14.12.1977
Neðri deild: 29. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (888)

126. mál, almannatryggingar

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því sem kom fram hjá hæstv. ráðh.

Ég sagði áðan, að því hefði verið haldið fram og að ég teldi með réttu, að það væri hægt að spara verulega fjármuni í rekstri Tryggingastofnunar ríkisins. Ég veit ekki annað en margir séu mér sammála um þessa skoðun. Svo kemur hæstv. ráðh. og talar í öðrum dúr, segir að ég hafi tekið stórt upp í mig og talað um að líklega væri hægt að spara 8 milljarða í rekstri Tryggingastofnunarinnar og trygginganna, það væri sem sagt hægt að spara allan þann kostnað, sem um væri að ræða í sambandi við tryggingarnar, ég hefði talað í þeim dúr. Slíkur málflutningur skýrir sig náttúrulega sjálfur, og er leitt til þess að vita, að hæstv. heilbr: og trmrh. skuli alltaf grípa til slíkra útúrsnúninga þegar um það er að ræða, að aðrir eru á annarri skoðun en hæstv. ráðh. Ég held fast við það og tel það raunar engan vafa, að hægt er að spara í rekstri Tryggingastofnunar ríkisins eins og rekstri fjöldamargra annarra opinberra fyrirtækja.

Þá vildi hæstv. ráðh. ekki viðurkenna að það væri rétt, að þetta gjald, sem hér er um að ræða, kæmi hart niður á láglaunafólki. Það er alveg öruggt mál, að stór hópur láglaunafólks í landinu lendir í að greiða þetta sjúkratryggingagjald, og það tel ég að komi niður á þeim sem síst skyldi.

Hann sagði að ekki væri endalaust hægt að bæta útgjöldum á ríkissjóð, án þess að hann fengi tekjur í staðinn, og nefndi þar til nýgerða kjarasamninga opinberra starfsmanna. Eins og það eigi að vera rökin fyrir því, að brotin séu þau loforð sem gefin voru við gerð kjarasamninga á s.l. sumri! Rökin fyrir því, að þau loforð séu brotin og þau fyrirbeit svikin, eigi að vera þau, að opinberir starfsmenn fengu kauphækkun með nýgerðum kjarasamningum sínum. Ég geri ráð fyrir því, að hæstv. ráðh. allir, ekkert síður hæstv. heilbr.- og trmrh., hafi vitað um það, þegar ríkisstj. gaf loforðið við samningsgerðina á s.I. sumri við aðila hins almenna vinnumarkaðar, hæstv. ráðh. hafi vitað um það, að fyrir dyrum stóðu samningar við BSRB. Þeir hafa væntanlega gert sér grein fyrir því, að þar var um að ræða kröfur af hálfu opinberra starfsmanna um bætt launakjör, en ekki á hinn veginn. Ég hygg að hæstv. ráðh., þ. á m. hæstv. heilbr.- og trmrh., hljóti að hafa gert sér grein fyrir því, þannig að hér er ekki um neina röksemdafærslu að ræða sem réttlætir svik hæstv. ríkisstj. á loforðunum við samningsgerðina, — þau séu réttlætanleg vegna þess að opinberir starfsmenn fengu kauphækkun.

Svo sagði hæstv. ráðh.: Það er ekki alltaf hægt að bæta á atvinnureksturinn, atvinnureksturinn telur sig ekki of vel haldinn eða of sælan. — En það virðist vera skoðun hæstv. ríkisstj., að endalaust sé hægt að bæta á launafólk, það sé of sælt af því sem það hefur, jafnvel þeir lægst launuðu. Þar er endalaust hægt að bæta sköttum á að dómi hæstv. ríkisstj. og í þessu tilfelli ekki hvað síst að dómi hæstv. heilbr.- og trmrh. Það er ekki spurt um það, hvort launafólk telji sig of sælt eða ekki. Það er alltaf sótt á hin sömu hefðbundnu mið ef um skattaálögur er að ræða og tekna þarf að afla í ríkissjóð. Alltaf er byrjað á launafólki, og það hefur ekki sýnt sig hvað síst í tíð núv. hæstv. ríkisstj. Það er enginn vafi á því — ég ítreka það — að það mætti ná þessari upphæð, sem hér er um að ræða, sem nemur tekjunum af sjúkratryggingagjaldinu, með því að leggja örlitið prósentubrot á fyrirtæki í landinu, ég tala nú ekki um ef gerð væri gangskör að því að breyta hinu rangláta skattkerfi í landinu og framkvæmd þess svo að það næði til stórtekjumannanna og stóreignamannanna, þannig að þeir greiddu eitthvað í hinn sameiginlega sjóð sem þeir hafa látið vera að greiða í á undanförnum árum og áratugum. Kannske eru þeir svo illa haldnir að áliti hæstv. ríkisstj. og hæstv. heilbr: og trmrh., að þeir séu ekki til þess færir, þangað megi ekki sækja peninga. Það er engu líkara, eftir því sem hér er talað, en að þetta sé einmitt skoðun hæstv. ráðh. Raunar má segja, að hún hafi birst í störfum og ákvörðunum hæstv. ríkisstj. á undanförnum árum. Þar hefur hæstv. ríkisstj. fyrst og fremst beitt geiri sínum að launafólki, verkalýðshreyfingunni í landinu og það á að gera enn með þessu frv.