ríkjandi landbúnaðarstefnu um árabil, og hæstv. landbrh. fær sinn skammt af þeirri gagnrýni, jafnvel líka frá sínum flokksmönnum, Það er ómögulegt annað, miðað við þær ályktanir sem bændur semja — það eru ekki eintómir andstæðingar hæstv. ráðh.
þó að gagnrýni bænda beinist líka að Alþ. og ýmsum öðrum, þá finna þeir að margt má betur fara. Hins vegar er með svona víðfeðman atvinnuveg eins og landbúnaðinn, að eðlilegt er að menn greini á um leiðir til þess að ná sem bestum árangri, og það er vaxandi spurning um það, hvort rétt sé að steypa þessu öllu saman eins og gert hefur verið undanfarin ár og hafa þetta í einum potti. það er orðin svo mikil sundurgreining í þessum atvinnuvegi, að það er eðlilegt að a.m.k, yngri menn spyrji, hvort þetta sé rétt, þó það hafi verið rétt einu sinni. Ég held að ég hafi tekið rétt eftir því í samþykkt bændafundar nú fyrir skömmu — hann var haldinn í Húnavatnssýslu og stóð í 81/2 tíma, — að bændur undirstrikuðu einmitt atriði sem ég ræddi á Alþ. fyrir nokkrum dögum. Ég spurði: Hvernig á ungur bóndi að hefja búskap í dag? Ég bað forsvarsmenn bænda að svara þessu. Enginn gerði það: En nú er hæstv. ráðh, hér í þessum umr., og sannarlega væri gaman að heyra það af hans vörum, hvernig 25 ára gamall nýgiftur bóndi á að hefja búskap á Íslandi í dag, hvaða möguleika hann hefur til þess, þarf að kaupa jörð, bústofn og sæmileg húsakynni, — segjum bara að þetta sé meðalbú, segjum bara vísitölubú. Við skulum bara segja samviskusamlega frá því, Ég er ekki að gagnrýna einn eða neinn með því að varpa fram þessari spurningu, en ég vil fá að vita möguleika bóndans til þess að hefja slíkan búskap.
Við vitum hvað maður þarf að leggja fram og hvað hann fær í lán ef hann ætlar að kaupa sér bát, — ef hann ætlar að kaupa 100 tonna bát og hefja línuútgerð. Við vitum líka, ef hann ætlar að stofna bifreiðaverkstæði og kaupa þau tæki sem nauðsynleg eru, hvað það kostar, og svo fram eftir götunum. Það má því vel upplýsa í þessum umr. hvernig ungur maður eða ung hjón fara að því að hefja búskap og þurfa að kaupa allt til alls. Ef hann á enga möguleika á því að hefja búskap við ríkjandi aðstæður, þá er eitthvað að, og við verðum að gera okkur grein fyrir því, hvernig má laga það og hvernig við mætum ósk hans.
Ég tek ekki undir það að ryðja eigi bændastéttinni út fyrir verksvið hennar og fækka henni. Það er miklu fremur að við reynum að gera þeim mönnum, sem nú eru í bændastétt, lífið bærilegt, en stuðlum ekki að óeðlilegri aukningu, — ég undirstrika það: ekki óeðlilegri aukningu. Einhver fjölgun hlýtur að eiga sér stað eða verkaskipting. þannig að fleiri menn geti lifað af landbúnaði. En það má sjálfsagt með ríkum segja að þessi 4000–5000 býli í dag séu æskileg tala til þess að brauðfæða þjóðina, ef við köllum það svo, nú næstu ár. En landið fer ekki frá okkur, við þurfum ekkert að kviða því, Það þykir nú rétt að setja fiskveiðibann í 2–3 vikur og gera fólk gersamlega atvinnulaust á heilum landsvæðum til þess að tryggja eðlilega nýtingu þorskstofnsins, Finnst mönnum rétt, ef maður vill kauna býli norður á Sléttu og setja upp t.d. 1000 kinda bú, að hann geri frjálst ef hann hefur nóga peninga, svo að hann ryðji öðrum til hliðar sem hafa búið í áratugi og hafa ekki haft nægilegt, eins og fram hefur komið, eða þarf hann að leita umsagnar hæstv. landbrh. eða í einhverja stofnun? Ef þessi maður hefur næga peninga og samkv. atvinnufrelsi á Íslandi getur hann keypt býli og sett upp 1000 kinda bú þegar í stað, jafnvel á morgun. Á kannske að hamla á móti því og segja: Það eru þegar fyrir nægilega margar kindur í landinu og nógu margir bændur og á þetta svið ferð þú ekki, góði minn? Þú getur farið eitthvað annað. — Menn fá ekki einu sinni að kaupa loðnuskip í dag frjálst, þó að það sé uppgripaafli og haldi þjóðarbúinu gangandi. Það eru svona strangar reglur um það. Þó er það í orðinu frjálst, en í reynd alls ekki. Til þess þyrfti maður að hafa 500–600 millj. í reiðufé og geta boðið öllu byrginn, þá væri ekki hægt að stöðva hann.
Það eru svo margvísleg vandamál, sem eru hér uppi, að það er alveg óhætt að taka eina kvöldstund, þó að nokkrar annir séu skyndilega rétt fyrir jólin, til að ræða þetta vandamál almennt.
Ég er alveg sammála hæstv. ráðh., að við eigum að hafa góðan landbúnað, og ég leyfði mér nú á sínum tíma, — hef sums staðar fengið bágt fyrir, en ég fann að það var rangt að hella niður mjólk, — að flytja lítið frv. sem fól það í sér, að þó verkfall væri á fjórða sólarhring skyldi mjólk bjargað frá því að vera hent, af því að við getum ekki, Íslendingar verið slíkir að við eyðileggjum matvæli, það er ekki sæmandi. Ég er sammála hæstv, ráðh. í því, að við verðum að leggja okkar skerf fram til að útrýma hungrinu í heiminum, því að nú er það svo ægilegt að á aðeins einni viku — ég bið hv. þm. að taka eftir því — deyja jafnmargir úr hungri og Íslendingar eru, — á einni einustu viku. Það væri hægt að hafa langt mál um það ástand sérstaklega og hvað við raunverulega sýnum hinum hungraða heimi litla nærgætni. Kannske höfum við sjálfir verið svo uppteknir við að skara eld að eigin köku að við gleymum því, að á Íslandi var hungur, jafnvel fram yfir síðustu aldamót, á mörgum býlum, bæði til sjávar og sveita. Vonandi kemur það aldrei aftur.
En svo að ég komi aftur að kjarna þessa máls. Neysluvenjur Íslendinga eru orðnar æðiundarlegar. Tökum t.d. þá venju að háma í sig steiktar kartöflur kvölds og morgna og borga fyrir of fjár. (Gripið fram í: Og poppkorn.) Og poppkorn og kók, Þetta er stóralvarlegt mál. (Gripið fram i.) Ja, þetta eru landbúnaðarvörur, svo að það má kannske varla gagnrýna neysluna. (Gripið fram í: Ekki kókið.) Ja, ætli kókið sé nú ekki fengið að hluta til frá landbúnaði og svo er í því vatn eins og mjólkinni og hún er nú holl. blessuð mjólkin. Þó að hún sé 93–94% vatn, skilst mér, þá er hún holl og góð. En neysluvenjur okkar skapa okkur vandamál, og það er með ólíkindum hvað við getum liðið vitlausa þróun í þessu efni. Það er með ólíkindum. Og það er mikið áhyggjuefni ýmissa manna, að þetta skuli eiga sér stað á Íslandi, því að það er ekki aðeins að það komi fram í æðakerfi manna, þetta kemur fram í tönnum fullorðinna og barna. Tannskemmdir eru ægilegar út af þessum vitlausu neysluvenjum og margt, margt annað fylgir þessu. Börn þroskast ekki og menn hafa ekki eðlilega máltíð heima hjá sér út af svona vitleysu, og það mætti lengi upp telja, en ég vil ekki gera það hér.
Ég vil svo undirstrika að það var alveg réttmætt hjá hv. 6. þm. Norðurl. e. að gera aths. við þennan fréttaflutning, því að hann var í sjálfu sér rangur. Hins vegar má kannske skamma okkur alla hv, þm. fyrir að hafa tekið okkur bessaleyfi nú á þessum tíma árs að fara að ræða um þessi mál á breiðum grundvelli. En það er þá í þeim tilgangi að vekja athygli á því, að þetta er vandamál, og kannske er illa búið að fréttamönnum með starfsaðstöðu og starfsgreinaskiptingu, og þekking mætti vera meiri, Við þurfum að bæta úr þessu, svo að jafnframt því sem við gagnrýnum fréttamennina ættum við að veita þeim tækifæri til að afla sér glöggra upplýsinga, hafa lifandi umræðuþætti í útvarpinu um þetta, þar sem menn koma fram með mismunandi sjónarmið, og þá kann fréttamaður sem venjulegur borgari að koma með sínar persónulegu skoðanir á þessu máli.
Ég tel, þrátt fyrir víðfeðmi í þessum umr., að þær muni leiða af sér jákvæða afstöðu í fréttaflutningi og mati á verðlagningu landbúnaðarafurða. Við sjáum það og finnum, að þeir, sem taka ákvörðun um verð landbúnaðarafurða, eru að reyna að beina neyslu almennings inn á vissar brautir. Ég held að ég mótmæli því ekki með þessu. Hitt er alveg rétt, að þegar undanrennan er orðin svona vinsæl, þá er ósköp eðlilegt að menn vilji að það sé borgað a.m.k. eins og hún kostar. Það er lágmarkskurteisi að una því. Hins vegar er vandamál með smjörið, og fari það nú á útsölu freistast ég til þess að kaupa nokkur kíló og geyma, því að ég hafði íslenska máltíð í kvöld og borðaði harðfisk, hákarl og smjör — fullmikið af Smjöri kannske. Aðalatriðið er nú samt að hreyfa sig. Það er grundvallaratriði að menn nenni að hreyfa sig, bæði ganga, fara í sund og stunda aðra hreyfingu, því að til þess eru góðar aðstæður. Þá þyrftu menn ekki að vera svona kvíðnir fyrir hjartasjúkdómum, jafnvel þó að þeir drykkju mjólk kvölds og morgna og hefðu smásmjörsköku á rúgbrauðssneið.