14.12.1977
Neðri deild: 29. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (871)
129. mál, fjáröflun til vegagerðar
Karvel Pálmason:
Hæstv. forseti. Ég hygg að almennt geti menn verið sammála um það, að ekki er vanþörf á því að afla fé til Vegasjóðs til að bæta úr því ófremdarástandi sem skapast hefur á undanförnum þremur árum í vegagerð. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að stórkostlegur niðurskurður að raungildi hefur átt sér stað í vegaframkvæmdum á undanförnum árum.
Ég held að um þetta atriði geti menn almennt verið sammála, að ekkert sé óeðlilegt við það eða óhugsandi að til geti komið einhver hækkun á bensíngjaldi til þessara framkvæmda. En eins og hér hefur komið fram er það auðvitað út í hött að framkvæma slíkar hækkanir eða grundvalla þær með hliðsjón af því, að þar með sé verið að skapa ríkissjóði stóran tekjuhlut til þess að brúa bil á fjárl., eins og nú stendur. Það er auðvitað lágmarkskrafa, að séu auknar álögur á bifreiðaeigendur vegna bensínnotkunar renni þær auknu tekjur til framkvæmda í vegagerð. því það veitir sannarlega ekki af því víða a.m.k. úti á landsbyggðinni að auka vegagerð vegna þess hver þróun mála hefur orðið, ekki hvað síst á undanförnum þremur árum.
Ég held ég hafi tekið rétt eftir því í fréttum útvarpsins í morgun, að það var verið að skýra frá 7.50 kr. hækkun á lítra af bensíni. Mér virðist að hér gæti a.m.k. misskilnings að því er varðar framsetningu á þessu, hvort sem það er nú fram sett á þann hátt viljandi eður ei. Hér er í raun og veru um 13.22 kr. hækkun að ræða, en ekki 7.50 kr. Í fjárlagafrv. var boðuð 15 kr. hækkun á bensínlítra, ef ég man rétt, en með þessu frv. hefur sú upphæð verið lækkuð nokkuð.
Varðandi það, sem kom fram hjá hv. 2. þm. Austurl. um hugsanlega frekari hækkun á þessu gjaldi síðari hluta næsta árs, verður auðvitað að skilja það svo, sem segir í aths. frv. varðandi 1. gr., að við því megi fyllilega búast. Hins vegar minnti mig það, — ég kom því ekki við að finna það í fjárlagafrv. eða aths. þess, en mig minnir, það kemur væntanlega í ljós hvort rétt er, — að í fjárlagafrv. hafi verið svo að orði komist, að ekki yrði um frekari hækkanir á bensíngjaldi að ræða á næsta ári heldur en í frv. sé gert ráð fyrir. Hvort þetta þýðir það, að hæstv. ríkisstj. ætli sér núna að taka 12.22 kr. og síðan mismuninn á því, sem fjárlagafrv. boðar, skal ég ekki um segja. Ég man ekki betur en að í fjárlagafrv. eða grg. þess hafi þetta verið orðað þannig, að ekki væri gert ráð fyrir frekari hækkun á bensíngjaldi á næsta ári. En á aths. þessa frv. má vissulega skilja að gera megi ráð fyrir frekari hækkun á þessum lið.
Það kemur auðvitað í ljós í meðförum þessa máls í þinginu og að fengnum upplýsingum, hversu mikið ríkissjóður kemur til með að hirða af þessari hækkun. Ég fyrir mitt leyti vil a.m.k. taka það fram, að afstaða mín til þessa frv. fer mikið eftir því, hvernig að því verður staðið varðandi áframhaldið. Ég sé enga ástæðu til þess og sé ekki að það sé réttlætanlegt að neinu leyti, að hækkun sem þessi sé notuð til þess að útvega ríkissjóði svo og svo miklar tekjur vegna hækkunarinnar. Það, sem hér kemur inn, á að fara að mínu viti að langsamlega mestu leyti a.m.k. til framkvæmda í vegagerð.