14.12.1977
Efri deild: 26. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1237 í B-deild Alþingistíðinda. (845)
Umræður utan dagskrár
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Mig langaði aðeins til að leggja eina til tvær spurningar fyrir hæstv. ráðh.
Ég viðurkenni að það voru leiðandi spurningar. sem mennirnir lögðu fyrir sína viðmælendur, og það mun ekki vera viðeigandi. Hitt er svo annað mál, að mér finnst þetta vera mannlegt, þegar neysluvara hækkar allt í einu um 66%, að þá verði a.m.k. sérstök blæbrigði á röddinni þegar spurt er um, hvort þetta sé ekki óeðlilega mikil hækkun. En rétt mun það vera. þessir menn eiga að haga sér eins og getið var um hér áðan og óheppilegt að þeir skuli bregða út af því.
Ég get ekki komist hjá því að álíta, að eðlilegt sé að það sé orð á þessu haft, vegna þess að enda þótt erfitt kunni að vera að sanna beinlínis, að feit mjólk sé vafasöm fyrir framtíðarstarfsemi æða og hjarta, þá benda þó líkur að einhverju leyti til þess að svo sé. Nú er það svo að það eina, sem almenningur mun hafa búist við að gert yrði í stað þess að hækka undanrenna um 66%, var að hún yrði niðurgreidd á sama hátt og nýmjólkin og niðurgreiðslunni þá dreift á nýmjólk og undanrennu. Mig langar því til að leggja spurningu fyrir hæstv. ráðh.: Hvað vegur á annað hundrað prósent aukning á undanrennusölu mikið á móti 0.3% samdrætti í nýmjólkurneyslu. ég meina: hver verður heildarneyslan á mjólk, þegar þetta tvennt kemur saman? Eitt er víst, mjólk er hjá okkur alveg óþarflega feit. og þessi prósenta, sem mjólkin hefur hjá okkur, byggist að einhverju leyti á því, að það er tekið tillit til hennar í verðlagningu. Þetta er óheppilegt eins og málum er nú komið, og eins og ég sagði hér áður, þá mundi þetta mál líklega aldrei hafa komið upp ef Samsalan hefði tekið tillit til þeirra óska að framleiða hér fituminni mjólk. (Gripið fram í: En hvað um að blanda nýmjólk til helminga með vatni?) Nei, með undanrennu, og það er alveg ágætt og mjög gott. Ég er mjög mikill mjólkurneyslumaður og hef verið alla tíð, eins og ég ber utan á mér, en ég er búinn að komast að þeirri niðurstöðu, að blanda undanrennu og nýmjólkur sé mjög góð vara og mjög góð til drykkjar á meðan við fáum ekki mjólk með verulega minna fituinnihaldi. (Gripið fram í: En af hverju ekki vatni?) Það er ekki eins bragðgott. Þetta eru atriði, sem ég held að væru vel þess virði að athuga, t.d. að bændur sæktust ekki eftir því að gefa þann fóðurbæti, sem gefur fituríkasta mjólk, heldur að auka mjólkurmagnið á kostnað fitunnar. Þetta mundi auðvelda að leysa þetta spursmál sem við erum að ræða um.
En ég vona að á það, sem sagt er hér verði ekki litið sem andúð á bændum. Slíkt er fásinna. Ég held að engum hér innan þessa salar detti í hug að taka undir þann málflutning sem hefur verið hér gegn bændastétt, það er alveg út í loftið. En hitt er svo annað mál, að það hlýtur að verða okkar framtíðarmarkmið að reyna, ef við höfum hugmynd um að breyting á neysluvenjum geti gefið okkur meiri hollustu og meiri heilbrigði, þá hljótum við að reyna að taka eitthvert tillit til þess. Annað væri algerlega út í hött.
Varðandi það sem kollega minn, Sverrir Bergmann, sagði, þá var ég nú eiginlega hissa á því, hvað lítið bar á milli hjá okkur, því að það er nú svo með þessi mál, að þau eru heldur erfið viðureignar og lítið hefur veríð sannað. Ég lagði megináherslu á offituna og í því sambandi á æðakölkunina, en hjá honum kom það aftur á móti í þriðja sæti. Það var einfaldlega vegna þess, að ég var ekkert að hafa orð á því, að reykingar væru orsök, vegna þess að við vorum ekki að tala um reykingar. En hitt er svo annað máli að offitan hefur þá sérstöðu að það er lengst búið að rannsaka hana af þessum þáttum og það hafa verið gerðar rannsóknir á milljónum manna á þann hátt að mæld var lífslengd, og það er ekki nokkur vafi á því, að það er sannað mál að offitan styttir lífið og gjarnan fer saman offita og hár blóðþrýstingur með þar af leiðandi æðakölkun. Þetta renndi nokkrum stoðum undir það sem við vorum að tala um hér, og ég held að hægt sé að fullyrða að þarna er orsakasamband.
Það var líka mjög fróðlegt að hv. hm. Stefán Jónsson skyldi upplýsa okkur um það, hvernig haga bæri fæðu á norðurslóðum, og þetta kemur einmitt heim og saman við það sem við höfum verið að tala um. Kyrrseturnar og áreynsluleysið, 25 stiga húshitinn eða 23–24 stiga húshitinn hefur það í för með sér, að við verðum að neyta annarrar fæðu en ef við værum norður á hjara veraldar í kulda, miðað við mikla brennslu og mikla áreynslu.
Þetta er nú það sem ég vildi sagt hafa. Varðandi það sem Ólafur Þórðarson sagði um niðurgreiðslu á fiski, þar sem ég hafði borið saman verðlag á fiski og kjöti, þá held ég að við hættum okkur ekki út á þá braut að fara að leita svo langt aftur, vegna þess að í fyrsta lagi er þetta nú liðin tíð, sjóðatímabilið er liðið. (Gripið fram í: Það er enn þá að hálfu leyti.) Já, ég held að það komi nú varla niður á þessu. En annað mál er það, að ef við ættum að fara út í slíkt þá yrðum við líka að geta þess, að landbúnaðarvörurnar eru framleiddar af lægst launuðu stétt landsins, sem að sjálfsögðu hefur áhrif í þessa átt.