19.10.1977
Efri deild: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (87)
20. mál, innlend lyfjaframleiðsla
Flm. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Ég hef ásamt þrem öðrum þm. Alþb. endurflutt till. til þál. um eflingu innlendrar lyfjaframleiðslu. Tillgr. er svo hljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta undirbúa frv. á þá lund, að innlend lyfjaframleiðsla njóti forgangs umfram innflutt lyf, sé hún fyllilega samkeppnisfær.
Að því leyti sem innlend lyf eru talin jafngóð erlendum, verði læknum lögð viss skylda á herðar að nýta þau umfram hin erlendu lyf.
Jafnframt verði stuðlað að fjölbreyttari lyfjaframleiðslu en nú er.“
Okkur þótti eðlilegt að endurflytja þessa till., því að hún fékk ekki athugun í n. á síðasta þingi, en í grg, hennar sagði, að aðalástæða hennar væri í raun og veru miklar umr. um verðmismun erlendra og innlendra lyfja sem hefðu vakið athygli og ýmsar spurningar, og væri ljóst að svör fengjust ekki við þessu nema með nákvæmri athugun færustu aðila og sú athugun þyrfti að fara fram og svo ráðstafanir í kjölfar hennar.
Það hlýtur auðvitað að vera æskilegast að lyf séu sem ódýrust, og þegar margfaldur verðmismunur hefur komið fram eins og átt hefur sér stað um sumar lyfjategundir, þá er von að krafist sé skýringa og aðgerða. Ég á tæpast von á því, að um miklar breytingar á þessum málum verði að ræða eða einhverja gerbreytingu, hvað þá nýskipan. Spurning er þá um, hvort endurskoðun verður einhver eða standi jafnvel yfir á lögum um lyfjaframleiðslu almennt. En engu að síður töldum við rétt að hreyfa till. aftur í óbreyttri mynd eins og hún var lögð fram á síðasta þingi.
Klögumálin gengu á víxl varðandi þennan verðmismun sem ég rakti þarna sem aðalkveikjuna að þessum tillöguflutningi, og þar bar mjög á milli. Því töldum við að það þyrfti að athuga þetta sem allra best og fá á þessu sem hlutlægasta athugun. Við gerðum okkur ljóst og á það henti ég á síðasta þingi, að mikill vandi fylgdi þessari framkvæmd, ef hún ætti að verða svo sem segir í þessari till., og einnig var á það bent glögglega við umr. á síðasta þingi af hv. þm. Oddi Ólafssyni, sem gerþekkir þessi mál, hver vandi væri hér á ferðum. Við drögum ekkert úr því, að það kann að vera spurning hversu mjög er hægt að skylda lækna til þess sem hér er lagt til. Mat þeirra hlýtur ævinlega að vera mikilvægt. En hins vegar er það, að í reglugerð hlýtur að vera unnt að setja ákvæði sem legði þeim vissar skyldur á herðar. Það eru margs konar lög og reglugerðir til sem setja hinum ýmsu starfsstéttum í landinu reglur sem þeim er skylt að hlíta.
Engu að síður er okkur það ljóst, flm., að hér er um viðkvæmasta þáttinn að ræða. En ég trúi því, að læknar skilji þetta vel og vilji áreiðanlega komast hér að skynsamlegri niðurstöðu. Það hlýtur að vera nauðsyn, svo mjög sem hér ber á milli varðandi lyfjaverð.
Ég sagði að umr. hefðu orðið kveikjan að þessari till. En alveg eins kom hitt til greina, sem ég rakti í framsögu í fyrra, þar sem var saga sjúklings úr mínu heimahéraði sem hafði lengi notað rándýrt erlent lyf við sjúkdómi, þar til nýr læknir breytti til, gaf lyfseðil út á innlent lyf sem bar í hvívetna, að því er ég best veit, sama árangur. Þetta er áreiðanlega aðeins eitt dæmi af miklum fjölda, en varð í raun kveikjan að því, að ég fór að hugsa frekar um þessi mál, ásamt þeim umr. sem um þetta urðu.
Við vitnuðum í grg. okkar í tvö viðamikil frv. sem lögð voru fram í tíð fyrrv. heilbrrh., Magnúsar Kjartanssonar. Ég skal ekki gera annað hér en að rifja upp meginmarkmið þeirra frv.
Annað þeirra var um Lyfjastofnun ríkisins. Hlutverk hennar átti m.a. að vera þetta, með leyfi hæstv. forseta:
„1. Flytja inn hráefni og umbúðir til lyfjagerðar, sérlyf, eiturefni og hættuleg efni, hjúkrunar- og sjúkragögn og aðrar skyldar vörur, sem lyfjabúðir og sjúkrahús samkv. eðli slíkra stofnana selja eða nota.
2. Selja í heildsölu vörur, sem taldar eru í lið 1, og auk þess innlenda framleiðslu sömu vöru.
3. Annast útflutning á lyfjum.
4. Vinna með stöðugum athugunum gegn hvers konar óhóflegri notkun lyfja og stuðla að hagsýni í lyfjanotkun meðal almennings og á sjúkrahúsum.
5. Safna og vinna úr upplýsingum varðandi lyfjanotkun í samráði við heilbrrn.
6. Stuðla með fjárframlögum í mennta- og rannsóknarskyni að framförum í lyfjafræði, lyfjaframleiðslu og skyldum greinum.“
Hér var um viðamikið frv. að ræða og vandasamt um leið, og þetta frv. var greinilega viðkvæmt. Hinir færustu menn höfðu samið það, en mjög vorn skiptar skoðanir um það og það náði ekki afgreiðslu, man ég eftir, frá þessari hv. d. Um það urðu miklar deilur.
Hitt frv. var um lyfjaframleiðslu og var varðandi sérstakt fyrirtæki þar sem átti að endurskipuleggja lyfjaverslunina með því að tengja hana við heilbrigðisþjónustuna og setja hana undir félagslega stjórn. Um það frv. varð miklu meiri samstaða. En tilgangur þess fyrirtækis, sem þarna átti að stofna, átti að vera annars vegar að starfrækja meiri háttar lyfjaframleiðslu samkv. löggiltri lyfjaskrá og löggiltum lyfsalasöfnum og lyfjaforskriftum og í öðru lagi að stunda tilraunir og rannsóknir með það fyrir augum að framleiða sérlyf.
Einn kaflinn í þessu frv. fjallaði alveg sérstaklega um verðlagningu á lyfjaframleiðslu, þar sem sagði að það skyldi ávallt vera kostnaðarverð með hæfilegu tilliti til rannsókna- og þróunarkostnaðar. Í aths. sagði einmitt, að það hefðu farið fram nokkrar undirbúningsviðræður við fyrirtækið Pharmaco hf. um hugsanlegt lyfjaframleiðslufyrirtæki sem væri þó að meiri hluta til á eigu ríkisins. Þetta frv. var afgr. frá okkur í Ed. með einhverjum breytingum. Það kom fram mikill vilji margra til að koma þessu frv. fram, en mikla andstöðu varð ég ekki var við, eins og varðandi hið fyrrnefnda frv.
Ég varð þess áskynja þá sem formaður heilbr: og trn. þessarar d. í viðtölum við sérfróða aðila, að þörf var á hvoru tveggja, og því mætti segja nú, að það væri nær að flytja a.m.k. það frv., sem meiri samstaða var um, inn í þingið á ný og láta reyna á það eða a.m.k. viss atriði þess. Vel gæti af því orðið, að þetta frv. yrði endurflutt á þessu þingi í einhverri mynd, þó að síðar yrði. Margar breytingar á núverandi löggjöf eru einnig hugsanlegar. Ég vitnaði í fyrra aðeins í eitt atriði, sem vísir menn höfðu þá bent mér á, en það var í sambandi við lyfjaskráningu hér, hún væri þyngri í vöfum, tæki lengri tíma en t.d. á Norðurlöndunum, í nágrannalöndum okkar. Hér gilti 20 ára regla um skráningartíma, en allt niður í 5 ár í sumum okkar nágrannalöndum. Og mér var sagt að þessi regla stæði m.a. í vegi fyrir því, að hægt væri að knýja niður verð á lyfjum. Hins vegar væri auðvitað hægt að neita um frekari hækkanir á þeim. Nú er ég ekki nógu vel að mér til þess að vita hvort þetta er rétt, en þetta tjáðu mér vísir menn.
Ég benti einnig á nokkrar staðreyndir sem ég vil vísa aftur til stuttlega, annars vegar um hlutföll erlendra og innlendra lyfja og hins vegar um mismun á lyfjaverði. Þar var miðað í sambandi við lyfjanotkun hér annars vegar við erlend lyf og hins vegar þau innlendu, og þar var vitnað í skýrslur um það, að magnið hefði haldist mjög svipað frá árinu 1970 til 1975, þ.e.a.s. um 33% bæði árin, en hvað verðmæti snertir hefði þróunin orðið sú, að 1970 voru um 28% af lyfjunum innlend lyfjaframleiðsla, en á árinu 1975 aftur um 23%, hafði sem sagt farið niður um 5%. En ég fékk þá skýringu á því, að þar væri sumpart um að kenna sífellt dýrari erlendum lyfjum sem kæmu á markaðinn, en ekki beinlínis því, að innlend lyfjaframleiðsla hefði dregist svo mjög saman. Þetta var að vísu samanburður milli áranna 1970 og 1975, en mér er tjáð að 1976 hafi þessi hlutföll lítið breyst, en þó heldur í óhag innlendu lyfjunum hvað verðmæti snertir.
Dæmi um verðmismun tek ég einnig frá því í fyrra, enda mun sá verðmismunur enn þá marktækur að öllu leyti. Þar nefndi ég dæmi um þennan verðmismun innlendra og erlendra lyfja, annars vegar um róandi lyf, sem væru mjög mikið notuð hér, en sá skammtur, sem þar væri miðað við, kostaði 335 kr, af hinu innlenda lyfi, en af hinu erlenda, sem hefði nákvæmlega sams konar verkun að því er mér var sagt, kostaði hann í öðru tilfellinu 2193 kr., en í hinu tilfellinu 2190 kr. Ég nefndi hins vegar dæmi um glákulyf, innlent lyf sem kostar 695 kr., danskt lyf sem kostar 1194 kr., sami skammtur, og svo bandarískt, sem kostaði 2296 kr. sami skammtur.
Hér er um gífurlegan mismun að ræða, og vafalaust eru hér tekin grófustu dæmin, sem ég hef beint frá þeim aðila sem hér þekkir gerst til. Þessi verðmismunur fær auðvitað engan veginn staðist, vegna þess að hér er að áliti færra manna um nákvæmlega jafnárangursrík lyf að ræða. Í þessum tilfellum hlýtur að vera eðlilegt og sjálfsagt að innlend lyf njóti viss forgangs umfram hin innfluttu, og þar koma auðvitað læknarnir fyrst og fremst við sögu, og þess vegna erum við með þennan síðari hluta okkar tillögu.
Ég benti á það í fyrra, að hér væru ýmsir erfiðleikar á ferð varðandi innlendu lyfjaframleiðsluna hvað snertir einkaleyfi á þessum lyfjum mörgum, hráefni væri ekki auðfengið til þeirra o.s.frv., en um meginhluta þessara lyfja gilti þó það, að við gætum og við ættum að framleiða þau sem allra mest. Og þá starfsemi, sem snertir innlendu lyfjaframleiðsluna, þyrfti því sannarlega að styrkja og að því beinist einmitt till. okkar.
Ég vitnaði þá í það, að ég hefði heyrt hinn ágætasta lækni hafa þau orð hér um, að við ættum jafnvel að innleiða bann við innflutningi rándýrra lyfja, ef jafngóð lyf væru fyrir hendi hér. Við viljum auðvitað ekki ganga svo langt, en þó kann það að koma til álita. Ég virði a.m.k. orð þessa ágæta manns mikils, en hann viðhafði þau einmitt í því sambandi, að það þyrfti þá ekki að ganga eins hart fram í því að leggja einhverja vissa skyldu á herðar læknunum. En auðvitað verður þá að vera fullkomlega úr því skorið — og á það leggjum við og lögðum áherslu — fullkomlega úr því skorið, að hér sé um jafngóð og jafnárangursrík lyf að ræða, og það er alls ekki okkar meining að hér verði flanað að neinu.
Efling þessarar framleiðslu, að svo miklu leyti sem við fáum stjórnað og ráðið við, er ekkert áhorfsmál. Það er nýlokið miklu áróðursári og þörfu fyrir innlendan iðnað, og nú þurfa verkin sem viðast að tala. Hér er að einum þætti vikið sem hefur mikla þýðingu fyrir þjóðarheildina og snertir hvert mannsbarn. Það, hve verðsamanburðurinn er hagstæður innlendri framleiðslu, sem ekki er algengt, jafngóðri að talið er, ætti einmitt að ýta hér mjög undir. Ef endurskoðun er í gangi á lyfjaframleiðslu og fyrirkomulagi hennar og skipulagi í heild, þá hljóta þessi atriði að koma þar með, og þá tel ég kost að þau hafi verið reifuð hér og fengið sína eðlilegu meðferð í nefnd.
Við flm. drögum sem sagt enga dul á vanda og viðkvæmni sumra þátta þessa máls, einkum þess er lýtur að læknunum og einnig um þá staðhæfingu að lyfin séu jafngóð talin. Þar kann að vera að um vandasöm mörk kunni að vera að ræða, ég er ekki nægilega fróður til að vita það. En ekki er unnt að láta sem ekkert sé þegar verðmismunur er svo gífurlega mikill og fullyrðingar lærðustu manna hníga í þá átt, að um jafngóða vöru og árangursríka til lækninga sé að ræða. Að þessu þarf sem sagt að huga, og að því lýtur till. okkar. Við treystum því, að hér verði hægt að finna einhvern þann veg færan sem losar okkur við verstu agnúa skipulags og framkvæmdar í dag. Því er till. þessi flutt, sem ég vil svo leggja til, herra forseti, að verði vísað að lokinni þessari umr. til hv. heilbr: og trn.